Læknablaðið - 15.04.2004, Side 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FÉLAGSLÍF LÆKNA
r\ Formannafundur óð Læknafélags íslands 0 Stjórn Læknafélags íslands boðar til formannafundar skv. 11. grein laga félagsins föstudaginn 16. apríl 2004 í húsnæði læknasamtak- anna að Hlíðasmára 8, Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 10:00.
Dagskrá 10:00-12:30 Skýrsla formanns LÍ um afgreiðslu ályktana aðal- fundar 2003, störf stjórnar og stöðu helstu mála. Skýrslur formanna aðildarfélaga, samninganefnda og helstu starfsnefnda eftir atvikum.
Gert er ráð fyrir ítarlegum umræðum um Hagdeild lækna, Öryggismál sjúklinga, Símenntun lækna, Orlofssjóð, Lífeyrissjóð lækna, Læknablaðið og fleira.
12:30-13:30 Matarhlé
13:30-15:00 Skýrslur helstu starfsnefnda Umræður
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-17:00 Áframhald umræðna Önnur mál
Fundarlok verða á heimili formanns að Hæðarseli 28, Reykjavík.
Læknadagar
2005
Nú er að hefjast undirbúningur fyrir Læknadaga 2005. Fyrirhugað
er að ganga frá stærstum hluta dagskrárinnar fyrir sumarið. Þeir
sem vilja leggja til efni eru vinsamlegast beðnir að senda hug-
myndir að fyrirlestrum, málþingum, vinnubúðum eða öðrum dag-
skráratriðum fyrir 1. maí nk. til Margrétar Aðalsteinsdóttur hjá
Fræðslustofnun lækna, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, eða með
tölvupósti magga@lis.is
Nauðsynlegt er að fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslu-
stofnunar við að greiða kostnað fyrir erlendan fyrirlesara.
Undirbúningsnefnd
3. norræna þingið um
lækningahúmor í Reykjavík
9.-13. júní
„Praktisk bruk
av medisinsk
humor“
Þingið verður haldið í Hringsal Barnaspít-
ala Hringsins og er opið öllu áhugafólki um
lækningahúmor. Dagskrá, skráningarblað
og kynningarbækling er að finna á slóðinni
http://kmh. mirrorz. com
Eins og yfirskrift þingsins ber með sér
verður lögð sérstök áhersla á hvernig nota
má húmor í starfi heilbrigðisstarfsfólks.
Von er á tveimur heimsfrægum fyrirlesurum,
dr. Madan Kataria og prófessor Rod A.
Martin. Dr. Kataria er heimilislæknir frá
Bombay á Indlandi. Hann erstofnandi Hlát-
urklúbba-hreyfingarinnar og er eftirsóttur
fyrirlesari og leiðbeinandi. Rod A. Martin er
prófessor í sálfræði í London, Ontario í
Kanada. Hann hefur setið lengi í stjórn The
International Society of Humor Studies og
byggir vísindavinnu sína að miklu leyti á
rannsóknum á skopskyni og á því hvernig
nota má húmor sem vörn gegn streitu.
Auk þessara tveggja verða víðfrægir fyrir-
lesarar, bæði erlendir og innlendir. Má þar
nefna Mats Falk, heimilislækni frá Svíþjóð,
Stein Tyrdal, bæklunarlækni og forseta
Nordisk Selskap for Medisinsk Humor frá
Noregi, Ásdísi Skúladóttur, kennara, Hildi
Helgadóttur, hjúkrunarforstjóra, Braga
Skúlason, sjúkrahúsprest, Sigurð Guð-
mundsson, landlækni, Óttar Guðmunds-
son, geðlækni og Pétur Lúðvígsson,
barnalækni.
324 Læknablaðið 2004/90