Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 21
V ið gerum ýmislegt í ein-rúmi. Eitthvað sem við kærum okkur ekki um
að nokkur maður sjái eða hafi
almennt vitneskju um. Engar
áhyggjur, ég er ekki á leiðinni
yfir í einhverja kynferðislega
sálma. Alveg alls ekki. Ég kæri
mig ekkert um að hengja þann
þvott út fyrir framan alþjóð. Ég
er að tala um allt aðra hluti. Þá
sem við mögulega blygðumst
okkar á einhvern hátt fyrir. En
njótum samt á einhvern undar-
legan, jafnvel afbrigðilegan,
máta.
Ég datt í þessar vangaveltur
um helgina. Þar sem ég lá
alein í sófanum heima hjá mér
við fremur dapurlega iðju sem
ítrekað er iðkuð í einrúmi. Ég
athuga hvort ég sé með rusl í
naflanum eða sigg á tánum. Já,
þá er það opinbert. Síðan ískrar
aðeins í mér ef ég finn annað
hvort. Nú eða bæði. Að fjarlægja
naflakusk eða sigg veitir mér
dæmalausa sælu. Ankannalega
sælu sem ætti sennilega engum
að segja frá. Jæja, burtséð frá
því þá fór ég sem sagt að velta
þessari leynihegðun (fyrrum
leynihegðun, ókei) fyrir mér
á meðan ég lá þarna berfætt
með bumbuna út í loftið. „Er ég
sú eina sem stunda hæfilega
óaðlaðandi hluti þegar að ég er
ein míns liðs?“ Þetta málefni
krafðist óformlegrar rann-
sóknar. Svona til þess að sanna
fyrir sjálfri mér að ég væri ekki
einhverskonar naflaborandi og
siggkroppandi viðrini.
Ég leita á náðir vinkvenna
minna á Facebook (mannleg
samskipti eru jú svo 1997). Þar
skýli ég mér á bak við áhuga
minn á mannfræði og segi
ástæðu þess að mig þyrsti í
upplýsingar um hegðun þeirra
í einrúmi vera eingöngu í náms-
legum tilgangi. Auðvitað. Ekki
til þess að upphefja sjálfa mig
á nokkurn hátt eða veita mér
hugarró.
Ein kunningjakona mín sagði
mér að stundum þegar hún
væri að elda ímyndaði hún sér
að hún væri stödd í eigin mat-
reiðsluþætti og lýsti öllu ferlinu
upphátt fyrir sjálfa sig. Ah, ég
kannaðist nú við þá hegðun.
Stundum bý ég líka til breska
matreiðsluþætti og æfi hreim-
inn minn. Annað veifið er ég
líka smámælt eins og Jamie
Oliver. Önnur sagði mér að hún
væri aldrei í öðru en náttfötum
heimavið. Jább, ég gat tekið
undir það. Ég er aldrei klædd
heima hjá mér. Ekki fara inn
á já.is og leggjast á gluggana
mína. Ég er alveg í fötum – þau
teljast bara ekki mannsæmandi.
Heimafötin saman-
standa af gömlum
óléttubuxum og bleik-
um, afar illa förnum
náttkjól, sem ég hef
átt síðan ég var 12 ára.
Sú þriðja lýsti fyrir
mér hvernig hún gæti
eytt heilu og hálfu frí-
dögunum uppi í rúmi.
Með sælgæti. Súpandi
annað hvort 2ja lítra
Pepsi Max af stút eða
vínflösku. Ekki hugg-
uðu þessar lýsingar
mig neitt. Stundum
þjónar rúmið mitt
öllum heimsins hlut-
verkum. Tjah, nema
baðherbergisins. Ég
sef í því, læri í því,
horfi á sjónvarpið og
jafnvel borða þar. Ég
nota aldrei glös undir
Pepsi-ið mitt og stund-
um spyrði ég saman
tveimur sogrörum svo
þau nái alveg ofan í
vínflöskuna.
Þessi rannsókn mín
gerði ekkert fyrir mig.
Nema að fylla mig
efasemdum um eigið
ágæti. Það er ótal margt fleira
sem ég geri ein með sjálfri mér.
Svona fyrst ég er á annað borð
byrjuð að útlista það. Ég get eytt
ótakmörkuðum tíma í að skoða
á mér andlitið í stækkunar-
spegli. Og leita að óæskilegum
hárum. Ég kaupi mér annað
slagið Doritos, sleiki kryddið af
flögunum og hendi þeim aftur
ofan í pokann. Stundum leyfi ég
líka hárunum á fótleggjunum á
mér að vaxa svo lengi óáreittum
að það þarf nánast að blása þau
eftir sturtu. Já, verði ykkur að
góðu.
Ég þarf að komast í sambúð.
Sem allra fyrst.
Stundum
leyfi ég líka
hárunum
á fótleggj-
unum á mér
að vaxa
svo lengi
óáreittum
að það þarf
nánast að
blása þau
eftir sturtu.
Guðrún Veiga
Guðmundsdóttir er
mannfræðinemi frá
Eskifirði sem vakið
hefur athygli fyrir
bloggskrif sín. Hún
stjórnaði sjónvarps-
þættinum Nenni ekki
að elda og gefur út
samnefnda bók fyrir
jólin. Guðrún Veiga
upplýsir hér að hún
gengur í gömlum
óléttubuxum heima
hjá sér og þykist
vera að stjórna
breskum matreiðslu-
þætti þegar hún
eldar heima hjá sér.
Það sem ég geri í einrúmi
Guðrún
Veiga
Guðmundsdóttir
ritstjorn@
frettatiminn.is
www.volkswagen.is
Meistari í
sparsemi
Volkswagen up! er alvöru smábíll!
Volkswagen Take up! kostar
1.990.000 kr.
Samkvæmt könnun breska bílablaðsins
Autoexpress er enginn bíll ódýrari í rekstri en
Volkswagen up! Með Volkswagen up! hafa
jafnframt verið sett ný viðmið í hönnun því hann
er einstaklega nettur að utan en afar rúmgóður
að innan. Hvergi er gefið eftir í kröfum um
aksturseiginleika, gæði né öryggi og fær bíllinn
5 stjörnu einkunn í árekstrarprófunum euroNcap.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Komdu og reynsluaktu Volkswagen up!
Eyðsla frá 4,1 l/100 km
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
S
am
lit
h
an
df
ön
g,
só
lþ
ak
, þ
ok
ul
jó
s,
lis
ta
r á
h
ur
ðu
m
, k
ró
m
á
sp
eg
lu
m
.
22 pistill Helgin 7.-9. nóvember 2014