Fréttatíminn - 07.11.2014, Síða 19
Gjörbreytt
hvernig
fólk horfir
á sjónvarp
Einn þriðji áhorfs á sjónvarpsþættina Hraunið kom
með hliðruðu áhorfi. Sífellt færri horfa á frum-
sýningar í sjónvarpi og ungt fólk og börn mótar
sína eigin sjónvarpsdagskrá. Dagskrárstjóri RÚV
sér tækifæri í breyttum neysluvenjum.
í línulegri dagskrá, þeir verða bara
opinberaðir þegar eru tilbúnir. Þá
er hægt að brjóta þætti upp og koma
þeim í umferð í smærri einingum.
Nýjar kynslóðir hafa öðruvísi at-
hyglisgáfu en þær eldri og eru van-
ar að horfa í smærri klippum,“ segir
Skarphéðinn.
Hann segir að áhugi á sjónvarps-
efni sé ekki að minnka þó áhorfið
sé að breytast. „Það jákvæða hvað
okkur varðar er að vinsældir efnis-
ins standa ekki og falla lengur með
einni frumsýningu. Nú eru fleiri
kostir í boði og það gerir okkur
kleift að bjóða upp á fjölbreyttara
efni. Það skerpir óneitanlega lín-
urnar og hjálpar til við að greina
stöðuna þegar við sjáum hvaða efni
fólk ber sig eftir og hvaða efni fólk
er sama þó það missi af.“
Hefur þetta áhrif á dagskrárstefnu
hjá ykkur?
„Þetta eykur vissulega líkur á við
sjáum tilgang til að framleiða efni
fyrir yngri eigendur okkar á RÚV,
þegar við sjáum hvað þeir eru dug-
legir að sækja í hliðrað áhorf. Rauði
þráðurinn virðist nefnilega vera sá
að efni sem höfðar til yngra fólks
fær mikið hliðrað áhorf. Þannig var
eitt af fyrstu merkum þess að þetta
væri að breytast þegar þættir Andra
á flandri voru sýndir. Þeir fengu
töluvert mikið hliðrað áhorf og við
erum viss um að nýir þættir hans
fá það líka.“
Krakkar móta eigin dagskrá
Barnaefni er það efni sem fær mest
hliðrað áhorf. „Krakkarnir eru
komnir hvað lengst í þessum efn-
um. Þau eru alla vikuna með spjald-
tölvurnar að horfa á efni sem sýnt
er um helgar. Börnin eru löngu búin
að móta sína eigin sjónvarpsdag-
skrá,“ segir Skarphéðinn.
Undir þetta tekur Gunnhildur
Arna Gunnarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans. „Börnin mín hafa
ekki hugmynd um að Stundin okk-
ar er klukkan sex á sunnudögum.
Þau missa samt sjaldan af þættin-
um. Þau horfa þegar hentar. Þessi
heilaga stund þegar öll íslensk börn
horfðu á sama tíma á Stundina okk-
ar er horfin,“ segir hún. Gunnhildur
segir áhorfstölur Símans sýna að
börn séu svo gott sem hætt að horfa
á barnaefni í línulegri sjónvarps-
dagskrá. „Þau horfa á barnaefni
RÚV þegar það hentar á heimilinu.
Barnaefni RÚV er vinsælasta efn-
ið sótt í VOD hjá Símanum,“ segir
Gunnhildur Arna.
Fimm milljón afspilanir á ári
Tímaflakkið fór í loftið hjá Síman-
um 11. janúar 2013. Vinsældirnar
uxu hratt fyrsta hálfa árið. Notkun-
in jókst um nærri 280% á þeim tíma
og hefur vaxið jafnt og þétt síðan.
„Áskrifendur að Sjónvarpi Sím-
ans voru fljótir að tileinka sér þjón-
ustuna og afspilanir þátta fór úr
hundruðum þúsunda strax fyrsta
mánuðinn í yfir milljón fyrsta hálfa
árið. Afspilanir hafa vaxið jafnt og
þétt. Metið var slegið eftir sýningu
fyrsta þáttar RÚV á Hrauninu, aftur
við annan þátt. Þá voru sjö þúsund
heimili að streyma sjónvarpsefni
með Tímaflakkinu í einu,“ segir
Gunnhildur Arna.
Tímaflakkið er vinsælast á sunnu-
dagskvöldum. „Búnaðurinn er í
botni á sunnudagskvöldum. Við
sjáum gjarna um sex þúsund heimili
nota tæknina samtímis,“ segir hún.
„Sjálf nota ég Tímaflakkið á hverj-
um einasta degi. Ég bíð ekki eftir
fréttum. Þær bíða eftir mér. Missti
heldur ekki af uppáhaldsþættinum
mínum á sunnudagskvöldið þeg-
ar börnin voru svæfð. Við hjónin
horfðum saman á þáttinn frá byrjun
þegar við vorum bæði laus,“ segir
Gunnhildur.
