Læknablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 40
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÁMSKEIÐ
Víðbrögð við bráðum vanda á vettvangi
- Bráðalæknar skipuleggja námskeið fyrir lækna
Þau bera hilartn og þung-
ann af námskeiðunum, frá
vinslri: Brynjólfur Mogen-
sen, Jón Baldursson, Hjalli
Már Björnsson og Kristín
Sigurðardóttir.
Þröstur
Haraldsson
Að undanförnu hefur hópur lækna staðið fyrir
námskeiðum sem ætluð eru læknum sem vilja vera
við því búnir að bregðast við bráðavanda. Lækna-
blaðið hitti að máli Hjalta Má Björnsson deildar-
lækni, en ásamt honum hafa þau Jón Baldursson og
Kristín Sigurðardóttir bráðalæknar haft veg og vanda
af námskeiðshaldinu og notið aðstoðar Brynjólfs
Mogensen, Viðars Magnússonar og fleiri.
„Fyrsta námskeiðið í bráðalækningum utan sjúkra-
húsa - kallað BLUS-námskeið - var haldið vorið
2003. Fram að því höfðu verið haldin sérhæfð
námskeið í rúman áratug í endurlífgun og slysavinnu.
Nýlega var einnig haldið fyrsta námskeiðið í bráða-
viðbrögðum barna á vegum Landspítala, en hingað til
hafa öll námskeiðin miðast við sjúkrahúsumhverfið. í
fyrravor settum við hins vegar saman í fyrsta skipti
eitt heildstætt námskeið þar sem læknar eru þjálfaðir
til að sinna öllum bráðavandamálum á vettvangi utan
sjúkrahúsa.
Fyrirmyndir að þessum námskeiðum höfum við
sótt til útlanda. Skotar halda til dæmis svona nám-
skeið á fimm dögum en við ákváðum í upphafi að
hafa það dálítið stífara og Ijúka því á þremur dögum.
Nú erum við í Ijósi fenginnar reynslu búin að lengja
það um einn dag. Námskeiðið miðast við að læknar
séu á vettvangi utan sjúkrahúss og með þann búnað
sem er í fullbúnum sjúkrabíl. Við kennum þeim að
leysa úr bráðum vandamálum og skila sjúklingnum
inn á sérhæfða stofnun.
A námskeiðinu erum við að þjálfa lækna í að tak-
ast á við öll helstu vandamál sem læknar þurfa að
bregðast við utan sjúkrahúsa, það er að segja endur-
lífgun, bráða hjartasjúkdóma, meðhöndlun öndunar-
vegar, meðvitundarleysi, flogaveiki, áverka, einföld
slys og hópslys, bráðavanda barna og fæðingar. Það
er því farið yfir æði mikið efni og allt miðast það við
að kenna læknum að bregðast við á þeim skamma
tíma sem þeir hafa til umráða og með takmörkuðum
búnaði.“
Bæði verkleg og bókleg námskeið
- Hverjir kenna á þessum námskeiðum?
„Auk okkar sem ég taldi upp koma fleiri læknar á
bráðadeild Landspítala við sögu. Einnig hafa bráða-
tæknar tekið að sér að kenna ákveðin verkleg atriði
sem þeir eru vanir að vinna við svona aðstæður. Við
höfum sett okkur það markmið að allir þeir sem
kenna á námskeiðunum hafi umtalsverða reynslu af
að vinna utan sjúkrahúsa."
- Hverjum eru námskeiðin ætluð?
„Fyrst og fremst eru þau ætluð læknum sem taka
bráðavaktir utan sjúkrahúsa, læknum í heilsugæslu á
landsbyggðinni og einnig læknum sem starfa á sjúkra-
húsum úti á landi þar sem þessi vinna getur verið
hluti af starfinu. Námskeiðið getur hins vegar nýst
öllum læknum sem vilja vera vel þjálfaðir til að
bregðast við bráðatilvikum sem kunna að koma upp í
vinnunni. Þetta er í þriðja skipti sem við höldum
námskeiðið og við vonumst til að þetta verði fastur
liður í símenntun lækna og að hægt verði áfram að
halda það tvisvar á ári.
BLUS-námskeiðin eru haldin í samvinnu við End-
urmenntunarstofnun HI og Fræðslustofnun lækna
sem láta okkur í té kennsluaðstöðu í húsakynnum
læknafélaganna við Hlíðasmára. Við leggjum ríka
áherslu á verklega þáttinn sem er um helmingur
námsins á móti fyrirlestrum. Við förum út úr húsi í
hálfan dag til að kenna björgun úr bílflökum og ann-
að þess háttar við eins raunverulegar aðstæður og
hægt er. Við förum í vettvangsskoðun í Slökkvistöð-
ina við Skógarhlíð og í Neyðarlínuna til að kynna
okkur þær verklagsreglur sem unnið er eftir á þessum
stöðum. A námskeiðinu er eingöngu krafist mætingar
og þátttöku í æfingum, ekki þarf að standast próf.“
- Þetta er þá ekki námskeið fyrir lækna sem kall-
aðir eru óvænt til að veita aðstoð?
320 Læknablaðið 2004/90