Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 64
66 bækur Helgin 7.-9. nóvember 2014
RitdómuR Kamp Knox
metsölulisti
RitdómuR Kata eftiR steinaR BRaga
K ata er miðaldra hjúkrunarfræðingur sem starfar á krabbameinsdeild. Í starfi sínu er hún
umkringd þjáningu og dauða, en í
Fíladelfíusöfnuðinn og bækur Jóns Kal
mans Stefánssonar sækir hún huggun,
von og andlega næringu. Heimili sínu á
Nesinu hefur hún deilt með skurðlækn
inum Tómasi og Völu dóttur þeirra, og
þótt Kata upplifi sig stundum utanveltu í
sérstöku sambandi feðginanna, þá er líf
þeirra ekki merkjanlega frábrugðið lífi
annarra fjölskyldna.
Lesendur kynnast Kötu þegar ár er
liðið frá því að hún hefur orðið fyrir gríð
arlegu áfalli. Dóttirin Vala fór á skólaball
en kom aldrei heim aftur. Sagan hefst
um það bil sem svívirt lík Völu finnst
í gjótu, sýnt þykir að henni hafi verið
byrluð ólyfjan, henni nauðgað og hún
síðan drepin. Lögreglan veit hverjir bera
ábyrgð á þessum hrottaskap, en sannan
irnar skortir.
Í sorginni villist Kata um stund, en eftir
því sem líða tekur á söguna verða umtals
verðar breytingar á persónuleika hennar.
„Góðu“ grímurnar falla ein af annarri
og þegar í ljós kemur að réttarkerfið er
gagnslaust, þá ákveður hún að hefna
dóttur sinnar. Kata hafnar í raun trúnni,
fyrirgefningunni, fegurðinni og því sem
áður var henni skjól. Hún uppgötvar að
hún þarf að svara samfélagsmeininu kyn
ferðisofbeldi með „lyfjum“ við hæfi. Sem
þrautreynd hjúkrunarkona veit Kata að
mein á borð við krabbamein verður seint
læknað með bænakvaki og trú á hið góða.
Krabbamein er læknað með eitri. „Með
illu skal illt út reka“ og allt það.
Skáldsagan Kata er á köflum svo
raunsæisleg og hráblaut að það að lesa
hana er eins og að láta kýla sig ítrekað
í magann. Fantasían tekur þó völdin á
stöku stað, Kata hverfur inn í annan heim
og glímir þar við sína djöfla í kynjaveröld
sem minnir á Undraland Lísu, þótt veröld
Steinars Braga sé vitaskuld alltaf mun
óhugnanlegri en Carrolls. Þessir draum
kenndu sýrukaflar þykja mér þeir veik
ustu í sögunni, einfaldlega vegna þess að
það sem Kata er að sýsla í raunheimum er
svo miklu áhugaverðara.
Persóna Kötu er listilega vel gerð og
aukapersónur, svo sem þær Sóley og Kol
brún, skipta sköpum fyrir „frelsun“ Kötu
og framvindu sögunnar. Það er mikill
hraði (og ég leyfi mér að segja, brjálæði)
í stílnum. Líkt og í sumum af fyrri bókum
sínum er Steinar Bragi reiður. Og reiði
hans er bæði réttlát og bráðnauðsynleg.
Tvítugur skrifaði Franz Kafka í bréfi til
vinar síns að hann teldi að við ættum ein
ungis að lesa „bækur sem bíta mann og
stinga“. Bækur sem vekja, líkt og hnefa
högg. „Við þörfnumst,“ skrifaði hann,
„bóka sem orka á okkur eins og áfall er
særir okkur djúpt, eins og dauði ein
hvers sem okkur þótti vænna um en sjálfa
okkur, eins og við værum reknir á skóg,
burt frá öllum mönnum, eins og sjálfsvíg,
bókin verður að vera öxin á freðið hafið í
okkur.“
„Róaðu þig, maður,“ gæti hinn kaldr
analegi nútími kannski sagt við hinn
barnunga Franz, en ég hef á tilfinn
ingunni að Kafka hafi verið að meina að
góðar bækur ættu einmitt að vera eins og
Kata eftir Steinar Braga. Og eins og sögu
persónan Kata er algerlega með á hreinu,
þá fæst lítið með því að róa sig.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Bók sem bítur og stingur
Aðdáendur Steinunnar Sigurðardóttur
geta nú hugsað sér gott til glóðarinnar
því ný skáldsaga hennar er komin í
verslanir. Í bókinni, sem kallast Gæða-
konur, er Steinunn á kunnuglegum
slóðum með sinn flugbeitta stíl,
leiftrandi húmor og einstöku innsýn í
heim ásta og erótíkur.
Í Gæðakonum segir af eldfjalla-
fræðingnum Maríu Hólm sem er í
flugvél á leið til Parísar. Hinum megin
við ganginn situr kona sem gefur henni
auga. Daginn eftir sér hún sömu konu á
kaffihúsi þar sem hún fær sér morgun-
verð. Hver er hún þessi Donna með rödd
sem er í senn suðandi þýð og raspandi gróf? Og hvað vill hún Maríu?
