Læknablaðið - 15.04.2003, Page 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILBRIGÐISMÁL Á K 0 S N I N G AV ETR I
Ef við skoðum aldursdreifinguna á íslandi sést að
aldurshópar sem komast yfir miðjan aldur á næstu
áratugum eru mjög fjölmennir. Að þessu þarf að
hyggja þegar við tökum ákvarðanir um uppbyggingu
í heilbrigðiskerfinu, ekki síst þegar við förum að
byggja nýjan spítala."
Heilsugæslunni hefur hrakað
- Hvernig finnst þér umræður um heilbrigðismál í
samfélaginu vera?
„Mér finnst að það þurfi að ræða meira um nýjan
spítala. Landspítalinn er spítali allra Islendinga, há-
skólasjúkrahús okkar og það þarf að huga að því að
byggja hann upp á einum stað. Margar þessara gömlu
bygginga eru óhagkvæmar og gera starfsemina erfið-
ari en ella. Það er brýnt að fara byrja á því stóra verk-
efni. Mér finnst einnig mikilvægt að huga betur að
heilsugæslunni. Henni hefur hrakað og margir án að-
gangs að heilsugæslulækni. Það er mikið um að fólk
sem hefur verið í aðgerðum hjá okkur og er farið
heim leitar til okkar eftir lyfjaávísunum og með alls-
kyns vandamál sem hafa ekkert með aðgerðina eða
þann sjúkdóm sem leiddi til aðgerðar að gera, vegna
þess að það hefur ekki aðgang að heimilislækni. Ég
sakna þess mjög að hafa ekki öflugri heilsugæslu sem
getur tekið við sjúklingum eftir að þeir hafa verið í
aðgerð hjá okkur.“
Naudsynlegt að skoða rekstrarformið
- Rekstrarform heilbrigðisþjónustunnar hefur verið
til umræðu. Hvað getur þú lagt til mála þar?
„Við verðum að skoða mismunandi rekstrarform
og sjá hvað hentar best. Væri til dæmis heppilegt að
fá einkaaðila til að reisa hús hér við hliðina á okkur
þar sem við gætum komið fyrir göngudeild og skurð-
stofu fyrir smærri aðgerðir? Eða mætti hugsa sér að
starfsfólkið tæki að sér að reka skurðdeildina eða sér-
hæfðar göngudeildir? Þurfum við að eiga öll þessu
dýru tæki, er ekki hægt að hafa þau í rekstrarleigu?
Ég er ekkert viss um að neitt af þessi verði til bóta en
við þurfum að skoða það og leggja á það mat hvort
þessar leiðir gætu verið hagkvæmari og skilvirkari.
- Hefurðu heyrt einhvern stjórnmálamann tala
um heilbrigðismál í þessari kosningabaráttu?
„Nei. Við höfum stundum boðið stjórnmála-
mönnum að koma og kynna sér málin og þeir sýna
því allir áhuga. En við verðum ekki vör við að það
breyti miklu um það hvernig málin eru rædd. Vissu-
lega eru heilbrigðismál flókin og kannski gerum við
okkur ekki grein fyrir því hversu flókin þau geta ver-
ið í augum fólks sem ekki lifir og hrærist í þeim. En
við þurfum kannski að vera duglegri við að fræða al-
menning og stjórnmálamenn,“ sagði Margrét Odds-
dóttir skurðlæknir.
SINGULAIR"
Tuggutöflur: R 03 DC 03
Virkt innihaldsefni: Montelúkast 4 mg. Ábendingar: SINGULAIR er ætlað til meðferðar við astma sem viðbótarmeðferð hjá sjúklingum sem hafa vægan eða miðlungsmikinn viðvarandi astma, þegar
meðferð með innúðasterum er ekki fullnægjandi og þegar notkun stuttverkandi -agónista „eftir þörftim” veitir ekki fullnægjandi klíníska meðferð við astma. SINGULAIR er einnig ætlað til
fyrirbyggjandi meðferðar á áreynsluastma. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærð handa bömum 2-5 ára er ein 4 mg tuggutafla daglega, tekin inn að kvöldi. Ef SINGULAIR er tekið í tengslum við
máltíð verður að taka SINGULAIR inn 1 klukkustund fyrir eða 2 klukkustundum eftir máltíð. Ekki er þörf á aðlögun skammta innan þessa aldurshóps. Reynsla er ekki fyrir hendi varðandi notkun
hjá bömum undir 2 ára aldri, og því er ekki mælt með notkun montelúkasts fyrr en frekari gögn liggja fyrir. öryggi og verkun lyfsins hefur ekki verið staðfest hjá þessum aldurshópi. Almennar
ráðleggingar: Lækningaleg verkun SINGULAIR á einkenni astma kemur fram innan sólarhrings. Ráðleggja skal sjúklingum að halda áfram að taka inn SINGULAIR jafnvel þótt astmaeinkennin
hverfi, og einnig þegar astmaeinkennin versna. Ekki er þörf á aðlögun skammta hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi eða væga eða miðlungsmikla skerðingu á lifrarstarfsemi. Engar upplýsingar
