Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2003, Side 80

Læknablaðið - 15.04.2003, Side 80
NÁMSKEIÐ / STYRKIR Heilbrigðisþjónusta í dreifbýli Á AKUREYRI Háskólinn á Akureyri og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri bjóða eftirfarandi sérhæfð námskeið fyrir heilsugæslu- lækna. Hagnýt efni í lyflæknisfræði í umsjón Jóns Þórs Sverrissonar, sérfræðings í lyflæknis- og hjartasjúkdóm- um verður haldið 11. apríl kl. 13:10-16:20 og 12. apríl kl. 9:15-11:40. Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar um hjartsláttarónot, lyfjameðferð kransæðasjúkdóma og efri loftvegssýkinga, langvinna lungnateppu, nýjungar í greiningu og meðferð beinþynningar, höfuðverk, byrjunareinkenni dementiu og skimun fyrir ristilkrabba- meini. Námskeiðsgjald er 15.000 kr. Meðhöndlun og flutningur slasaðra í umsjón Helgu Magnúsdóttur, svæfingalæknis og Hildigunnar Svav- arsdóttur, skólastjóra sjúkraflutningaskólans verður haldið 9. og 10. maí frá kl. 9:00-17:00. Markmið nám- skeiðsins er að auka hæfni þátttakenda í bráðameðferð á vettvangi og gæði meðferðar slasaðra og bráð- veikra. Fjallað verður um mat og meðhöndlun áverka og bráðveikra. Kennd undirstöðuatriði í hvernig búa á sjúkling til flutnings. Fyrirlestrar og verklegar æfingar. Lesefni: Basic Trauma Life Support (2000) 4. útg. Námskeiðsgjald er 37.500 kr. Námskeiðin verða haldin á Akureyri og er í boði milliganga um gistingu og afþreyingu fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar og skráning er í síma 463 0566, netfang emh@unak.is og á heimasíðu HA www.unak.is (símenntun). ÁSKÓLINN NCU Styrkir Norrænu krabbameinssamtakanna Norrænu Krabbameinssamtökin, (NCU) samtök norrænu krabbameinsfélaganna auglýsa styrki fyrir árið 2004. Þeim er ætlað að styðja og örva samstarf í krabbameinsrannsóknum á Norðurlöndunum (samstarf tveggja landa að lágmarki). Rannsóknaverkefnin verða að vera á krabbameinssviði, vera sérstaklega vel fallin til þess að fram- kvæma þau einmitt á Norðurlöndum og áhrif samstarfsins þurfa að vera gagnvirk. Fjármögnun slíkra samstarfsverkefna takmarkast við 1) faraldsfræðilegar rannsóknir þar sem notaðar eru krabba- meinsskrár viðkomandi lands, 2) klínískar rannsóknir, 3) skipulagningu slíkra rannsókna og forrannsóknaverkefni (t.d. innan undirbúningshópa á Norðurlöndum). Að hámarki munu þrjú verkefni fá stærstu styrkina, um það bil 180.000 evrur árhvert. Auk þess verður minna fjár- magni veitt til undirbúnings- og tilraunaverkefna. Styrkir eru veittir til eins árs. Senda þarf nýja umsókn um fram- haldsstyrk til verkefnisins. Mat umsókna er í höndum Norrænu vísindanefndarinnar. Umsókn, rituð á ensku, skal innihalda • umsóknareyðublað • kostnaóaráætlun verkefnis • verkefnalýsingu (hámark 10 A4 blaðsíður) • stutta starfsferilslýsingu (1-2 A4 blaðsíður) • meðmæli • lista yfir birtar fræðigreinar • undirritaða yfirlýsingu um samstarf • samþykki vísindasiðanefndar á verkefninu (þar sem það á við) Umsókn skal senda í einu frumeintaki og sjö afritum til: NCU-Secretariat C/o Cancer Society of FinlandLiisankatu 21 B, 00170 Helsinki, Finland. Tel +358 9 1353 3238, Fax +358 9 135 1093 ncu@cancer.fi Umsóknarfrestur er til 15. maí, 2003. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Krabbameinsfélags íslands, www.krabb.is og frekari upplýsingar hjá Valgerði Jóhannesdóttur, fjármálastjóra KÍ í s. 540-1900. 364 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.