Læknablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝ HEILSUGÆSLUSTÖÐ
ast. Stöðin hefur skyldum að gegna við hverfið því
samkvæmt samningi við ráðuneytið ber henni að taka
við þeim sjúklingum úr hverfinu sem þess óska á skrá.
Þeir mega þó taka við sjúklingum úr öðrum hverfum
eða sveitarfélögum, til dæmis fylgdi Böðvari nokkur
hópur sjúklinga úr Efra-Breiðholti þar sem hann
starfaði áður.
Að sögn þeirra félaga hafa viðtökur íbúanna verið
afargóðar enda allmargir sem ekki höfðu haft beinan
aðgang að heimilislækni. Ibúasamsetningin í hverfinu
er nokkuð sérstök, allmikið er um stærri og dýrari
íbúðir og í þeim búa aðallega ungar bamaljölskyldur
og svo eldri borgarar en þeir þjóðfélagshópar sækjast
öðrum fremur eftir þjónustu heimilislækna svo til-
koma stöðvarinnar hefur verið kærkomin.
Frelsi og áhætta
En hvernig skyldi þeim Hauki og Böðvari líka frels-
ið? Jú, takk bærilega, segja þeir. „Við ráðum meiru
sjálfir. Það er til dæmis alveg ný reynsla að við getum
sjálfir valið okkur samstarfsmenn,“ segir Haukur.
Hann bætir því hins vegar við að stofnun stöðvarinn-
ar hafi kallað á mikla aukavinnu við ýmis störf sem
þeir hafa ekki vanist að þurfa að sinna. „Það tekur
líka skemmri tíma að taka ákvarðanir um innkaup og
þess háttar,“ segir Böðvar. „Nú þarf ekki að leggja
inn beiðni um kaup á hverju smátæki og bíða þess að
hún verði tekin fyrir á fundi annars staðar.“
Þeir óttast samt ekki að læknisstarfið verði smám
saman útundan og að þeir verði komnir á kaf í bísniss
áður en þeir vita af. „Uppbygging fyrirtækisins er
þannig að á því er engin hætta. Auk þess sýnist okkur
yfirbyggingin vera léttari en í öðrum stöðvum svo það
ætti ekki að þurfa að fara mikill tími í rekstrarþátt-
inn,“ segir Böðvar.
Haukur segir að kollegarnir spyrji gjarnan hvort
hann sé ekki hræddur við að taka svo mikla rekstrar-
lega áhættu. „Ég hef svarað því til að vissulega fylgi
þessu nokkur áhætta en að ástandið í samfélaginu sé
með þeim hætti að það sé ekki endilega á vísan að róa
þótt menn starfi hjá ríkinu. Gangi þessi tilraun vel -
sem allir vona að sjálfsögðu - getur farið svo að þetta
rekstrarform breiðist út. Einn góðan veðurdag geta
því kollegar okkar staðið frammi fyrir því að rekstur
stöðvanna sem þeir starfa á verði boðinn út. Þá verða
Hjördís Birgisdóttir hjúkr-
unarforstjóri til vinstri og
Ólöf Leifsdóttir
hjúkrunarfrœðingur og
Ijósmóðir í ungbarnamót-
töku Salastöðvarinnar.
þeir að taka áhættuna á að bjóða í reksturinn eða
leita sér að vinnu annars staðar," segir Haukur Valdi-
marsson að lokum.
Heilsugœslan í Salahverfi
er á annarri hœð í þessu
húsi.
Læknablaðið 2004/90 323