finnast um sjúklinga með alvarlega skerðingu á lifrarstarfsemi. Skammtar em þeir sömu fyrir bæði kynin. Meðferð með SINGULAIR i lengslum við aðra meðferð gegn astma. SINGULAIR má bæta
við þá meðferð sem sjúklingurinn er þegar að fá. Meðferð með -agónistum: SINGULAIR má bæta við meðferð þegar meðferð með stuttverkandi -agónistum “eftir þörfum” dugir ekki ein sér. Þegar
klínísk svömn hefur átt sér stað (venjulega eftir fyrsta skammtinn), getur sjúklingurinn e.t.v. dregið úr meðferð með stuttverkandi -agónistum “eftir þörfum”. Innúðabarksterar: Meðferð með
SINGULAIR má nota sem viðbótarmeðferð þegar önnur lyf s.s. innúðabarksterar veita ekki fullnægjandi klíníska meðferð. SINGULAIR á ekki að gefa í stað innúðabarkstera (sjá 4.4 Sérstök
vamaðarorð og varúðarreglur við notkim). 10-mg töflur, em fáanlegar handa fullorðnum sjúklingum, 15 ára og eldri. 5-mg tuggutöflur em fáanlegar fyrir 6 til 14 ára böm. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir virka efninu eða einhveiju af hjálparefnunum. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Ráðleggja skal sjúklingum að nota aldrei montelúkast töflur til inntöku við bráðum
astmaköstum, heldur hafa sín venjulegu viðeigandi lyf tiltæk til notkunar við slíkar aðstæður. Ef brátt astmakast á sér stað skal nota stuttverkandi -agónista til innúðunar. Sjúklingar skulu ráðfæra sig
við sinn lækni svo fljótt sem auðið er, ef þeir þurfa meira af -agónistum til innúðunar, en áður. Montelúkast á ekki að gefa í stað innúðabarkstera eða barkstera til inntöku. Ekki hefur verið sýnt fram
á að hægt sé að draga úr notkun barkstera til inntöku þegar montelúkast er gefið samhliða þeim. í sjaldgæfúm tilvikum getur fjölgun eósínófila átt sér stað hjá sjúklingum í meðferð með astmalyfjum,
þ.á m. montelúkasti, sem stundum kemur fram með klínískum einkennum æðabólgu sem samræmist Churg-Strauss heilkenni, sjúkdómi sem oft er meðhöndlaður með barksterum (systemic). í flestum
þessara tilvika, en ekki öllum, hafa skammtar af barksterum til inntöku verið minnkaðir eða notkun þeirra hætt. Hvorki er hægt að útiloka né staðfesta að Churg-Strauss heilkenni komi upp í tengslum
við leukotríen viðtaka antagónista. Læknar skulu vera á verði m.t.t. fjölgunar eósínófíla, útbrota í tengslum við æðabólgu, versnandi lungnaeinkenna, aukaverkana á hjarta, og/eða taugabólgu hjá
sjúklingunum. Endurmeta skal ástand sjúklinga sem fá þessi einkenni og endurskoða meðferð þeirra. Öryggi og virkni hefúr ekki enn verið staðfest hjá bömum undir 2 ára að aldri. SINGULAIR
inniheldur aspartam, sem inniheldur fenýlalanín. Sjúklingar með fenýlketónmigu ættu að athuga að sérhver 4 mg tuggutafla inniheldur sem samsvarar 0,674 mg af fenýlalaníni. Milliverkanir við
önnur lyf og aðrar milliverkanir: Montelúkast má gefa samhliða annarri hefðbundinni fyrirbyggjandi meðferð og hefðbundinni meðferð við langvinnum astma. í rannsóknum á milliverkunum hafði
ráðlagður klínískur skammtur af montelúkasti engin klínískt marktæk áhrif á lyfjahvörf eftirfarandi lyfja: Theófyllíns, prednisóns, prednisólóns, getnaðarvamartaflna (ethinyl-estradíol/norethindrone
35/1), terfenadíns, dígoxíns og warfaríns. AUC fyrir montelúkast var u.þ.b. 40% minna hjá einstaklingum sem fengu fenóbarbital samhliða montelúkasti. Þar sem montelúkast umbrotnar fyrir tilstilli
CYP 3A4 skal gæta varúðar sérstaklega hjá bömum þegar montelúkast er gefið samhliða lyfjum sem innleiða CYP 3A4, svo sem fenýtóíni, fenóbarbitali og rifampisíni. Mcðganga og brjóstagjöf:
Þar sem engar samanburðarrannsóknir hafa verið gerðar hjá þunguðum konum eða konum með bam á bijósti á ekki að nota montelúkast á meðgöngu eða hjá konum með bam á bijósti nema brýna
nauðsyn beri til. Aukaverkanir: Aukaverkanir vom almennt vægar og hafa yfirleitt ekki orðið til þess að hætta þurfi meðferð. Húðaðar 10 mg montelúkast töflur hafa verið prófaðar hjá u.þ.b.