Sjá má í árskýrslu Skipta, móð-
urfélags Símans og Skjásins, að af-
spilanir á sjónvarpsefni í Sjónvarpi
Símans voru ríflega 5,2 milljónir á
árinu 2013.
Tími kominn á Netflix-væðingu
„Það verður athyglisvert að sjá
hvernig þessi notkun kemur til
með að þróast, því við sjáum að á
sama tíma og Tímaflakkið vex hef-
ur Frelsisnotkun aðeins dregist
saman,“ segir Gunnhildur Arna.
„Við metum það þó svo að það sé
kominn tími á íslenska Netflix-
væðingu ef svo má segja. Íslensk-
ar efnisveitur, eins og Skjárinn
og 365, hafa verið að bjóða upp á
heilar seríur í Sjónvarpi Símans.
Það er gríðarlega vinsælt. Því býð-
ur Síminn nú heilu þáttaraðirnar
úr safni ABC Studios til að svara
þessu kalli.“
En þar með er síður en svo allt
talið því erlendar efnisveitur njóta
mikilla vinsælda hér á landi. Þús-
undir Íslendinga nýta sér þjón-
ustu Netflix eftir krókaleiðum og
fréttir hafa borist af því að Netflix
hafi áhuga á að opna hér á landi.
Íslenskir rétthafar hafa fundað
með forvarsmönnum Netflix að
undanförnu. Þá greindi fréttasíðan
Nútíminn frá því í gær að tækni-
risinn Google hafi opnað fyrir kvik-
mynda- og tónlistarveitur sínar á
Íslandi. Hægt er að kaupa og leigja
kvikmyndir í Google Play Movies.
Sumar myndir er þó aðeins hægt
að kaupa og er þá algengt verð
1.500 til 2.000 krónur. Leiguverð
á kvikmyndum er frá 350 upp í 460
krónur fyrir nýjustu kvikmynd-
irnar sem þjónustan býður upp á.
Hægt er að horfa á kvikmyndir Go-
ogle Play Movies í tölvum, Andro-
id- og iOS-símum. Þá er hægt að
nota Chromecast-búnaðinn sem er
svar Google við Apple TV.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
N eyslumynstrið er að breytast hratt. Við þurfum að fara að venja okkur á að hætta að
tala um sjónvarp sem eitthvert tæki,
flatskjá eða imbakassa, því nú er allt
á netinu og fólk nálgast efnið líka eft-
ir öðrum leiðum,“ segir Skarphéðinn
Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV.
Einn þriðji horfir seinna
Sífellt fleiri horfa nú á sjónvarps-
efni eftir öðrum leiðum en að setjast
niður fyrir framan viðtækið þegar
frumsýning efnisins fer fram. Hlut-
deild hliðraðs áhorfs, sem nær til
plússtöðva, Sarps, Tímaflakks og
Frelsisþjónustu svo eitthvað sé
nefnt, eykst stöðugt. Þetta kom ber-
sýnilega í ljós þegar spennuþætt-
irnir Hraunið voru á dagskrá RÚV
á dögunum.
Áhorf á beina útsendingu fyrsta
þáttar Hraunsins á sunnudags-
kvöldi var 34,2%. Við það bættust
16,5% í hliðruðu áhorfi.
Ef þessar tölur eru bornar saman
við Hamarinn, spennuþáttaröð sem
Hraunið var sjálfstætt framhald af,
sést breytingin vel. Áhorf á Hamar-
inn var í kringum 50 prósent á frum-
sýningarkvöldi, að sögn Skarphéð-
ins, og þegar áhorf á frumsýningu
Hraunsins er lagt saman við hliðrað
áhorf er það svipað.
Línuleg dagskrá á undanhaldi
„Þessi línulega dagskrá er ekki upp-
haf og endir lengur fyrir sjónvarps-
þætti, það er breytt. Við höfum
til dæmis prófað nýjar leiðir með
Hæpið. Þegar fram líða stundir er
ekki víst að þættir verði frumsýndir
Skarphéðinn
Guðmundsson,
dagskrárstjóri
RÚV.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir,
upplýsinga-
fulltrúi Símans.
Fimmtíu prósent þjóðarinnar horfðu á spennuþættina Hraunið á RÚV. Þriðjungur áhorfsins var í gegnum plússtöðvar, Sarp, Tímaflakk og Frelsi.
20 úttekt Helgin 7.-9. nóvember 2014
Laugardagstilboð
– á völdum servéttum og kertum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Opið laugardaga kl. 10-16
Nýir o
g
fallegi
r haus
t- og
vetrar
litir í s
ervétt
um
og ker
tum
®