Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 67

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 154 Miltisbrandur Martha Hjálmarsdóttir, meinatæknir, vakti athygli á íslenska heitinu miltisbrandur og bað um að uppruni þess yrði skoðaður. Erlenda heitið, anthrax, er komið úr grísku og merkti upphaflega kol eða viðarkol. Benda má á heitið anthracosis, sem notað er um kolalitun lungna eftir langvarandi reykmengun og hefur sama uppruna. Heitið anthrax er einnig notað um vissa tegund af drepkýli, sem á latínu nefnist carbunculus, en latneska orðið merkir lítill kola- moli. Skýringin er vafalaust sú að það form sjúk- dómsins sem fram kemur í húð manna, cutaneous anthrax. einkennist af drepkýli sem síðar verður að sári með kolsvörtu hrúðri. Önnur helstu form sjúkdómsins stafa af sýkingu í meltingarvegi, gastrointcstinal anthrax, öndunarvegi. inhalatio- nal anthrax. eða heilahimnum. meningeal antrax. Það eru eiturefni sýkilsins, Bacillus anthracis, sem valda bjúg, blæðingum og vefjadrepi. Sjúkdómurinn berst til manna frá sýktum dýr- um (hrossum, nautgripum og sauðfé), einkum til þeirra sem meðhöndla afurðir þeirra eða úrgang. Hnitmiðaða sjúkrasögu má finna í bókinni Hjúkr- un sjúkra frá 1923 eftir Steingrím Matthíasson, héraðslækni á Akureyri: Karl skar kú sína, sem drepist hafði úr miltisbrandi. Lœknir bannaði hon- um að hirða kjötið. Hann óhlýðnaðist, sauð sér til matar, sýktist og dó. Sagt er að bólga og drep komi fram í milti dýr- anna og af því er fyrri orðhlutinn vafalítið dreginn. Síðari hlutinn, brandur. merkir samkvæmt Is- lenskri orðabók Eddu: 1 eldur, logi 2 (logandi) skíði, eldiviður 3 skáld 4 svœðið framan við hlóðir 5 sverð, sverðsblað. Líklegt má telja að hálfbrunn- inn og kolsvartur lurkur geti gefið hina sjónrænu ímynd drepsins. Önnur heiti Leitað var í Orðabók Háskólans og þar kemur fram að sjúkdómurinn var einnig nefndur miltis- bruni, miltisdrep, miltisbráðdauði, pest, bráðapest eða skinnapest. Benda má á að orðið bruni var á fyrri öldum oft notað um sótthita og að drep var einnig nefnt kolbrandur. Við leitina komu í ljós heitin miltisveiki og miltissýki. sem stundum voru notuð um ímyndunar- veiki, hypochondria. hjá karlmönnum á svipaðan hátt og heitið móðursýki, hysteria, hjá konum. Forvitnilegt væri að fá upplýst hvernig miltið teng- ist þeirri veiki. Af erlendum samheitum má nefna cacantrax, charbon (Fr), carbuncular fever, milzbrand (Þ), splenic apoplexy og splenic fever. Islensku heitin draga sýnilega nokkurn dám af þeim. Skemmtilegt sögulegt yfirlit um 100 ára feril sjúkdómsins á Islandi má finna í grein eftir Pál Agnar Pálsson, dýralækni, á bls. 545 í Bók Davíðs frá Háskóla- útgáfunni 1996. Pólitísk einkavæðing Þó ekki hafi verið ætlunin að leggja íðorðapistlana undir pólitíska umræðu verður ekki hjá því komist að hnýta lítils háttar við það sem áður var sagt. Umræðan í tilefni af bréfi Ólafs Arnar (Lbl 2003; 89: 157) átti að gefa til kynna að orðið einkavæð- ing merkti einfaldlega það að ríkið hætti rekstri tiltekinnar starfsemi og að einkaaðilar taki við honum. Ríkið getur eftir sem áður kostað rekstur- inn og séð til þess, með lögum, reglugerðum eða samningum, að einstaklingar fái viðeigandi þjónustu gegn sömu greiðsluhlutdeild og áður eða jafnvel án greiðslu. Dæmi Sigurbjörns Sveinssonar í síð- asta blaði (Lbl 2003; 89: 263) sýna að auðvelt er að flækja þetta einfalda mál og það gerir hann með því að gefa í skyn að réttur einstaklinga til að fá heilbrigðisþjónustu verði fyrir borð borinn í einka- væddu kerfi. Skyldi einkavæðing bankakerfisins tákna að einstaklingar eigi ekki lengur rétt á bankaþjónustu? Jafnframt virðist hann hafa það innifalið að einstaklingarnir greiði ekki neitt fyrir þjónustuna nema í því kerfi sem einkavætt er „til beggja enda". Vandamálið við hina pólitísku umræðu um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu er einmitt oft það að menn nota orð með víðfeðma merkingu og ákveða hver fyrir sig hvað er innifalið í hugtakinu. Orðið sjálft segir ekki til um slíkt. Um hugtökin að baki orðunum þarf því að vera samkomulag ef fag- leg umræða á að skila árangri. Vísvitandi hugtaka- skekking er að auki eitt af einkennum hinnar pólitísku umræðu. Hvað merkir til dæmis „einkavæðing heilsu- gæslunnar"? Merkir það eingöngu að rekstur heilsugæslustöðva verði falinn einkaaðilum, að ríkið greiði kostnaðinn og að laun starfsmanna og greiðslur sjúklinga verði óbreyttar? Merkir það hugsanlega að ríkið hætti öllum afskiptum af heilsugæslu, selji stöðvarnar einkaaðilum, leggi niður sjúkratryggingar og hætti að hlutast til um hvað einstaklingar greiða fyrir þjónustuna? Það er ekki ljóst af orðunum einum, en getur skipt megin- máli í heitri umræðu. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Læknablaðið 2003/89 351
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.