Gæðakonur Steinunnar Sig
Dr. Ágúst Einarsson flytur erindi um niðurstöður
rannsókna sinna á íslenskum bókamarkaði sem
birtar eru í nýútkominni bók hans, Hagræn áhrif rit-
listar, í Norræna húsinu á laugardag klukkan 11. Það
eru Félag íslenskra bókaútgefenda, Rithöfundasam-
band Íslands, Norræna húsið, Reykjavík Bókmennta-
borg UNESCO, Miðstöð íslenskra bókmennta,
Hagþenkir og Bandalag þýðenda og túlka sem skipuleggja viðburðinn. Búist er við
að ritlistarfólk fjölmenni enda hefur mikil umræða verið um stöðu bókarinnar vegna
hugmynda um að hækka virðisaukaskattinn. Í skrifum sínum leggur Ágúst fram 10
stefnumarkandi aðgerðir til að efla ritlist hérlendis. Þar nefnir hann meðal annars
tillögu sína um niðurfellingu virðisaukaskatts á bækur, tímarit og blöð frá ársbyrjun
2016. Einnig aukin framlög til Bókasafnssjóðs og bókasafna, langtímaáætlun um
eflingu lesskilnings og hvernig efla megi námsbókaútgáfu á íslensku.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar fyrir fundinn frá klukkan 10.30. Umræður
verða að fundi loknum. Aðgangur er ókeypis.
Ritlistarfólk ræðir bók Ágústs
Erlendur Sveinsson rannsóknarlögreglumaður er aðal
söguhetjan í Kamp Knox, líkt og í langflestum glæpasögum
Arnaldar Indriðasonar. Í þetta sinn fá lesendur að fylgjast
með Erlendi þegar hann er rúmlega þrítugur, tiltölulega
nýskilinn og starfar náið með sínum hálfdularfulla félaga,
Marion Briem.
Eins og svo oft áður í sögunum af Erlendi, þá
glímir hann í Kamp Knox við tvö sakamál. Eitt sem
hann er fenginn til að leysa og annað gamalt, sem
fallið hefur í dá gleymskunnar, en Erlendur ákveður
að rannsaka upp á eigin spýtur, vegna þráhyggju
kennds áhuga síns á dularfullum mannshvörfum.
Málið sem Erlendur og Marion Briem fá til rann
sóknar árið 1979, snýst um lík sem finnst í lóni sem
myndast hefur við Svartsengi á Reykjanesi. Snemma
í sögunni kemur í ljós að allt í kringum mannslátið
virðist jafnvel enn gruggugra en Bláa lónið og félag
arnir fara umsvifalaust að rannsaka það sem morð
mál. Kalda stríðið er í algleymingi, herinn situr sínar slímu
setur á Vellinum og fljótlega koma í ljós tengsl hins látna við
herstöðina og fólkið þar.
Óupplýsta sakamálið sem Erlendur fer að rannsaka upp
á sitt eindæmi snýst um unga stúlku sem hvarf sporlaust
í Reykjavík aldarfjórðungi fyrr. Stúlkan hafði síðast sést
ganga framhjá braggahverfinu Kamp Knox, þótt sjáanleg
tengsl hennar við íbúana væru lítil sem engin.
Kamp Knox er sæmilega stíluð, hún ber sterk höfundar
einkenni og þar er margt á sínum stað. Erlendur er samur
við sig, dulur og lokaður, þótt kunnugir lesendur þykist
skynja að fortíðardraugarnir frá Eskifirði fylgi
honum. Hann er einfari sem borðar sína skötu og
sitt saltkjöt á „Skúlakaffi“ og hann lifir fyrir starfið.
Rannsókn sakamálanna vindur líka fram nákvæm
lega eins og í öllum fyrri bókunum. Erlendur geng
ur milli manna og safnar saman bitum í púsluspilið
sem síðan liggur slétt og fellt fyrir framan lesand
ann í lok bókar.
En það sem oft hefur gert bækurnar um Erlend
svo fjandi fínar er fjarverandi í Kamp Knox. Arn
aldur hefur t.a.m. nánast með hverri bók afhjúpað
eitthvað nýtt um persónu Erlendar og fortíð hans,
en hér er því ekki að heilsa. Engu er bætt við. Það
er ennfremur ákaflega lítill háski í þessari sögu og
sakamálin skelfing fyrirsjáanleg og óáhugaverð.
Atburðir og persónur líða hjá, en manni er nokkurn
veginn alveg sama um þetta fólk og afdrif þess. Í
glæpasögum verður slíkt að teljast höfuðglæpur.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Háskinn fjarverandi
Kata
Steinar Bragi
Mál og menning 515 s, 2014
Kamp Knox
Arnaldur Indriðason
Vaka-Helgafell, 323 s. 2014
Steinunn Sigurdardottir.
Ljósmynd/David Ignaszewski
Steinar Bragi.
Tvítugur skrifaði Franz Kafka í bréfi til vinar síns að
hann teldi að við ættum einungis að lesa „bækur sem
bíta mann og stinga“ … ég hef á tilfinningunni að
Kafka hafi verið að meina að góðar bækur ættu ein-
mitt að vera eins og Kata eftir Steinar Braga.
Arnaldur
Indriðason
Arnaldur beint á toppinn
Nýjasta bók Arnaldar Indr-
iðasonar, Kamp Knox, stökk
beint í efsta sæti metsölulista
Eymundsson eftir að hún kom út 1.
nóvember. Kiljuútgáfa bókarinnar,
sem eingöngu er seld í verslun
Eymundsson á Keflavíkurflugvelli,
er í sjöunda sæti listans.
Önnur matreiðslubók Ragnars
Freys Ingvarssonar, Læknirinn í
eldhúsinu – veislan endalausa, er í
öðru sæti yfir íslenskar bækur og þar á eftir kemur
Orðbragð eftir Brynju Þorgeirsdóttur og Braga Valdi-
mar Skúlason. Vísindabók Villa 2 og Gula spjaldið í
Gautaborg eftir Gunnar Helgason fylgja í kjölfarið.
Fæst í öllum apótekum – Hagkaup – Fjarðarkaup
– Heimkaup – Heilsuver – Heilsulausn.is