Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2003, Side 37

Læknablaðið - 15.04.2003, Side 37
FRÆÐIGREINAR / SIÐFRÆÐI STOFNFRUMULÆKNINGA Notkun stofnfrumna úr fósturvísum til lækninga. Siðfræðileg álitamál Flóki Guðmundsson1,2 HEIMSPEKINEMI A LOKAÁRI Trausti Óskarsson' LÆKNANEMI A 4. ARI Ágrip Þar sem stofnfrumur geta fjölgað sér endalaust og sérhæfst í aðrar frumutegundir þykja þær sérlega at- hyglisverðar frá sjónarhóli læknavísindanna. Hefur athygli vísindamanna sérstaklega beinst að stofn- frumum fósturvísa þar sem sérhæfingargeta þeirra er öðrum stofnfrumum meiri. Við að nálgast þessar stofnfrumur stöðvast þroski fósturvísisins og því hafa slíkar framkvæmdir vakið upp margar áleitnar sið- ferðisspurningar. Umræðan um siðferðilegt réttmæti þess að nota stofnfrumur fósturvísa til lækninga snýst því í reynd um siðferðisstöðu fósturvísisins, upphaf lífsins og helgi þess. í þessari yfirlitsgrein er varpað ljósi á þau sjónarmið sem hæst ber í umræðunni um réttmæti þess að nota stofnfrumur úr fósturvísum til lækninga. Inngangur Rannsóknir á stofnfrumum hafa veitt mönnum nýja von í baráttunni við fjölmarga illvíga og þungbæra sjúkdóma (1). Stofnfrumur hafa þann eiginleika að geta fjölgað sér endalaust og sérhæfst í aðrar frumu- tegundir sem gerir þær að einkar aðlaðandi meðferð- arúrræði, eins og nánar hefur verið lýst í Lækna- blaðinu (2). Stofnfrumur úr fósturvísum taka öðrum stofnfrumum fram í sérhæfíngargetu og hafa rann- sóknir því lengi beinst að þeim. Þar sem þroski fóst- urvísis stöðvast við að stofnfrumur hans eru fjarlægð- ar vekur framkvæmdin áleitnar siðferðisspurningar. Því fer fjarri að menn séu á einu máli um hvernig þeim spurningum skuli svarað enda snýst umræðan að miklu leyti um upphaf lífsins og helgi þess. Þegar slíkar grundvallarspurningar eru lagðar á borð er ENOLISH SUMMARY Guðmundsson F, Óskarsson T The use of embryonic stem cells for medical- therapeutical purposes: ethical issues Læknablaðið 2003; 89: 321-25 The capacity of self-renewal and differentiation renders stem cells an appealing option for cell replacement therapy. Although stem cells are known to exist in fully differentiated tissues, those derived from embryos have generated greater scientific interest due to their capacity for differentiation. The use of embryos as a source of stem cells raises, however, difficult ethical questions, since removing stem cells from an embryo terminates further development of the embryo. The ethics debate on the use of embryonic stem cells focuses on the biological and ethical status of the embryo and the sanctity of life. This paper reviews various ethical issues pertinent to the use of embryonic stem cells for medical purposes. Key words: stem cells, embryos, ethics. Correspondence: Flóki Guðmundsson og Trausti Óskarsson, stofnfrumur@yahoo.com ekki að undra þótt umræðan verði gustmikil og deilur hatrammar. En hver eru þau sjónarmið sem svo tak- ast á? Ólík viðhorf Viðhorfi manna til notkunar stofnfrumna úr fóstur- vísum má gróflega skipta í þrennt. Andstæða póla skipa annars vegar þeir sem aðhyllast persónuvið- 'Heimilislæknisfræöi, ’Heim- spekideild Háskóla íslands. Fyrirspumir og bréfaskipti: Flóki Guömundsson og Trausti Óskarsson, stofnfrumur@yahoo. com Lykilorð: stofnfrumur, fósturvísar, siöfrœði. Tafla 1 Persónuviðhorf Sérstöðuviðhorf Lífverndunarviðhorf Afstaða: Fósturvísir er ekki persóna heldur frumuklasi og hefur því engin réttindi. Fósturvísir er ekki persóna en sem verðandi persóna hefur hann viss réttindi sem þó eru ekki á við réttindi persónu. Við getnað kviknar einstakt og helgt líf sem nýtur sömu réttinda og persónan sem það getur oröið að. Niðurstaða: Það má alltaf nota fóstur- vísa til að bæta lífsskilyröi þeirra sem eru persónur. Stundum vegur siðferðis- staða fósturvísis þyngra en persónu og stundum ekki. Vega þarf og meta hvert tilvik fyrir sig. Það má aldrei nota fósturvísa í neinum þeim tilgangi sem ekki er honum sjálfum til góðs. Læknablaðið 2003/89 321

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.