Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 57
58 matur & vín Helgin 7.-9. nóvember 2014
Jólasíld með jólachimichurri
Vín vikunnar
Þ að er skemmtilegt að prófa sig áfram við pörun matar og víns. Ein besta leiðin til að
bæði finna út hvað þér þykir gott og
líka hvað passar best með matnum
sem þú ert að elda er að opna fleiri
flöskur samtímis. Góð hugmynd
getur verið að bjóða fólki í heim-
sókn og gera kvöldstund úr þessu
þar sem allir taka þátt í kostnaðin-
um og segja sitt álit. Þú lærir miklu
meira og hraðar á hvaða vín henta
hvaða mat með þessari aðferð og
ekki síður hvaða vín þér líkar best.
Sérstaklega ef þú prófar að hafa vín-
in ólík til að finna sem mestan mun.
Svo er upplagt að nota afgangsvín í
sósuna næsta dag.
Valpolicella svæðið í Verona er
þekkt fyrir léttleikandi rauðvín.
Þetta vín er superiore sem þýðir
að það hefur fengið að eldast í ár
áður en það kemur á markað.
Það gefur víninu örlítið meiri
karakter og grófleika en
léttleikandi berjakeimurinn er
vissulega til staðar. Vínið er
upplagt með pastaréttum sér
í lagi með vel gerðri heima-
lagaðri tómatsósu. Punkturinn
yfir i-ið væru svo ekta ítalskar
kjötbollur með.
Adobe Carmenere Reserva
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Chile, 2013
Styrkleiki: 13,5%
Þrúga: Carmenere
Verð í Vínbúðunum: Kr. 1.999
Úrval lífrænt ræktaðra vína er
alltaf að færast í aukana. Þetta
lífræna vín kemur frá Chile
og er úr Carmenere þrúgunni
sem er sólfrek og virðist henta
vel til ræktunar þar því þetta
er afbragðsvín. Berjaríkt og
kryddað, eilítið lokað til að byrja
með en klárlega í mildari kant-
inum og með skemmtilegan
vanillukeim sem rúnnar vínið
vel upp í lokin. Hentar vel með
kjötmeti, jafnvel léttari bitum.
Smakkaðu nokkur vín samtímis
Hér er annað lífrænt ræktað
Adobe-vín frá Chile. Hér fær
Merlot-þrúgan að njóta sín. Það er
heilmikið að gerast í víninu en það
er töluvert tannínríkt og gott
að leyfa því aðeins að taka sig
áður en þess er neytt. Ágætis
fyllingin en það endar á þurru
nótunum sem gæti hentað
mjög vel með fituríkari ostum.
Ekki vín til að drekka með blóð-
ugri steik, betra með léttara
kjötmeti eins og grilluðum kjúlla
eða maríneruðu svínakjöti.
Þetta vín kemur úr Loire-dalnum
og sver sig í ætt við önnur vín
úr þeim ágæta dal sem kallast
Sancerre nema það er á betra
verði. Það er ferskt og ávaxtaríkt
með sítruskeim og spennandi
skörpum eftirtóni. Svona hvít-
vín henta vel sem fordrykkur
en jafnvel enn betur með
fisksteikum, helst grilluðum
(best ef þú nærð þér í lúðu) en
líka með grilluðum risarækjum
með sætri mæjó dressingu,
Jömmí.
Tomasi Rafaèl Valpolisella
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Ítalía, 2012
Styrkleiki: 12,5%
Þrúga: Corvina, Rondinella, Molinara
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.699
Petit Bourgeois Sauvignon Blanc
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Sauvignon Blanc.
Uppruni: Frakkland, 2013
Styrkleiki: 12%
Verð í Vínbúðunum: 2.699 kr.
Adobe Merlot Reserva
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Chile, 2012
Styrkleiki: 13,5%
Þrúga: Carmenere
Verð í Vínbúðunum: Kr. 1.999
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Nýtt tilboð
alla daga til jóla
7. NÓVEMBER
AÐEINS
Í DAG34%afsláttur
2299kr.pk.
Verð áður 3499 kr. pk.
Playmo, 4 teg.
Fylgstu með nýjum tilboðum daglega á kronan.is og sparaðu stórt alla daga til jóla
EINFALT
AÐ SKILA EÐA SKIPTA
Hagkaup býður upp á 50.000 vörutegundir
og því er auðvelt að finna gjöf við allra hæfi.
Munið að biðja um skilamiða.
Sýningin verður í báðum anddyrum Laugardalshallarinnar.
G eitin er komin upp fyrir utan Ikea, það er byrjað að auglýsa mandar-ínur sem eru í rauninni
klementínur og Jólasíldin frá Ora er
komin í búðir. Það verður ekki vikist
undan þessu mikið lengur. Það eru
að koma jól.
