Læknablaðið - 15.07.2003, Side 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPSKT SAMSTARF
Vorfundur UEMO 2003
Katrín Fjeldsted
Steinunn
Jónsdóttir
Höfundar eru heimilislæknar.
Vorfundur Evrópusamtaka heimilislækna, UEMO,
var haldinn í Stokkhólmi í lok maí. Tvisvar á ári eru
haldnir fundir á vegum samtakanna og þá fundi hafa
Islendingar sótt frá árinu 1993, fyrst sem áheyrnarað-
ilar en frá 1996 með fullri aðild. Sigurbjöm Sveinsson
formaður LÍ og fyrrverandi formaður FÍH var aðal-
fulltrúi íslands hjá samtökunum til ársins 1999 er
Steinunn Jónsdóttir tók við. Katrín Fjeldsted hefur
setið flesta fundi UEMO síðan árið 1996 sem fulltrúi
FIH. Megináhersla Evrópusamtaka heimilislækna er
að fylgjast með og tryggja gæði þjálfunar og símennt-
unar heimilislækna í Evrópu, verja stöðu heimilis-
lækna í heilbrigðisþjónustunni, gæta siðlegra, vís-
indalegra, stéttarlegra, félagslegra og fjárhagslegra
hagsmuna evrópskra heimilislækna og frelsis þeirra
við störf. Ennfremur að koma skoðunum aðildarfé-
laganna og samþykktum félagsins á framfæri við rétt
yfirvöld og stofnanir auk þess að vinna með öðrum
hagsmunafélögum lækna.
Aðildarlönd UEMO eru nú 22 og sóttu Slóvakar
síðast um inngöngu. Frá janúar 2002 hafa Svíar verið
í forsvari og er Dr. Christina Fabian nú forseti
UEMO.
Á fundinum í Stokkhólmi voru ýmis málefni sem
viðkoma heimilislæknum tekin fyrir. í ársskýrslu
sinni lagði Dr. Fabian áherslu á mikilvægt hlutverk
heimilislækna í heilbrigðisþjónustunni. Hún undir-
strikaði gildi góðrar framhaldsmenntunar og fjöl-
breyttrar símenntunar þar sem lagður væri grund-
völlur að gæðum í starfi heimilislækna. Starf heimilis-
læknisins er mjög yfirgripsmikið, krefst þekkingar,
þjálfunar og ekki síst innsæis, þar sem gagnkvæmt
traust læknis og sjúklings er lykillinn að árangri. Þótt
heilbrigðiskerfi landanna séu skipulögð með ólíkum
hætti er kjarni heimilislækninga alls staðar sá sami.
Hlúa þarf að starfsgreininni, bæta nýliðun, menntun
og starfsaðstæður til þess að tryggja gott aðgengi
sjúklinga og ánægju læknanna í starfi.
Svíar hafa það á stefnuskrá sinni að auka sam-
skipti og samvinnu UEMO við önnur samtök lækna á
á Evrópu- og alþjóðavettvangi. Tilgangurinn er að
samnýta krafta enda eru mörg málefni sameiginleg
hagsmunamál allra lækna. Til þess að auka líkur á
slíkri samvinnu fékk stjórnin á þessum vorfundi um-
boð til þess að vinna að flutningi varanlegrar skrif-
stofu UEMO til Brussel. Stjórn Fastanefndar lækna í
Evrópu (CPME) hefur lýst yfir vilja sínum til að veita
UEMO aðstoð á ýmsum sviðum. CPME hefur lengur
haft tengsl inn í Evrópuráðið og nefndir á vegum
Evrópusambandsins og er því mikilvægt að eiga þá
að. Forseti CPME er Reiner Brettenthaler og er
hann heimilislæknir.
Vorfundur hófst með ræðu heilbrigðisráðherra
Svía þar sem hann rakti stefnu og helstu viðfangsefni
í sænsku heilbrigðiskerfi. Þá var flutt mjög áhugaverð
kynning á fyrstu samevrópsku rannsókninni (17 lönd
tóku þátt, þó ekki ísland) um heilsufar karla í Evrópu
(„The European Men’s Health Forum and the First
Report on Men's Health"). Það er vel þekkt og stað-
fest að karlar leita síður eftir heilbrigðisþjónustu en
konur, einkum á fyrri æviskeiðum. Samtök þessi vilja
vekja lækna og almenning til umhugsunar um þá
staðreynd í von um að gripið sé til forvarna. Til frek-
ari glöggvunar skal bent á vefsíðu samtakanna:
www.emhf.org
Dr. Klas Winell átti næsta innlegg sem fjallaði um
stöðu tóbaksvarna í alþjóðlegu samhengi. Hann er í
forsvari fyrir tóbaksvarnanefnd á vegum WHO. Hlut-
verk heimilislækna í baráttunni við tóbaksvandann er
augljóst. Hann lýsti ánægju sinni með það að UEMO
hafi tekið ákveðna afstöðu í tóbaksvörnum. Starfs-
hópur UEMO í forvarnarmálum, þar sem Steinunn
Jónsdóttir hefur verið formaður, lagði fram stefnu-
mörkun samtakanna í tóbaksvörnum og var hún
samþykkt samhljóða. Þessi nefnd fékk einnig sam-
þykkta almenna stefnu UEMO í forvörnum á síðasta
haustfundi í Flórens. Hefur hún verið kynnt öðrum
læknasamtökum, meðal annars CPME, sem vilja
gjarnan eiga samvinnu við UEMO í þessum mála-
flokki. Nánari upplýsingar um skipulag og stefnu
UEMO má nálgast á vefsíðunni: www.uemo.org
Næst á dagskrá var vinna í starfshópum. Fjallað
var um eftirtalin málefni og niðurstaða hópvinnunn-
ar kynnt í lok fundar:
a) Jöfnun tækifæra til starfa í heimilislækningum
b) Gæðastjórnun
c) Viðhalds- og símenntun
d) Framhaldsnám í heimilislækningum
e) Fjarlækningar og upplýsingatækni
f) Forvarnir í heilsugæslu
Islendingar hafa tekið virkan þátt í starfshópum
og haft áhrif þar á umræðu og stefnumörkun í þeim
hópum sem þeir hafa verið þátttakendur.
Síðari fundardagurinn snerist fyrst og fremst um
innri málefni samtakanna. Vaxandi rekstrarkostnað-
ur er áhyggjuefni og voru lagðar fram tillögur í sparn-
aðarskyni. Túlkaþjónusta hefur átt drjúgan þátt í
þessum vanda og var tekin ákvörðun um að draga
verulega úr henni þannig að enska verður aðaltungu-
málið og gerðar verða kröfur um að meðlimir skilji
ensku til hlítar þótt þeir megi tjá sig á eigin tungu
(ensku, þýsku, frönsku, spænsku og ítölsku).
Mikilvægur þáttur í að miðla af reynslu og fá hug-
624 Læknablaðið 2003/89