Læknablaðið - 15.04.2004, Page 25
FRÆÐIGREINAR / STARFSNÁM í HEILSUGÆSLU
Starfsnám unglækna í heilsugæslu
- gæði og skipulag
Alma Eir
Svavarsdóttir1
SÉRFRÆÐINGUR í HEIM-
ILISLÆKNINGUM
Ólafur H. Oddsson2
SÉRHIÆÐINGUR í HEIMIIJS-
OG EMBÆTTISLÆKNINGUM
Jóhann Ág.
Sigurðsson'
SÉRFRÆÐINGUR
í HEIMIIJSIÆKNINGUM
'Heilsugæslustöðin Efstaleiti
Reykjavík, 2Héraðslæknirinn á
Norðurlandi, ’Heimilislæknis-
fræði Háskóla íslands,
Sólvangi, Hafnarfirði.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Alma Eir Svavarsdóttir,
Heilsugæslunni, Efstaleiti 3,
103 Reykjavík.
Sími: 585 1800, fax: 585 1801.
alma. e.sva varsdottir@efsta. h r. is
Lykilorð: kandídatsár,
unglœknar, starfsþjálfun,
heimilislœkningar,
heilsugœsla.
Ágrip
Markmið: Árið 2000 tók gildi ný reglugerð þar sem
kveðið var á um þriggja mánaða dvöl á heilsugæslu-
stöð sem hluta af starfsnámi unglækna á kandídats-
ári. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna við-
horf unglækna til starfsnáms á heilsugæslustöð, eink-
um hvað varðar skipulag námsins, handleiðslu og
kennslugetu stöðvanna.
Aðferðir: Árið 2002 var sendur út spurningalisti til
allra lækna (alls 65) sem höfðu verið í starfsnámi á
heilsugæslustöð á árunum 2000-2001. Ekki náðist í
fimm lækna og svör bárust frá 38 af þeim 60 (63%)
sem til náðist (58% af markhópnum).
Niðurstöður: Unglæknar fengu starfsþjálfun í almenn-
um heilsugæslustörfum auk formlegrar kennslu. Að-
gengi eða aðstoð frá leiðbeinandi lækni fékkst í nær
öllum tilvikum innan 10 mínútna. Vaktir unglækna
um kvöld og helgar voru að jafnaði studdar með bak-
vakt reynds læknis í 92% tilvika.
Ályktanir: Niðurstöður benda til þess að skipulag
námsins sé gott, verkefni fjölbreytt, handleiðsla og
starfsaðstaða viðunandi og almenn ánægja með nám-
ið. Niðurstöður gefa nokkrar vísbendingar um það
sem betur má fara. Frekari rannsókna er þörf á því
hvort unglæknar nái settum markmiðum varðandi
kunnáttu, viðhorf og færni á viðfangsefnum innan
heilsugæslunnar.
Inngangur
Starfsþjálfun unglækna á kandídatsári að loknu há-
skólaprófi er mikilvægt skref í þá veru að þroska
sjálfstæða hugsun, færni og viðhorf unglækna áður en
þeir fá fullgilt lækningaleyfi. Eftir að sjúkrahúsum óx
ásmegin í byrjun tuttugustu aldar færðist starfsþjálf-
un unglækna fljótt inn fyrir veggi þeirra stofnana.
Dvöl í héraði hefur einnig verið snar þáttur af þessari
þjálfun og margir eldri kollegar fá rómantískan
glampa í augun þegar þeir minnast veru sinnar í „hér-
aði“. í eldri bókmenntum um mannlíf í héraði og
störf héraðslækna er ljóst að þetta hefur verið við-
burðaríkur tími (1-4).
Snemma voru gerðar fræðilegar athuganir á lækn-
isstörfum í héruðum landsins (5-7). Með Egilsstaða-
rannsókninni lögðu Guðmundur Sigurðsson og fé-
lagar grunninn að vísindalegri nálgun á viðfangsefn-
um heilsugæslunnar með því að hanna og koma á fót
samfelldri kerfisbundinni skráningu á öllum sam-
skiptum íbúa við heilsugæsluna (8). Þetta brautryðj-
ENBLISH SUMMflRY
Svavarsdóttir AE, Oddsson ÓH, Sigurðsson JÁ
Primary care training during internship - quality
and organization
Læknablaðið 2004; 90: 305-9
Aims: In 2000 a new regulation regarding medical
licensure came into effect requiring a three-month rotation
at a primary health care centre during internship. The aim
of this study was to explore the interns’ attitude towards
this experience, and particularly to find out how well the
training was organized, the supervision they received, and
the quality of teaching at the health care centres.
Methods: In 2002 a survey was mailed to all interns (a
total of 65) who had completed training at primary health
care centres during 2000 and 2001. Five interns were
unreachable and we obtained 38 replies (63% of those
reachable, and 58% of target population).
Ftesults: The interns received clinical training in providing
comprehensive services as well as formal teaching. If an
intern needed assistance with patient care he/she was
almost always able to obtain help within 10 minutes. In
92% of cases, experienced doctors were available for the
interns to consult with during off-duty emergencies.
Conclusions: Our results indicate that the current method
of teaching interns in the primary health care setting is of
good quality, the variety of work experience is positive,
and the work environment is satisfactory. Overall the
interns expressed satisfaction with their training. A few
areas were identified as needing improvement. Further
research is needed to assess whether the interns achieve
’their aims with regard to knowledge, attitude and skills in
family practice.
Key words: intemship, postgraduate training, family
practice, primary care.
Correspondence: Alma Eir Svavarsdóttir,
alma.e.svavarsdottihdefsta.hr.is
endastarf nýttist síðar til frekari rannsókna á þessu
sviði (9-11). Allar þessar rannsóknir staðfesta mjög
umfangsmikla læknisþjónustu í heilsugæslunni. Einn-
jg kemur glöggt fram í þessum rannsóknum að heilsu-
gæslan getur sinnt um 95% allra vandamála fólks
utan sjúkrahúsa og að megnið af þessum vandamál-
um er þess eðlis að þau sjást sjaldnast innan veggja
sjúkrahúsa (6,8, 9,11).
Saga starfsþjálfunar að loknu kandídatsprófi, eink-
um í héraði, er lærdómsrík fyrir margra hluta sakir.
Læknablaðið 2004/90 305