Læknablaðið - 15.04.2004, Page 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HAGDEILD LÆKNA
Verður hagdeild lækna stofnuð í haust?
Tvívegis á undanförnum misserum hefur Birna
Jónsdóttir gjaldkeri Læknafélags íslands viðrað þá
skoðun sína hér í blaðinu að félagið þurfi að koma sér
upp hagdeild. Slík deild gæti annast margvíslega út-
reikninga og úttektir, haldið saman upplýsingum um
heilbrigðismál og stutt við bakið á læknum, hvort
sem þeir eru að semja um kaup og kjör, móta stefnu
um heilbrigðismál eða stofna fyrirtæki. Nú eru horfur
á að Birnu verði að ósk sinni því starfshópur á vegum
félagsins leggur til að hagdeild lækna verði stofnuð
hið fyrsta.
Álit hópsins hefur verið birt á heimasíðu LI en
það er allítarlegt. Þar er gert ráð fyrir að hagdeild
læknasamtakanna skiptist í fjögur meginsvið. Eitt
þeirra væri að sinna kjaramálum lækna og aðstoða
samninganefndir félagsins. Annað væri að safna sam-
an upplýsingum um heilbrigðismál og heilbrigðishag-
fræði, svo sem hagtölum heilbrigðismála og kostnað-
argreiningu læknisverka, auk þess sem það annaðist
útgáfu- og kynningarmál. Þriðja sviðið gæti verið for-
vinna við stefnumótun læknasamtakanna í heilbrigð-
ismálum og það fjórða gæti veitt læknum eða hópum
lækna ráðgjöf við stofnun og rekstur fyrirtækja.
Illa settir með upplýsingar
Einn þeirra sem sátu í starfshópnum var Sigurður E.
Sigurðsson læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri en hann hefur nýlega tekið við formennsku í
samninganefnd LÍ fyrir sjúkrahúslækna. Hann sagði í
spjalli við Læknablaðið að skrif Bimu hefðu fengið
nýja merkingu í samningsgerð LR og heilbrigðisráðu-
neytisins vegna sérfræðilækna í vetur.
„Þá kom glöggt í ljóst hversu illa læknar voru sett-
ir með upplýsingar. Við vitum það sem fagmenn að
upplýsingar eru mikilvægar og það gengur ekki að
vera háður viðsemjanda sínum um þær. Eftir að
þeirri samningalotu lauk ákvað stjórn LÍ að setja
starfshópinn á laggirnar og nú vonum við að málin
gangi hratt og vel fyrir sig. Álit hópsins verður til um-
ræðu á formannafundi LI í apríl en lokaákvörðun
verður tekin á aðalfundi í haust,“ sagði Sigurður.
Hópurinn leggur til að ráðinn verði sérfræðingur á
sviði heilbrigðishagfræði til félagsins ekki seinna en í
haustbyrjun, jafnvel þegar í vor ef það þykir henta.
Er bent á það í álitsgerðinni að fyrstu heilsuhagfræð-
ingar sem menntast hjá Háskóla Islands verði að
vinna meistaraverkefni sín í sumar.
Sigurður sagði að ýmsir kostir hefðu verið ræddir,
svo sem að kaupa ráðgjöf þegar á þyrfti að halda.
„Niðurstaða okkar varð sú að það kæmi best út að
ráða manneskju í fast starf. Aðkeypt ráðgjöf gæti
reynst dýr og hún tryggir ekki að þekkingin héldist
innan félagsins á sama hátt og fastráðinn starfsmað- Þröstur
ur. Við höfum einn sérfræðing í vinnu sem er fram- Haraldsson
kvæmdastjórinn og með því að ráða annan til starfa
með honum styrkist starfsemin til muna.“
Útgjöld skila sér fljótt aftur
Ljóst er að stofnun hagdeildar kostar sitt en starfs-
hópurinn áætlar að árlegur kostnaður við rekstur
hennar sé 8,6 milljónir króna. Er það tillaga hópsins
að hugað verði að hækkun félagsgjalda til að standa
straum af þessum kostnaði.
„Við ræddum ýmsa möguleika á að selja þjónustu
svona deildar þegar fram í sækir. Það er til dæmis
spurning hver eigi að greiða fyrir ráðgjöf til fyrirtækja
lækna. Einnig mætti hugsa sér að hægt væri að gera
þjónustusamninga við opinbera aðila um að halda
utan um gagnabanka og þess háttar. Deildin verður
hins vegar að fá að vaxa og dafna og sanna sig áður en
farið er að huga að slíku.
Eg er hins vegar sannfærður um að læknar muni
fljótt sjá árangur af starfi hagdeildar. Líklegt má telja
að við verðum hennar fyrst vör í kjaramálunum og í
því að styrkja lækna og samtök þeirra sem ráðgjafa á
sviði heilbrigðismála. Deildin gæti orðið það bakland
sem okkur hefur skort. Við erum á því að þeim kostn-
aði sem fylgir stofnun deildarinar sé vel varið og að
hann eigi eftir að skila sér fljótt aftur. Ekki bara í
bættum kjörum lækna heldur fyrst og fremst í því að
gera okkur virkari í stefnumótun heilbrigðismála og
það er ekki lítils virði. Það tryggir okkur góða heil-
brigðisþjónustu,“ segir Sigurður E. Sigurðsson.
Eins og áður segir er búið að leggja álit starfshóps-
ins út á heimasíðu LÍ www.lis.is og þar er einnig Tillaga starfshóps að
spjallþráður um hagdeildina sem vert er að skoða. skipuriti hagdeildar LÍ.
Hagdeild lækna
Heilbrigðis-
mál
i
Hagtölur heil-
brigðismála
Kostnaðar-
greining
læknisverka
i
Heilbrigðishag-
fræði/nýjungar
i
Útgáfu- og
kynningarmál
Stefnu-
mótun sam-
taka lækna
í heilbrigöis-
málum
Ráðgjöf við
fyrirtæki
lækna og
einstaka
hópa þeirra
Læknablaðið 2004/90 319