Maríneruð síld er best ofan á
heimalagað rúgbrauð með sem
minnstum látum. Ekki drekkja
henni í sýrðum rjóma og mæjónesi
og gult karríkrydd viljum við ekki
sjá í tíu metra fjarlægð frá jólasíld-
inni. Gömul og góð klassík er jóla-
síld með þunnt skornum rauðlauk,
eggjaskífum og smá dúllu af sýrðum
rjóma. Ferskmulinn pipar yfir fyrir
þá vandlátu.
Síld og Suður-Ameríka
Chimichurri er olíu- og edikssósa
með eldpipar, ættuð frá Argentínu.
Frá heimalandinu er sósan yfirleitt
alveg græn en það eru nú einu sinni
að koma jól og því ekki úr vegi að
nota rauðlauk og rauðan eldpipar á
móti grænum og ferskum krydd-
jurtum.
Svona búum við til jólachimichurri
til að setja ofan á síld sem aftur situr
ofan á rúgbrauði:
Saxa niður einn miðlungs lauk.
Kremja 3-4 hvítlauksrif og saxa þau
sömuleiðis. Skera svo eldpiparinn
til helminga. Þeir sem vilja sterka
sósu skera hann strax í búta. Þeir
sem vilja miðlungssterka sósu
skafa fræin úr og skera piparinn svo
niður. Þeir sem svo vilja milda sósu
fá sér bara eitthvað annað ofan á
rúgbrauðið. Þetta, ásamt teskeið af
þurrkuðu oreganó og teskeið af salti,
fer svo ofan í hálfan til einn desilítra
af ediki. Það má vera venjulegt hvítt
borðedik, hvítvíns- eða jafnvel rauð-
vínsedik. En hrísgrjónaedik er ekki
jafn súrt svo ekki nota það nema í
neyð. Geyma þetta við stofuhita í
klukkustund eða í kæli yfir nótt.
Saxa svo búnt af ferskri steinselju,
kóríander eða blöndu beggja ofan í
tvo desilítra af ólífuolíu. Ef svo vel
vill til að það sé til ferskt oreganó
úti í glugga er það sett út í olíuna
með hinum kryddjurtunum en ekki
í edikið.
Eftir klukkutíma bað, eða þegar
hentar að búa til síldarbrauðið, er
þessum tveimur hlutum svo blandað
saman og mylja jafnvel smá af svört-
um pipar út í jukkið.
Sósan er þá klár og tími til kom-
inn að ná í ilmandi nýtt rúgbrauð,
skúbba á það nokkrum bitum af jóla-
síld, toppa svo með ilmandi fersku
chimihcurri.
Arka svo beint ofan í geymslu að
finna jólaskrautið.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
LauGardaLshöLL Matur oG drykkur 2014
Stórsýning um helgina
Það verður eitthvað við allra
hæfi á hinni glæsilegu matar-
og drykkjarsýningu Matur og
drykkur 2014 sem haldin verður
um nú um helgina, laugardag og
sunnudag, í báðum anddyrum
Laugardalshallarinnar. Opið
verður frá klukkan 10-18 báða
dagana. Sýningin verður óvenju
fjölbreytt og mikið úrval af
áhugaverðum mat – og drykkir
við allra hæfi. Einnig verða
áhugaverð tilboð fyrir jólin á mat-
vöru, drykkjarvöru og eldhús-
áhöldum. Frítt verður fyrir yngri
en 12 ára í fylgd með fullorðnum
en annars kostar miðinn 1.000
krónur og gildir alla helgina. 16
ára mæti í fylgd með fullorðnum.
Matur hægra megin
Í hægra anddyri hallarinnar verð-
ur boðið upp á fjölbreyttar kynn-
ingar á girnilegum mat. Má nefna
kjúklingarétti og aðra kjötrétti,
fiskirétti frá sprotafyrirtækjum,
nýjungar á sviði brauðgerðar svo
sem súkkulaðihúðaðar kleinur
og svo verða þrjú mjólkurfyrir-
tæki með ostarétti og fleira. Þá
verða tilboð á matvöru fyrir jólin
og einnig ýmsu fyrir matseldina,
svo sem eldhúsáhöldum og fleiru
sem nýtist vel í eldhúsinu.
Drykkir vinstra megin
Gestir þurfa hvorki að fara
þyrstir né svangir af vettvangi
því í nýja anddyri Laugardals-
hallarinnar verður boðið upp á
fjölbreytta drykki. Þar verða nýir
íslenskir heilsudrykkir, nýtt ís-
lenskt vískí frá sprotafyrirtæki,
nýjar bjórtegundir og eðalrauð-
vín frá Spáni, svo fátt eitt sé
nefnt. Einnig geta gestir keypt
glös fyrir jólin og fengið fótanudd
um leið og þeir dreypa á drykkj-
unum. Starfsmenn sýningarinnar
og básanna framfylgja lögum og
reglum um að yngri en 20 ára
fá ekki að smakka hina áfengu
drykki en að nóg verður um
óáfenga heilsudrykki.