Læknablaðið - 15.07.2003, Page 40
FRÆÐIGREINAR / CAG-A MÓTEFNAVAKI
dóma sem sýkillinn tengist eins og sárasjúkdómum og
magakrabbameini en flest bendir til að þessir sjúk-
dómar hverfi að mestu á næstu 10-20 árum (5).
Þekkingu á samspili 77. pylori og magasjúkdóma
hefur fleygt mjög fram á síðustu árum en samt er enn-
þá margt á huldu um þetta samband. Það er ekki að
fullu Ijóst hvers vegna aðeins 10-15% þeirra sem
sýkjast fá sár. Sú kenning hefur verið sett fram að /7.
pylorí hafi verið meinlaus hluti af örveruflóru mag-
ans eins og hún var lengst af á þróunarskeiði manns-
ins. Það er einungis á 20. öld sem H. pylori kemur
fram sem meinvaldur þegar örveruflóran breytist eða
hverfur í þróuðum löndum vegna aukins hreinlætis
og /7. pylori situr einn eftir í magaslímhúð (6). Far-
aldsfræði sárasjúkdóma í maga á íslandi kemur mjög
vel heim við þessa kenningu (7). H. pylori er einnig
megin orsakavaldur magakrabbameins sem er næst
algengasta krabbameinið á heimsvísu í dag (eftir
lungnakrabbameini) og kemur heim við útbreiðslu
H. pylorí (8). Nýgengi magakrabbameins hefur minnk-
að í þróuðum löndum í takt við að 77 pylori er sjald-
séðari. Þrátt fyrir þessa sterku faraldsfræðilegu fylgni
er margt óljóst varðandi það hvernig H. pylori veldur
magakrabbameini en einungis örlítill hluti þeirra sem
sýkjast fá krabbamein. Tveir þættir eru taldir spila
þar saman. Meinvirkni H. pylori og erfðaþættir
mannsins. Meinvirkni 77. pylori ræðst mest af Cag-A
sem er 120 kD mótefnavaki tjáður á yfirborði bakter-
íunnar og finnst hjá um 50% 77. pylorí stofna (8).
Tíðni Cag-A hjá þeim stofnum sem tengjast skeifu-
garnarsári eða magakrabbameini er um 80-90% (9).
Engar rannsóknir eru til um tíðni Cag-A í íslensk-
um 77 pylorí stofnum en þekking á því er nauðsynleg
til að skilja breytta faraldsfræði magasjúkdóma.
Sterkar vísbendingar eru um að sýking með Cag-A
jákvæðum 77. pylorí stofnum sé verndandi fyrir vél-
indabakflæði en tíðni þess hefur aukist mjög á sama
tíma og 77. pylori og sérstaklega Cag-A jákvæðir
stofnar eru að hverfa (10). Besta aðferðin til að fá
rétta mynd af tíðni Cag-A væri að rannsaka H. pylori
stofna fyrir þann tíma sem uppræting var almennt
útfærð, eða fyrir 1993. Ekkert safn er til af H. pylori
stofnum en hins vegar eru til mælingar á serum sýn-
um frá sjúklingum með skeifugarnarsár sem tekin
voru á árunum 1993-96.
Markmið: Að kanna algengi mótefna gegn 77. pylorí
frá íslenskum sjúklingum með skeifugarnarsár og
algengi Cag-A mótefna hjá sömu sjúklingum.
Efniviöur og aðferðir
Skoðuð voru gögn frá 62 sjúklingum með skeifugarn-
arsár sem voru speglaðir og greindir á Landspítala á
árunum 1993-1996. Serum sýni voru tekin í þeim til-
gangi að greina mótefni fyrir 77. pylori og fylgjast
með upprætingu. f hópnum voru 33 karlar og 29 kon-
ur á aldrinum 24-81 árs, miðgildi 50 ár. Enginn sjúk-
linganna hafði fengið upprætingar meðferð gegn 77.
pylori áður en sýnin voru tekin. Rannsóknin var ekki
framskyggn og upplýsingar um lyfjanotkun voru því
ekki skipulega skráðar. Notkun á aspiríni var skráð
hjá tveim sjúklingum og notkun gigtarlyfja hjá tveim.
Notaðar voru tvær aðferðir við greiningu mótefni
til að fá öruggari niðurstöður og til að fá betri saman-
burð við aðrar rannsóknir. Ennfremur til að meta
notagildi aðferðanna. Western blot var notað til að
greina 77. pylori mótefni og tíðni Cag-A mótefna var
sérstaklega skoðuð. IgG, IgA og IgM immunoglobu-
lin voru mæld með óbeinni ELISA aðferð.
Þegar Westem blot tækni er notuð með heil-
fmmublöndu hefur fengist 96% næmi og 94% sér-
tæki (11) þar sem hvert mótefni gefur sérstakt band
og greiningin byggist á mótefnum sem vitað er að
bindast ekki öðrum sýklum (12, 13). Mörg mismun-
andi bönd koma fram en þau bönd sem eru talin sér-
tæk fyrir 77. pylori eru bönd sem eru 19- 36 kD á
þyngd og 120 kD band (Cag-A mótefnavaki). Til að
sýni teljist jákvætt fyrir 77. pylori verður það að vera
jákvætt fyrir öðru þessara.
Fjórar tegundir mótefnavaka eru notaðar til serm-
ismælingar með ELISA aðferð. Þær eru búnar til úr
heilum sýklum eða grófum (sonicate), hálfgrófum
eða hreinum mótefnavökum. Margir 77. pylori mót-
efnavakar eru breytilegir milli stofna þannig að not á
hreinum mótefnavökum gefur oft lítið næmi. Grófir
mótefnavakar hafa marga mótefnavaka sem sumir
bindast öðrum Gram-neikvæðum sýklum og gefa
þannig falsk-jákvæð svör og lítið sértæki (14). Þess
vegna er nauðsynlegt að nota blöndur af 77. pylori
mótefnavökum þegar mælingar eru gerðar með
ELISA (14, 15). í þessari rannsókn var notast við
blöndu hitastöðugra mótefnavaka og lágmólekúlar
blöndur (framleitt á Rigshospitalet og staðlað á
dönskum sjúklingum) (16,17).
Niðurstöður
Við mótefnagreiningu með Western blot reyndust 54
af 62 (87,1%) sjúklingum vera jákvæðir fyrir 77. pyl-
orí sértækum mótefnavökum og af þessum 54 voru
53 (98,1%) jákvæð fyrir Cag-A. Einn sjúklingur sem
var 77. pylori neikvæður tók gigtarlyf (naproxen).
Af sjúklingunum 62 höfðu 46 (74,2%) jákvæð svör
gagnvart mótefnavökum 19-36 kDs. Til að mæla IgG
mótefni var stuðst við þrjú mismunandi próf: HS
(heat stable) mótefnavaki gaf 67,7% jákvætt svar,
LMW (low-molecular weight) mótefnavaki gaf
25,8% og heilfrumu-mótefnavaki 84,1%.
Umræða
Mótefnamælingar til greiningar á 77. pylorí hafa tölu-
vert notagildi, en Western blot er bæði næmara og
596 Læknablaðið 2003/89