Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2003, Page 63

Læknablaðið - 15.04.2003, Page 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR & LÖG aðeins greiða fyrir tjón sem komast hefði mátt hjá með því að haga rannsókn eða meðferð á annan hátt en gert var. Frá þessu er ekki vikið í 1.-3. tölul. Skv. 4. tölul. má hins vegar í vissum tilvikum greiða bætur fyrir tjón sem ekki var komist hjá. Samkvæmt 1. tölul. þarf að kanna hvort komast hefði mátt hjá tjóni ef rannsókn eða meðferð við þær aðstæður sem um ræðir hefði verið hagað eins vel og kostur var og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Séu skilyrði 1. tölul. ekki fyrir hendi kemur til at- hugunar, sbr. 2. tölul., hvort tjón megi rekja til bilun- ar eða galla í búnaði sem notaður var við rannsókn eða meðferð þannig að komist hefði verið hjá tjóni ef ekkert hefði farið úrskeiðis. Ef tjónið verður rakið til þessa skal greiða bætur skv. 2. tölul. þrátt fyrir að öllu hefði verið hagað eins vel og unnt var. Ef ekki eru skilyrði til bóta skv. 1. eða 2. tölul. kemur 3. tölul. til álita. Samkvæmt honum ber að greiða bætur ef kom- ast hefði mátt hjá tjóni með því að nota aðra aðferð eða tækni sem völ var á. Fáist bætur ekki skv. 1., 2. eða 3. tölul. verður að athuga hvort 4. tölul. getur átt við. Samkvæmt honum á sjúklingur rétt á bótum ef hann skaðast af sýkingu eða öðrum fylgikvilla sem er meiri en talið verður eðlilegt samkvæmt sjónarmið- um sem nánar eru tilgreind í 4. tölul. Réttur til bóta helst þótt ekki hefði verið unnt að afstýra tjóni með annarri aðferð eða tækni. Hverjir eru bótaskyldir? Samkvæmt 9. gr. laganna eru allir bótaskyldir sem veita heilbrigðisþjónustu, innan stofnana sem utan. I greininni eru taldar upp heilsugæslustöðvar, sjúkra- hús, aðrar heilbrigðisstofnanir, allt án tillits til rekstr- arforma. Að auki fær Tryggingastofnun ríkisins sinn sess og einnig þeir sem annast sjúkraflutninga. Til viðbótar við þessa upptalningu bera heilbrigðis- starfsmenn sem starfa sjálfstætt og hafa hlotið lög- gildingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra til starfans, án tillits til þess hvort þeir veita heilbrigðis- þjónustu sem sjúklingur greiðir að fullu sjálfur eða sem greidd er af sjúkratryggingum samkvæmt samn- ingi við Tryggingastofnun ríkisins. Þessir aðilar eru allir skyldaðir til að vera með gilda vátryggingu hjá vátryggingarfélagi en þó með þeirri undantekningu að ríkisfyrirtækin eru undanþegin. Skylda sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna til að vera með sjúklingatryggingar nær til þess sem þeir gera í atvinnustarfsemi sinni. Það þýðir að þær tryggingar ná ekki til athafna lækna utan atvinnu- starfsemi þeirra. Má sem dæmi nefna að ef læknir er kallaður til í leikhúsi vegna aðsvifs leikhússgests eða ef læknir kemur sem almennur borgari íýrstur á slys- stað og veitir læknishjálp þá myndu afleiðingar hugs- anlegra mistaka hans vera vegnar eftir almennu sak- arreglunni sem minnst var á í inngangskafla, en ekki Læknar og lög Læknar hafa í vaxandi mæli orðið þess varir að um starfsemi þeirra gilda ýmis lög, sum ný en önnur eldri. Því varð það úr að Læknablaðið leitaði til fram- kvæmdastjóra Læknafélags íslands eflir aðstoð við að fjalla um lagalegan ramma læknisstarfsins. Verða birtir um það pistlar hér og í næstu blöðum eftir því sem tilefni gefst til. í fyrstu pistlunum sem birtast verður einkum fjallað um tvö svið sem snerta lækna í daglegum störfum. Annars vegar tryggingavernd þeirra í starfi, svo sem gagnvart mistökum eða óánægju sjúklinga með störf þeirra. Hins vegar er það vottorðagjöf eða fagleg umsögn fyrir dómi þegar dómstól- ar eða þeir sem aðild eiga að dómsmálum leita eftir sérfræðiaðstoð lækna. Meginspurning þessara pistla verður: Hver er réttarstaða lækna? Læknablaðið biður lækna og aðra sem hafa hugmyndir um umfjöllunar- efni af þessum toga að koma þeim á framfæri við blaðið. þeirri mælistiku sem lögin um sjúklingatryggingar setja. Sömu sjónarmið myndu væntanlega eiga við ef læknir veitir skyldmenni sínu læknisþjónustu án þess að um lið í atvinnustarfsemi hans sé að ræða. Endurkröfuréttur tryggingafélaga á hendur læknum I 8. gr. laganna er kveðið á um endurkröfurétt trygg- ingafélaga. Þar kemur fram að ekki verður komið fram endurkröfu á hendur bótaskyldum aðila nema hann hafi valdið tjóni af ásetningi. Með þessu er vikið frá almennum réttarreglum. Meginástæða þess er til- greind sú að hugsanlega gæti ótti heilbrigðisstarfs- manna við skaðabótakröfur í einhverjum tilvikum spillt eða tafið fyrir rannsókn á orsökum tjóns. Skynsamlegar reglur? Með þessum nýju lögum var tilgangurinn m.a. sá að auðvelda tjónþolum að fá bætur. Rök fyrir reglunum hafa verið þau að vegna sönnunarvandkvæða sé um sanngimismál að tefla, öflun vitneskju um það sem betur megi fara muni verða auðveldari, draga muni úr fjölda bótamála fyrir dómstólum o.fl. Rökin gegn reglunum hafa m.a. verið nefnd þau að á öðrum svið- um mannlegs lífs þar sem tjónþolar eiga ekki kost á sérstökum bótaúrræðum á borð við sjúklingatrygg- ingu eða slysatryggingu ættu sambærilegar reglur að gilda. T.d. hefur verið bent á að ekki séu rök til þess að menn sem hljóta örorku vegna áfalla í kjölfar læknismeðferðar öðlist mun víðtækari bótarétt en þeir sem orðið hafa fyrir sambærilegum örkumlum af völdum slyss eða sjúkdóms. Þá hefur einnig verið bent á kostnaðarauka sem fylgja sjúklingatrygging- um. í umsögn Læknafélags íslands um frumvarpið á sínum tíma var bent á ýmsa vankanta þess. M.a. var bent á mikla mismunun milli lækna sem vinna sem Læknablaðið 2003/89 347

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.