Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 55

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 55
SMASJAIN Læknar í tímabundín störf í Noregi og Svíþjóö Mikil eftirspurn er nú sem áður eftir ís- lenskum læknum til starfa hjá sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum í Noregi og Svíþjóð. Um er að ræða stöður hvort sem er til lang- frama eða tímabundið, þó að lágmarki fjór- ar vikur í senn. í boði eru afar góð kjör og áhugavert starfsumhverfi. Sérstök áhersla er lögð á ráðningar sérfræðimenntaðra lækna, en mikill skortur er til dæmis á geð- læknum og röntgenlæknum. Einnig er skortur á hjúkrunarfræðing- um og sérfræðingum af heilbrigðissviði fyrir stórt sjúkrahús sem staðsett er í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Viðkomandi munu fá starfsleyfi/græna kortið með aðstoð vinnu- veitenda. Laun og hlunnindi eru mjög góð. Stjórn sjúkrahússins leggur áherslu á fag- mennsku, metnað til árangurs, hópvinnu og fjölskylduvæna starfsmannastefnu. Leiðandi lyfjaverslunarkeðja í Noregi óskar eftir að ráða íslenska lyfjafræðinga til starfa sem fyrst. I boði eru áhugaverð störf hjá traustu og öflugu fyrirtæki sem leggur áherslu á starfsmetnað, símenntun og góð laun fyrir verðugt framtak starfsmanna. Um er að ræða störf í Bergen, Stavanger og víðar í Noregi. Fyrirtækið mun greiða ferðakostn- að vegna viðtala og aðstoða við að útvega húsnæði. STRÁ MRI ehf. í samstarfi við MRI SCANDINAVIA annast milligöngu með þessar ráðningar. MRI WORLDWIDE, sem er stærsta ráðningastofa heims, varð til í apríl 1999 við sameiningu MRI (Management Recruiters International) og bresku ráðningastofunnar Humania International. MRI var stofnað í Ohio í Bandaríkjunum árið 1957 og er því jafnframt elsta ráðningarþjónusta í heimi. MRI WORLDWIDE sinnir einkum ráðningum stjórnenda og sérhæfðs starfs- fólks með áherslu á að leita uppi rétta starfsmanninn hvar sem er í heiminum, án tillits til landamæra. MRI SCANDINVAIA, „Norræna net- ið” var stofnað í maí 1999. Það hefur þegar náð umtalsverðum árangri við að útvega norrænum sjúkrahúsum lykilstarfsmenn frá Bandaríkjunum og Evrópu og bandarísk- um sjúkrahúsum lykilstarfsmenn frá Norð- urlöndunum. Sigurður Örn Hallgrímsson ráðgjafi gef- ur nánari upplýsingar, sími 588 3031, sigurdur@stra.is Frá skrifstofu Læknafélags íslands Hver er hver og hver er hvar? Læknafélagi íslands hefur borist bréf frá framkvæmdastjóra samninga- nefndar HTR þar sem fram kemur að nefndinni berist ýmis erindi frá lækn- um varðandi samningamál. Oft og tíðum sé aðeins nafn viðkomandi læknis ritað undir erindið og þess ekki getið hvar eða hvernig hægt sé að ná í viðkomandi lækni til baka. Er þess óskað við Læknafélag ís- lands að það komi því á framfæri við lækna að þeir gefi upp póstfang, síma- númer og helst netfang þegar þeir senda erindi til nefndarinnar til að tryggja skilvirka afgreiðslu mála. Hér með er ósk samninganefndar HTR komið á framfæri. Þá er rétt að geta þess að ítrekað berast skrifstofunni fyrirspumir vegna undirskrifta á læknabréf og rannsókn- arbeiðnir þar sem eingöngu er að finna nafn viðkomandi en engar frek- ari upplýsingar, svo sem um vinnustað og fleira. Gunnur Árinannsson hdl. framkvæmdastjóri LI Námskeið Endurmemtunar HÍ Breytt viðhorf til lýðheilsu Lýðheilsa snýr að félagslegum og heilsufarslegum þáttum. Hún miðar að því að bæta heilbrigði, lengja líf og auka lífsgæði þjóða og hópa með almennri heilsuvernd, heilsueflingu, sjúk- dómavörnum og annarri heilbrigðisþjónustu. Lýðheilsa byggir á samstarfi margra fræðigreina, svo sem heilbrigðisfræði, fé- lagsfræði, líffræði, faraldursfræði, sálfræði, kynjafræði og stjórn- málafræði. Ymsar breytingar eru á döfinni hér á landi og á alþjóðavett- vangi hvað varðar framtíðarsýn og skipulag lýðheilsumála. Lýðheilsa þarf að vera hluti af almennri umræðu um þjóðfé- lagsmál og sem flestar hliðar hennar ræddar á þeim vettvangi. Sem dæmi má nefna félagslegar, stjórnmálalegar, efnahagsleg- ar og menningarlegar hliðar lýðheilsu. Á námskeiðinu verður leitast við að varpa ljósi á mikilvægi þessarar nálgunar til að ná árangri á sviði lýðheilsu. Hluti af námskeiðinu er opinn morgunverðarfundur þar sem stefnu- mótun á sviði lýðheilsu verður rædd út frá innlendu og erlendu sjónarhorni. Aðalfyrirlesarinn, Dr. Finn Kamper-Jörgensen, er læknir og hefur auk þess menntun á sviði heilsuhagfræði og lýðheilsu. Hann hefur verið forstjóri dönsku Lýðheilsustofnunarinnar í meira en 20 ár. Aðrir fyrirlesarar eru Margrét S. Björnsdóttir forstöðumað- ur Stofnunar stjórnmála- og stjórnsýslufræða HÍ og Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði, rannsóknaprófessor við HÍ. Námskeiðið fer að mestu leyti fram á ensku. Tími: Mánudag- ur 28. apríl kl. 9.00-16.00 og þriðjudagur 29. apríl kl. 8.30-10.00. Skráning og upplýsingar: S: 525-4444, endurmenntun@hi.is www.endurmenntun.is Læknaui.abið 2003/89 339
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.