Læknablaðið - 15.04.2003, Side 29
FRÆÐIGREINAR / ALDRAÐIR
Heilsufar, hjúkrunarþörf og lífsgæði
aldraðra sem nutu heimaþjónustu
heilsugæslunnar 1997
Pálmi V. Jónsson1'2
ÖLDRUNARLÆKNIR
Hlíf
Guðmundsdóttir'
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Fanney
Friðbjörnsdóttir’
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Maríanna
Haraldsdóttir*
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Þórunn Olafsdóttir1
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Anna Birna
Jensdóttir1
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Ingibjörg
Hjaltadóttir'
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Ómar Harðarson5
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
Hrafn Pálsson6
FÉLAGSFRÆÐINGUR
Grein þessi er tileinkuð minn-
ingu Maríönnu Haraldsdóttur,
f. 3. febrúar 1950, sem lést
langt um aldur fram þann 12.
mars 2002. Hún vann ötullega
að þessari rannsókn og hafði
hafið störf við sambærilega
Evrópurannsókn þegar hún
varð frá að hverfa
vegna veikinda.
'Öldrunarsviði Landspítala
Landakoti, 2Læknadeild
Háskóla íslands, ’Heilsu-
gæslunni í Reykjavík,
4Heilsugæslunni á Seltjamar-
nesi, 5Hagstofu íslands,
6Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu.
Fyrirspumir og bréfaskipti:
Pálmi V. Jónsson,
palmivj@landspitali.is
Lykilorð: aldraðir, heima-
þjónusta, heimahjúkrun,
fœrni, lyf lífsgœði.
Ágrip
Hlgangun Vaxandi áhersla er lögð á að aldraðir geti
búið heima sem lengst, en rannsóknir á högum aldr-
aðra íslendinga sem njóta þjónustu í heimahúsum eru
takmarkaðar. Markmið rannsóknarinnar var að lýsa
heilsufari, líðan og aðstæðum fólks í heimaþjónustu.
Aðferð: Einstaklingarnir sem nutu heimaþjónustu
heilsugæslunnar á Reykjavíkursvæðinu haustið 1997
voru metnir með MDS-RAI HC (Minimum Data
Set-Resident Assessment Instrument for Home Care)
mælitækinu.
Niðurstöðun Metnir voru 257 einstaklingar á fjórum
heilsugæslustöðvum. Meðalaldur var 82,7 ár, 62,5%
bjuggu einir, og höfðu þeir notið heimaþjónustu að
meðaltali í 2,4 ár. Konur voru 78,6%. Nær allir voru
sjálfbjarga með persónulegar athafnir daglegs lífs
(ADL), en 53% þurftu aðstoð við böðun. Um helm-
ingur þurftu mikla aðstoð við almennar athafnir dag-
legs lífs (IADL). Skert minni var hjá tæplega 40%
einstaklinganna en dapurt yfirbragð hjá 18%. Átján
prósent höfðu aldrei farið út úr húsi á 30 daga tíma-
bili, 27% voru alltaf einir yfir daginn, en21% tjáði sig
um einmanaleika. Daglegir verkir greindust hjá 47%
einstaklinganna og 47% töldu heilsufar sitt vera lé-
legt. Á 14 dögum var meðalfjöldi klukkustunda á
skjólstæðing í heimahjúkrun 3,5 klukkustundir og
heimilishjálp 9,5 klukkustundir. Lyfjanotkun var
mikil og voru 34% á níu lyfjum eða fleiri.
Ályktun: Einstaklingar í heimahjúkrun eru sjálf-
bjarga með ADL en þeir þurfa aðstoð við almenn
dagleg verk og böðun. Ýmis atriði sem snerta lífsgæði
þyrfti að skoða nánar með hliðsjón af því hvort bæta
megi líðan þeirra sem njóta þjónustunnar.
Inngangur
Með vaxandi fjölda aldraðra aukast stöðugt kröfum-
ar til heilbrigðis- og félagsþjónustu um að finna leiðir
til umönnunar þeirra sem sjúkir eru og lasburða, sem
er í senn gæðaþjónusta og hagkvæm. Markmið laga
um málefni aldraðra er að hinn aldraði geti búið heima
sem lengst og notið þess stuðnings sem þarf (1). I
þessum aðstæðum er nauðsynlegt að hafa mælitæki
sem getur greint hinar fjölþættu þarfir sjúkra aldr-
aðra og metið hvernig þeim þörfum er mætt og skil-
virkni þjónustunnar. MDS-RAIHC er mælitæki sem
uppfyllir þær væntingar sem gera þarf til slíks tækis
og hefur í senn gildi og er áreiðanlegt (2,3). Mælitæk-
ið lýsir líkamlegu og andlegu heilsufari, færni og fé-
ENGLISH SUMMARY
Jónsson PV, Guðmundsdóttir H, Friðbjörnsdóttir F,
Haraldsdóttir M, Ólafsdóttir Þ, Jensdóttir AB,
Hjaltadóttir I, Harðarson Ó, Pálsson H
Health care needs and quality of life of elderly in
home care in Fteykjavik, 1997
Læknablaðið 2003; 89: 313-18
Objective: It is increasingly emphasized that the elderly
should be supported to live at home as long as possible.
The purpose of this study was to describe the health and
conditions of people in home care.
Material and methods: Individuals who received home
care in the Reykjavik area in autumn of 1997 were
assessed with the Minimum Data Set-Resident
Assessment Instrument for Home Care, MDS-RAI HC.
Results: The study evaluated 257 individuals at four
primary care health centers. The mean age was 82.7
years, women were 78.6%, living alone were 62.5%, and
they had received home care on average of 2.4 years.
Almost all were independent in primary activities of daily
living, ADL, but about half needed help with instrumental
activities of daily living (IADL). Impaired cognition was
observed in 40% of individuals, depressive symptoms in
18%, daily pain was noted in 47% and 47% assessed
their health as poor. Loneliness was expressed by 21 %,
18% had not gone out doors in over 30 days and 27%
were always alone during the day. The mean number of
hours during two weeks was 3.5 hours in nursing care and
9.5 hours in home help. Thirty-four percent took 9 or more
medications.
Conclusion: Individuals in home care were independent in
ADL but needed assistance with IADL. There are important
quality of life issues that are of concern. Further research
is needed in home care with particular emphasis on
improvement of well being.
Key words: home care, aged, function, medications,
quality of life.
Correspondence: Pálmi V. Jónsson, paimivj@iandspitati.is
lagslegu umhverfi. Niðurstöður matsins má síðan
tengja við áætlunargerð og skipulagningu heima-
þjónustunnar (4). Þróun mælitækis fyrir heimaþjón-
ustu byggir á reynslu sem fékkst við þróun tækis fyrir
aldraða á stofnunum sem nýtt hefur verið á íslandi
frá 1994 og meðal annarra rita lýst í Læknablaðinu
(5-7).
Árið 1997 var gerð könnun á notagildi MDS-RAI
Læknablaðið 2003/89 313