Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 72
– RÖP, Mbl.
Fimmstjörnu-kvöld í Íslensku óperunni.
Hver stórsöngvarinn toppar annan í
glæsilegri og þaulunninni sviðsetningu.
Kristinn rís bókstaflega í
shakespearskar hæðir í nístandi og
hrollvekjandi túlkun sinni …
– Jón Viðar Jónsson
Glæsileg uppfærsla
– Jónas Sen, Fbl.
Aukasýning 15. nóvember kl. 20
AllrA síðAstA sýning
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
Gunnar Reynir
Valþórsson,
gítarleikari
Strigaskónna,
er klár í
slaginn fyrir
Airwavestón-
leika sveitar-
innar í kvöld.
Ljósmynd/Geiri
Iceland aIrwaves strIgaskór nr. 42 bæta vIð sIg
Harðkjarnabrass
hjá Strigaskónum
Tónlistarhátíðin
Iceland Airwaves
stendur nú sem
hæst. Ein þeirra
íslensku sveita sem
kemur fram í kvöld
er Strigaskór Nr.
42. Gunnar Reynir
Valþórsson gítar-
leikari hefur kallað
út aukamannskap
fyrir tónleikana.
H in árlega Airwaves hátíð hófst í vikunni
með pompi og prakt.
Á hátíðinni ár má telja
um 900 tónleika ef allt
er talið á 5 dögum.
Ein þeirra sveita sem
kemur fram á hátíðinni
í ár er þungarokk-
sveitin Strigaskór Nr.
42. Strigaskórnir sem
koma upprunalega úr
Kópavoginum hafa
bráðum verið starf-
andi í 25 ár, með hléum
þó. Gunnar Reynir
Valþórsson gítarleikari
Strigaskónna segir þá
bæta við mannskap á
sviðinu á svona stórhá-
tíðum.
„Við verðum með
tvo blástursleikara og
einn slagverksleikara
með okkur á sviðinu í
ár,“ segir Gunnar. „Við
vorum með blástur
á hátíðinni í fyrra og
ákváðum að bæta slag-
verki við í ár.“ Þeir sem
verða með Strigaskón-
um á Airwaves í ár eru
þeir Áki Ásgeirsson
trompetleikari, Ingi
Garðar Erlendsson bás-
únuleikari og svo bætt-
ist slagverksleikarinn
Erling Bang við.
Á síðasta ári gáfu
Strigaskórnir út plöt-
una Armadillo og á
síðustu Airwaves hátíð
heilluðu þeir marga
upp úr skónum með
tónlist sinni, meðal
annars ritstjóra Roll-
ing Stone tímaritsins,
David Fricke. „Það hentar
mjög þessari músík að hafa
brass. Það ýtir undir Mariachi
fílinginn sem er til staðar,“
segir Gunnar. „Við ætlum að
spila efni af Armadillo í bland
við nýtt efni. Það er mikið kikk
að hafa þá með á sviðinu og svo
eru þetta mikil eðalmenni, svo
það er stuð á hópnum,“ segir
Gunnar.
Þetta er í þriðja skiptið sem
Strigaskór Nr. 42 koma fram á
Iceland Airwaves hátíðinni en á
næsta ári stefna þeir á að taka
upp nýja efnið. „Já við stefnum
á það og einnig að gefa út
Armadillo í áþreifanlegri útgáfu.
Hún kom bara út á netinu,“ segir
Gunnar. Tónleikar Strigaskónna
á Airwaves verða á föstudags-
kvöldið klukkan 20.50 á Gaukn-
um við Tryggvagötu.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Skálmöld - Með vættum
- er komin í Skífuna
2.399,-
Verð áður 2.999,-
KRINGLAN OG SMÁRALIND · 591-5300 · WWW.SKIFAN.IS
Coca Cola
fylgir
með!
20%
afsláttur
Jólablað Fréttatímans
Jólablað Fréttatímans 2014 kemur út
miðvikudaginn 26. nóvember
Mikið verður lagt í jólablaðið að þessu sinni. Í því verður
spennandi, jólatengt efni af ýmsum toga,
skrifað af reyndum blaðamönnum.
Auglýsingabókanir þurfa að berast fyrir
mánudaginn 24 nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Kristi Jo í
síma 531 3307 eða kristijo@frettatiminn.is
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Teppi á stigaganginn
nú er tækifærið !
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðarlausu
Eitt verð niðurkomið
kr. 5.980 m2
74 menning Helgin 7.-9. nóvember 2014