Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.2003, Qupperneq 61

Læknablaðið - 15.04.2003, Qupperneq 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILBRIGÐISMÁL Á K 0 S N I N G AV ETR I Ef við skoðum aldursdreifinguna á íslandi sést að aldurshópar sem komast yfir miðjan aldur á næstu áratugum eru mjög fjölmennir. Að þessu þarf að hyggja þegar við tökum ákvarðanir um uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu, ekki síst þegar við förum að byggja nýjan spítala." Heilsugæslunni hefur hrakað - Hvernig finnst þér umræður um heilbrigðismál í samfélaginu vera? „Mér finnst að það þurfi að ræða meira um nýjan spítala. Landspítalinn er spítali allra Islendinga, há- skólasjúkrahús okkar og það þarf að huga að því að byggja hann upp á einum stað. Margar þessara gömlu bygginga eru óhagkvæmar og gera starfsemina erfið- ari en ella. Það er brýnt að fara byrja á því stóra verk- efni. Mér finnst einnig mikilvægt að huga betur að heilsugæslunni. Henni hefur hrakað og margir án að- gangs að heilsugæslulækni. Það er mikið um að fólk sem hefur verið í aðgerðum hjá okkur og er farið heim leitar til okkar eftir lyfjaávísunum og með alls- kyns vandamál sem hafa ekkert með aðgerðina eða þann sjúkdóm sem leiddi til aðgerðar að gera, vegna þess að það hefur ekki aðgang að heimilislækni. Ég sakna þess mjög að hafa ekki öflugri heilsugæslu sem getur tekið við sjúklingum eftir að þeir hafa verið í aðgerð hjá okkur.“ Naudsynlegt að skoða rekstrarformið - Rekstrarform heilbrigðisþjónustunnar hefur verið til umræðu. Hvað getur þú lagt til mála þar? „Við verðum að skoða mismunandi rekstrarform og sjá hvað hentar best. Væri til dæmis heppilegt að fá einkaaðila til að reisa hús hér við hliðina á okkur þar sem við gætum komið fyrir göngudeild og skurð- stofu fyrir smærri aðgerðir? Eða mætti hugsa sér að starfsfólkið tæki að sér að reka skurðdeildina eða sér- hæfðar göngudeildir? Þurfum við að eiga öll þessu dýru tæki, er ekki hægt að hafa þau í rekstrarleigu? Ég er ekkert viss um að neitt af þessi verði til bóta en við þurfum að skoða það og leggja á það mat hvort þessar leiðir gætu verið hagkvæmari og skilvirkari. - Hefurðu heyrt einhvern stjórnmálamann tala um heilbrigðismál í þessari kosningabaráttu? „Nei. Við höfum stundum boðið stjórnmála- mönnum að koma og kynna sér málin og þeir sýna því allir áhuga. En við verðum ekki vör við að það breyti miklu um það hvernig málin eru rædd. Vissu- lega eru heilbrigðismál flókin og kannski gerum við okkur ekki grein fyrir því hversu flókin þau geta ver- ið í augum fólks sem ekki lifir og hrærist í þeim. En við þurfum kannski að vera duglegri við að fræða al- menning og stjórnmálamenn,“ sagði Margrét Odds- dóttir skurðlæknir. SINGULAIR" Tuggutöflur: R 03 DC 03 Virkt innihaldsefni: Montelúkast 4 mg. Ábendingar: SINGULAIR er ætlað til meðferðar við astma sem viðbótarmeðferð hjá sjúklingum sem hafa vægan eða miðlungsmikinn viðvarandi astma, þegar meðferð með innúðasterum er ekki fullnægjandi og þegar notkun stuttverkandi -agónista „eftir þörftim” veitir ekki fullnægjandi klíníska meðferð við astma. SINGULAIR er einnig ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar á áreynsluastma. