Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 64

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR & LÖG launþegar og þeirra sem vinna sjálfstætt. Sjálfstætt starfandi læknar bera allan kostnað af tryggingunni meðan hinir vinna í skjóli ábyrgðar vinnuveitandans. Þótt áhrif þessarar mismununar séu sem stendur ekki endilega mikil kunna þau síðar að hafa mikil áhrif. I þættinum 60 mínútur sem sýndur var á Stöð 2 sunnudagskvöldið 16. mars sl. kom fram að banda- rískir læknar eru í æ meira mæli farnir að velja sér sér- greinar þar sem hættan á læknamistökum er lítil. Ástæðan er sú að iðgjöld þeirra lækna sem stunda sérgreinar þar sem áhættan er meiri hefur á fáum ár- um margfaldast og er nú svo komið að rekstur margra þeirra stendur ekki undir kostnaði. Þessi þró- un hefur leitt til þess að farið er að bera á alvarlegum skorti lækna í þeim sérgreinum þar sem áhættan er talin meiri. Hefur þetta vandamál leitt til þess að í sumum ríkjum Bandaríkjanna hefur hámarksfjárhæð bóta verið lögfest og Bandaríkjaforseti hefur beitt sér fyrir að svo verði gert víðar í því skyni að snúa þeirri þróun við sem byrjuð er. Til að sporna strax við tilhneigingu til óæskilegrar þróunar hér á landi er nauðsynlegt að gera lækna jafnsetta hvað varðar iðgjaldagreiðslur og gera þeim sem sjálfir þurfa að kaupa sér tryggingar kleift að innheimta gjöldin af þeim sem eiga að njóta ávaxt- anna af tryggingunum - þ.e. viðskiptavinunum. Islendingar greiða í heild 40-60% hærra verð fyrir lyf en nágrannaþjóðir Ólafur Ólafsson Höfundur er fyrrverandi landlæknir. Miklar umræður hafa verið um dýrleika lyfja á ís- landi í samanburði við nágrannaþjóðirnar. Lítið gagn er að því að tala um einstök lyf til samanburðar eins og gert hefur verið. Menn leita langt yfir skammt. Ná- kvæmar upplýsingar hafa lengi verið til um heildar- sölu lyfja og smásöluverð þeirra í tölfræðihandbók- um Norðurlanda sem koma út árlega. Hér á eftir fylgja slíkar upplýsingar frá 1999. Lyfjasala á Norðurlðndunum 1999 Lyfjasala mæld í evrum á íbúa Lyfjasala í dagsskömmtun á 1000 íbúa ísland 429 880 Danmörk 269 900 Finnland 288 1050 Noregur 290 950 Svíþjóö 299 1150 Health statistics in the Nordic countries 1999. Rétt er að geta þess að lyfjaverslanir á íslandi kaupa lyf á rúmlega 10% hærra verði á pakkninguna en lyfjaverslanir á hinum Norðurlöndunum. Lyfja- fyrirtækin flagga oft þessum tölum sem segja þó að- eins hálfan sannleikann. Á íslandi er selt minnsta af lyfjum en smásöluverð er 40-60% hærra en meðal hinna Norðurlandaþjóð- anna þegar á heildina er litið. Svipaðar tölur komu fram á árunum 1983-1998 sbr. sömu heimildir og í Fylgiriti landlæknis 1988 nr. 4. Við nánari athugun kemur í ljós að neysla geð-, róandi-, svefn- og sýkla- lyfja er einna hæst á Islandi, en neysla annarra teg- unda lyfja er einna minnst svo að heildarneysla er minnst hér á landi. Aðalorsökin er að heildsölu- og smásöluálagning er langhæst hér á íslandi. Menn geta kynnt sér þessar tölur betur í norrænum tölfræðibók- um sem koma út árlega, en að þessum samanburði hefur verið unnið í áratugi. Helstu leiðir til þess að lækka verð er að lækka heild- og smásöluálagninguna. Hæg eru heimatökin því nú eru það aðallega tveir aðilar sem sjá um smá- söluna. Freista þarf þess að taka þátt í útboðum með nágrannaþjóðum eins og Landsspítalamenn hafa bent á. Ennfremur mætti heilbrigðisráðherra huga betur að óskráðum lyfjum sem falla ekki undir verðlagseft- irlit. En ljóst er af þessari samantekt að lyf eru úr hófi dýrari hér á landi í samanburði við nágrannalönd og kemur verst niður á veiku fólki, öryrkjum og öldruð- um. Lyfjafyrirtæki hafa hingað til ekki getað hnekkt þessum útreikningum en falið sig á bak við alls óskyldar upplýsingar. 348 Læknablaðið 2003/89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.