Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2004, Side 8

Læknablaðið - 15.04.2004, Side 8
RITST JÚRIUARGREiniAR Central Register of Controlled Trials eða CENTRAL (CCTR). Nánari umfjöllun um CDSR eða CENTRAL er of langt mál en hollt er hverjum sem notar til dæm- is MEDLINE eða EMBASE að skilja þátt Cochrane samtakanna í að gera okkur kleift að finna rannsókn- ir eftir rannsóknartegund. Cochrane samtökin áttu mestan þátt í að farið var yfir óhemju fjölda rann- sókna á tölvutækan og handvirkan hátt til að finna um þrjú hundruð þúsund rannsóknir sem voru endur- merktar og flokkaðar sem íhlutunarrannsóknir í við- komandi gagnagrunnum. Allar þessar rannsóknir eru nú í CENTRAL. A heimasíðu samtakanna www.cochrane.org er að finna óhemju magn af fróðleik auk bókasafnsins og má nefna að handbók samtakanna um gerð yfirlita er um leið haldgóð kennslubók í aðferðafræði og töl- fræði (4). Meginmarkmið samtakanna er einfaldlega að gera kerfisbundin yfirlit af bestu gerð, um sem fjölbreyti- legust efni, aðgengileg sem flestum og stuðla þannig að notkun bestu upplýsinga við ákvarðanir í heil- brigðisþjónustu. Pessi vinna á að nýtast bæði við ákvarðanatökur í daglegri vinnu þar sem samtvinnast annars vegar besta vísindalega þekking og hins vegar reynsla og dómgreind læknis og sjúklings en einnig á stjórnunar- stigi í heilbrigðiskerfinu þar sem ákvarðanir fyrir hópa eða heilar þjóðir eru teknar og eiga að byggja á gagnreyndri læknisfræði. Þessum verkefnum þarf að sinna því það er í raun enginn annar kostur! Heimildir 1. Cochrane AL. Effectiveness and Efficiency. Random Reflec- tions on Health Services. London: Nuffield Provincial Hospi- tals Trust, 1972. (Reprinted in 1989 in association with the BMJ.) 2. Cochrane AL. 1931-1971: a critical review, with particular refe- rence to the medical profession. In: Medicines for the year 2000. London: Office of Health Economics, 1979,1-11. 3. Chalmers I, Altman D (eds). Systematic reviews. London: BMJ Publishing Group, 2001. 4. Clarke M, Oxman AD, editors. Cochrane Reviewers’ Hand- book 4.2.0 [updated March 2003]. www.cochrane.dk/cochrane/ handbook/handbook.htm 5. Mulrow CD. The medical review article: state of the science. Ann Int Med 1987; 106: 485-8. 6. Antman EM, Lau J, Kupelnick B, Mosteller F, Chalmers TC. A comparison of results of meta-analyses of randomized control trials and recommendations of clinical experts. JAMA 1992; 268:240-8. 288 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.