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærð handa bömum 2-5 ára er ein 4 mg tuggutafla daglega, tekin inn að kvöldi. Ef SINGULAIR er tekið í tengslum við máltíð verður að taka SINGULAIR inn 1 klukkustund fyrir eða 2 klukkustundum eftir máltíð. Ekki er þörf á aðlögun skammta innan þessa aldurshóps. Reynsla er ekki fyrir hendi varðandi notkun hjá bömum undir 2 ára aldri, og því er ekki mælt með notkun montelúkasts fyrr en frekari gögn liggja fyrir. öryggi og verkun lyfsins hefur ekki verið staðfest hjá þessum aldurshópi. Almennar ráðleggingar: Lækningaleg verkun SINGULAIR á einkenni astma kemur fram innan sólarhrings. Ráðleggja skal sjúklingum að halda áfram að taka inn SINGULAIR jafnvel þótt astmaeinkennin hverfi, og einnig þegar astmaeinkennin versna. Ekki er þörf á aðlögun skammta hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi eða væga eða miðlungsmikla skerðingu á lifrarstarfsemi. Engar upplýsingar finnast um sjúklinga með alvarlega skerðingu á lifrarstarfsemi. Skammtar em þeir sömu fyrir bæði kynin. Meðferð með SINGULAIR i lengslum við aðra meðferð gegn astma. SINGULAIR má bæta við þá meðferð sem sjúklingurinn er þegar að fá. Meðferð með -agónistum: SINGULAIR má bæta við meðferð þegar meðferð með stuttverkandi -agónistum “eftir þörfum” dugir ekki ein sér. Þegar klínísk svömn hefur átt sér stað (venjulega eftir fyrsta skammtinn), getur sjúklingurinn e.t.v. dregið úr meðferð með stuttverkandi -agónistum “eftir þörfum”. Innúðabarksterar: Meðferð með SINGULAIR má nota sem viðbótarmeðferð þegar önnur lyf s.s. innúðabarksterar veita ekki fullnægjandi klíníska meðferð. SINGULAIR á ekki að gefa í stað innúðabarkstera (sjá 4.4 Sérstök vamaðarorð og varúðarreglur við notkim). 10-mg töflur, em fáanlegar handa fullorðnum sjúklingum, 15 ára og eldri. 5-mg tuggutöflur em fáanlegar fyrir 6 til 14 ára böm. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhveiju af hjálparefnunum. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Ráðleggja skal sjúklingum að nota aldrei montelúkast töflur til inntöku við bráðum astmaköstum, heldur hafa sín venjulegu viðeigandi lyf tiltæk til notkunar við slíkar aðstæður. Ef brátt astmakast á sér stað skal nota stuttverkandi -agónista til innúðunar. Sjúklingar skulu ráðfæra sig við sinn lækni svo fljótt sem auðið er, ef þeir þurfa meira af -agónistum til innúðunar, en áður. Montelúkast á ekki að gefa í stað innúðabarkstera eða barkstera til inntöku. Ekki hefur verið sýnt fram á að hægt sé að draga úr notkun barkstera til inntöku þegar montelúkast er gefið samhliða þeim. í sjaldgæfúm tilvikum getur fjölgun eósínófila átt sér stað hjá sjúklingum í meðferð með astmalyfjum, þ.á m. montelúkasti, sem stundum kemur fram með klínískum einkennum æðabólgu sem samræmist Churg-Strauss heilkenni, sjúkdómi sem oft er meðhöndlaður með barksterum (systemic). í flestum þessara tilvika, en ekki öllum, hafa skammtar af barksterum til inntöku verið minnkaðir eða notkun þeirra hætt. Hvorki er hægt að útiloka né staðfesta að Churg-Strauss heilkenni komi upp í tengslum við leukotríen viðtaka antagónista. Læknar skulu vera á verði m.t.t. fjölgunar eósínófíla, útbrota í tengslum við æðabólgu, versnandi lungnaeinkenna, aukaverkana á hjarta, og/eða taugabólgu hjá sjúklingunum. Endurmeta skal ástand sjúklinga sem fá þessi einkenni og endurskoða meðferð þeirra. Öryggi og virkni hefúr ekki enn verið staðfest hjá bömum undir 2 ára að aldri. SINGULAIR inniheldur aspartam, sem inniheldur fenýlalanín. Sjúklingar með fenýlketónmigu ættu að athuga að sérhver 4 mg tuggutafla inniheldur sem samsvarar 0,674 mg af fenýlalaníni. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Montelúkast má gefa samhliða annarri hefðbundinni fyrirbyggjandi meðferð og hefðbundinni meðferð við langvinnum astma. í rannsóknum á milliverkunum hafði ráðlagður klínískur skammtur af montelúkasti engin klínískt marktæk áhrif á lyfjahvörf eftirfarandi lyfja: Theófyllíns, prednisóns, prednisólóns, getnaðarvamartaflna (ethinyl-estradíol/norethindrone 35/1), terfenadíns, dígoxíns og warfaríns. AUC fyrir montelúkast var u.