Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2003, Page 32

Læknablaðið - 15.04.2003, Page 32
FRÆÐIGREINAR / ALDRAÐIR Tafla IV. Lyfjanotkun í heimaþjónustu heilsugæslunn- ar eftir flokkum. Lyfjaflokkur % Kvíðastillandi lyf 23,3 Svefnlyf 44,4 Geðdeyfðarlyf 31,1 Sterk geðlyf 7,0 Hjarta- og blóðrásarlyf 28,0 Meltingarlyf 26,5 Blóösjúkdómalyf 13,2 Lyf við öndunarfærum 7,4 Hormón 6,2 Stoökerfislyf 5,1 Augn- og eyrnasjúkdómalyf 4,7 Þvagvega- og kynhormónalyf 3,5 Krabbameinslyf 1,6 Húðlyf 0,8 Sýklalyf 1,6 Ýmis lyf 3,9 Fjöidl lyfja Fjöldi lyfja síðastliöna sjö daga Hlutfall aldraðra Mynd 2 sýnir hversu mörg lyf voru tekin síðastliðna sjö daga. Priðjungur aldr- aðra tekurníu lyf eða fleiri. Umræða Gerð hefur verið grein fyrir þeim sem voru 65 ára og eldri og nutu heimaþjónustu heilsugæslunnar á árinu 1997 á fjórum heilsugæslustöðvum í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Pjónustu fá fjórar konur á móti hverj- um einum karli og eru tæplega 70% áttatíu ára og eldri. Helmingur hópsins þarf hjálp við böðun en er annars sjálfbjarga í frumathöfnum daglegs lífs. Um það bil þriðjungur var með vitræna skerðingu og skerta hæfni til ákvarðanatöku. Priðjungur var sjálfbjarga við undirbúning mál- tíða og umsýslu fjármála en fimmtungur við heimilis- störf, lyfjainntöku, innkaup og ferðir. Meirihlutinn þurfti því aðstoð í almennum athöfnum daglegs lífs. Um fimmtungur hafði farið daglega út úr húsi síðast- liðna 30 daga en sami fjöldi fór aldrei út. Urn tíundi hver skjólstæðingur telur sig geta bætt sjálfsbjörg sína varðandi ADL, IADL eða hreyfifæmi. Umönnunar- aðilar voru sama sinnis. Einungis 3,1% skjólstæðinga telur sig hafa góðar batahorfur. Tæpur helmingur allra var með daglega verki og þriðjungur með fleiri en níu lyf. Þeir sem njóta heimaþjónustu heilsugæsl- unnar virðast oft þurfa á henni að halda í langan tíma þar sem meðaltími í þjónustu var 2,4 ár. Skjólstæðingar heimaþjónustu heilsugæslunnar fá tæpar sjö klukkustundir á viku aðstoð við ADL og IADL frá sínum nánustu. Algengast er að böm og tengdaböm veiti þennan stuðning en síðan makar og aðrir ættingjar. Til viðbótar fá þeir annað eins af þjón- ustu frá formlegum umönnunaraðilum en algengast er að hún sé veitt af heimahjúkrun og heimilishjálp. Mik- ill meirihluti skjólstæðinga telur ekki þörf á aukinni ADL eða IADL aðstoð frá ættingjum og vinum. Hins vegar var algengast að skjólstæðingar teldu sig þurfa aukinn tilfinningalegan stuðning, eða í fjórðungi til- vika. Það er svipaður fjöldi og lýsir einmanaleika. Niðurstöður þessarar rannsóknar vekja ýmsar spurningar. í fyrsta lagi virðist vera ákveðinn hópur einstaklinga sem nýtur heimaþjónustu heilsugæsl- unnar sem er það sjálfbjarga og fær að spyrja má hvort hann þurfi í raun á þjónustunni að halda. í öðru lagi má spyrja hvort tíminn sem viðkomandi nýtur heimaþjónustu sé óeðlilega langur. Meðaltímalengd þjónustu er 2,4 ár og tæpur helmingur fær þjónustu í kjölfar sjúkrahússinnlagnar. Það er því umhugsunar- vert hvort nægilega oft sé endurmetið hvort áfram- haldandi þjónustu sé þörf. í þriðja lagi er ákveðinn hópur einstaklinga sem er dapur, finnur fyrir ein- manaleika og fer ekki út fyrir hússins dyr. Þessir ein- staklingar eru ef til vill ekki að njóta bestu hugsan- legrar þjónustu. Sumir kynnu að vera betur settir á vist- eða hjúkrunarheimili. Sumum mætti ef til vill hjálpa með dagvistunarúrræði. I fjórða lagi vaknar spurning um hvort læknar komi nægilega að meðferð skjólstæðinga heimaþjónustu heilsugæslunnar þar sem verkir eru algengir, depurð áberandi og lyfja- notkun mikil. Heimaþjónusta heilsugæslunnar mun aukast á komandi árum bæði hvað varðar magn og fjölbreyti- leika og má þar nefna nokkra líklega orsakaþætti (10). Aldraðir verða með auknar byrðar langvinnra sjúk- dóma, sjúklingar munu kjósa að búa lengur í heima- húsum, reynt verður að draga úr sjúkrahússinnlögnum og tæknin mun leyfa fleirum að búa heima. Þá er nauðsynlegt að takmarka kostnað. Ein rann- sókn sýndi að 72,3% aldraðra kysi að fá fremur þjón- ustu heima en á sjúkrahúsi ef þess væri kostur. Önnur rannsókn sýndi ekki fram á aukið álag af slíkri sér- hæfðri sjúkrahústengdri heimaþjónustu. Mörgum spurningum um heimaþjónustu er ósvarað (11, 12). Sparar heimaþjónusta fjármagn? Bætir heimaþjónusta lífslíkur? Er hægt að forðast sjúkrahússinnlagnir? Bæt- ir heimaþjónusta fæmi eða dregur úr líkum á fæmi- tapi? Á hvem hátt ættu læknar að koma að heimaþjón- ustu? Breytileiki í algengi heimaþjónustu eftir lands- svæðum bendir til þess að ekki sé almenn samstaða um það hvemig heimaþjónustu sé best fyrir komið (13). MDS-RAI HC mælitækið hefur mikla þýðingu og staðfest gildi í heimaþjónustunni (14). Mælitækið lýs- 316 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.