2600 fullorðnum sjúklingum, 15 ára og eldri, í klínískum rannsóknum. Montelúkast 4 mg Uiggutöflur hafa verið prófaðar hjá 573 bömum á aldrinum 2-5 ára. í klínískri samanburðarrannsókn með
lyfleysu, sem stóð í 12 vikur, var þorsti eina aukaverkunin sem almennt var skráð í tengslum við lyfið hjá sjúklingum sem fengu montelúkast. Eftirfarandi aukaverkanir, vom skráðar hjá 2-5 ára
bömum í klínískum rannsóknum. Ekki var tekið tillit til orsakasambands: Mjög algengar (>1/10): Öndunarfæri: Hósti. 502 böm, 2 til 5 ára vom mcðhöndluð með montelúkasti í a.m.k. 3 mánuði,
338 í 6 mánuði eða lengur og 256 böm í 12 mánuði eða lengur. Eðli aukaverkananna breyttist ekki með lengd meðferðar. Montelúkast 5 mg tuggutöflur hafa verið prófaðar hjá u.þ.b. 320 sjúklingum
á aldrinum 6-14 ára. Reynsla af langtímameðferð (meira en ár) hjá þessum aldurshóp nær aðeins til 121 sjúklinga. í klíniskri samanburðarrannsókn með lyfleysu, sem stóð í 8 vikur, var höfúðverkur
eina aukaverkunin sem almennt var skráð í tengslum við lyfið. Eftirfarandi aukaverkanir, vom skráðar hjá 6 til 14 ára bömum í klínískum rannsóknum. Ekki var tekið tillit til orsakasambands: Mjög
algengar (>1/10): Öndunarfæri: Hálsbólga. Algengar (>1/100, <1/10): Almennar: Hiti. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði. Öndunarfæri: Inflúensa, skútabólga. Aukaverkanamynstrið hélst óbreytt við
langtímameðferð, í klínískum rannsóknum á takmörkuðum Qölda sjúklinga, í allt að 6 mánuði. Montelúkast 10 mg húðaðar töflur hafa verið prófaðar hjá fullorðnum sjúklingum, 15 ára og eldri. í
tveimur klínískum samanburðarrannsóknum með lyfleysu, sem vom svipaðar að uppbyggingu og stóðu í 12 vikur, vom aðeins 2 aukaverkanir, kviðverkir og höfúðverkur, skráðar sem lyfjatengdar
aukaverkanir hjá sjúklingum sem fengu montclúkast. Eftirfarandi aukaverkanir vom skráðar í klínískum rannsóknum. Ekki var tekið tillit til orsakasambands: Mjög algengar (>1/10):
Taugakerf/geðræn vandamál: Höfuðverkur. Algengar (>1/100, <1/10): Almennar: Máttleysi/þreyta, hiti, kviðverkir, slys. Meltingarfæri: Niðurgangur, meltingartmflanir, maga- og gamabólga af
völdum sýkingar, tannverkur. Taugakerfi/geðræn vandamál: Svimi, svefnleysi. öndunarfæri: Nefstífla, hósti, inflúensa. Húð og tengdir vefir: Útbrot. Tíðni og gerð aukavcrkana hélst óbreytt við
langtímameðferð, í klínískum rannsóknum á takmörkuðum fjölda sjúklinga, í allt að 2 ár. Eftirfarandi aukaverkanir hafa mjög sjaldan verið skráðar við almenna notkun lyfsins: Máttleysi/þreyta, svimi,
óeðlilegir draumar þar á meðal martraðir, syfja, svefnleysi, önuglyndi, eirðarleysi, liðverkir, niðurgangur, munnþurrkur, meltingartmflanir, ofnæmisviðbrögð (þ.á m. bráðaofnæmi, ofsabjúgur,
ofsakláði, kláði, útbrot og eitt tilfelli af íferð eósínófíla í lifúr), lasleiki, vöðvaverkir, ógleði og uppköst. Pakkningar og verð (desember, 2002): 28 stk. 5726 kr. 98 stk. 16975 kr. Afgreiðsla:
Lyfseðilsskylda. Greiðsluþátttaka: B. HANDHAFI MARKAÐSLEYFIS: Merck Sharp & Dohme B.V., Haarlem, Holland. Umboðsaðili á íslandi: Farmasía ehf, Síðumúla 32, 108 Reykjavík.
Læknablaðið 2003/89 345