þ.b. 40% minna hjá einstaklingum sem fengu fenóbarbital samhliða montelúkasti. Þar sem montelúkast umbrotnar fyrir tilstilli CYP 3A4 skal gæta varúðar sérstaklega hjá bömum þegar montelúkast er gefið samhliða lyfjum sem innleiða CYP 3A4, svo sem fenýtóíni, fenóbarbitali og rifampisíni. Mcðganga og brjóstagjöf: Þar sem engar samanburðarrannsóknir hafa verið gerðar hjá þunguðum konum eða konum með bam á bijósti á ekki að nota montelúkast á meðgöngu eða hjá konum með bam á bijósti nema brýna nauðsyn beri til. Aukaverkanir: Aukaverkanir vom almennt vægar og hafa yfirleitt ekki orðið til þess að hætta þurfi meðferð. Húðaðar 10 mg montelúkast töflur hafa verið prófaðar hjá u.þ.b. 2600 fullorðnum sjúklingum, 15 ára og eldri, í klínískum rannsóknum. Montelúkast 4 mg Uiggutöflur hafa verið prófaðar hjá 573 bömum á aldrinum 2-5 ára. í klínískri samanburðarrannsókn með lyfleysu, sem stóð í 12 vikur, var þorsti eina aukaverkunin sem almennt var skráð í tengslum við lyfið hjá sjúklingum sem fengu montelúkast. Eftirfarandi aukaverkanir, vom skráðar hjá 2-5 ára bömum í klínískum rannsóknum. Ekki var tekið tillit til orsakasambands: Mjög algengar (>1/10): Öndunarfæri: Hósti. 502 böm, 2 til 5 ára vom mcðhöndluð með montelúkasti í a.m.k. 3 mánuði, 338 í 6 mánuði eða lengur og 256 böm í 12 mánuði eða lengur. Eðli aukaverkananna breyttist ekki með lengd meðferðar. Montelúkast 5 mg tuggutöflur hafa verið prófaðar hjá u.þ.b. 320 sjúklingum á aldrinum 6-14 ára. Reynsla af langtímameðferð (meira en ár) hjá þessum aldurshóp nær aðeins til 121 sjúklinga. í klíniskri samanburðarrannsókn með lyfleysu, sem stóð í 8 vikur, var höfúðverkur eina aukaverkunin sem almennt var skráð í tengslum við lyfið. Eftirfarandi aukaverkanir, vom skráðar hjá 6 til 14 ára bömum í klínískum rannsóknum. Ekki var tekið tillit til orsakasambands: Mjög algengar (>1/10): Öndunarfæri: Hálsbólga. Algengar (>1/100, <1/10): Almennar: Hiti. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði. Öndunarfæri: Inflúensa, skútabólga. Aukaverkanamynstrið hélst óbreytt við langtímameðferð, í klínískum rannsóknum á takmörkuðum Qölda sjúklinga, í allt að 6 mánuði. Montelúkast 10 mg húðaðar töflur hafa verið prófaðar hjá fullorðnum sjúklingum, 15 ára og eldri. í tveimur klínískum samanburðarrannsóknum með lyfleysu, sem vom svipaðar að uppbyggingu og stóðu í 12 vikur, vom aðeins 2 aukaverkanir, kviðverkir og höfúðverkur, skráðar sem lyfjatengdar aukaverkanir hjá sjúklingum sem fengu montclúkast. Eftirfarandi aukaverkanir vom skráðar í klínískum rannsóknum. Ekki var tekið tillit til orsakasambands: Mjög algengar (>1/10): Taugakerf/geðræn vandamál: Höfuðverkur. Algengar (>1/100, <1/10): Almennar: Máttleysi/þreyta, hiti, kviðverkir, slys. Meltingarfæri: Niðurgangur, meltingartmflanir, maga- og gamabólga af völdum sýkingar, tannverkur. Taugakerfi/geðræn vandamál: Svimi, svefnleysi. öndunarfæri: Nefstífla, hósti, inflúensa. Húð og tengdir vefir: Útbrot. Tíðni og gerð aukavcrkana hélst óbreytt við langtímameðferð, í klínískum rannsóknum á takmörkuðum fjölda sjúklinga, í allt að 2 ár. Eftirfarandi aukaverkanir hafa mjög sjaldan verið skráðar við almenna notkun lyfsins: Máttleysi/þreyta, svimi, óeðlilegir draumar þar á meðal martraðir, syfja, svefnleysi, önuglyndi, eirðarleysi, liðverkir, niðurgangur, munnþurrkur, meltingartmflanir, ofnæmisviðbrögð (þ.á m. bráðaofnæmi, ofsabjúgur, ofsakláði, kláði, útbrot og eitt tilfelli af íferð eósínófíla í lifúr), lasleiki, vöðvaverkir, ógleði og uppköst. Pakkningar og verð (desember, 2002): 28 stk. 5726 kr. 98 stk. 16975 kr. Afgreiðsla: Lyfseðilsskylda. Greiðsluþátttaka: B. HANDHAFI MARKAÐSLEYFIS: Merck Sharp & Dohme B.V., Haarlem, Holland. Umboðsaðili á íslandi: Farmasía ehf, Síðumúla 32, 108 Reykjavík. Læknablaðið 2003/89 345
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.