Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.11.2014, Síða 74

Fréttatíminn - 07.11.2014, Síða 74
 Í takt við tÍmann Rannveig HilduR guðmundsdóttiR Borðar 60 kjúklingabringur á mánuði Rannveig Hildur Guðmundsdóttir er 24 ára Íslandsmeistari í módelfitness. Hún byrjaði að æfa í byrjun ársins og hefur náð frábærum árangri á stuttum tíma. Rannveig lýkur námi í tannsmíði við HÍ næsta vor. Hún nýtur þess að horfa á glæpaþætti með kærastanum og ætlar í siglingu eftir áramót. Lj ó sm yn d /H ar i Staðalbúnaður Þegar ég æfi jafn mikið og ég geri nú er ég mikið í ræktarfötum. Ég er mjög hrifin af Nike og Under Armour og ræktarfötin mega vera svolítið litrík. Fyrir utan ræktina er ég frekar stíl- hrein í klæðaburði, geng í gráu, svörtu og hvítu, og finnst gaman að vera svo- lítið fín. Ég er mikið í þykkum peysum og kápum. Hér heima versla ég mest í Zöru en annars er ég mjög hrifin af H&M. Hugbúnaður Venjulegur dagur um þessar mundir, fyrir utan skólann og æfingar, snýst um að borða, sofa og hvíla sig. Það er alltaf sami hringurinn, einfalt líf, en mér finnst það fínt. Versta er að ég er búin að þurfa að vera svolítið eigin- gjörn og kærastinn hefur ekki fengið nægan tíma með mér. Okkur finnst gaman að horfa á krimmaþætti eins og Criminal Minds, CSI, Bones og nýju þættina, Stalker. En ef við ætlum að horfa á bíómynd er ég vanalega sofnuð eftir fimm mínútur. Ég fer ekki mikið út á lífið en þegar það gerist fer ég oftast á b5. Vélbúnaður Heimilið er alveg Apple-vætt, við erum með iPad, iPhone og Macbook Air. Ég nota mest öpp eins og Fa- cebook og Instagram og reyni að vera dugleg að setja inn myndir af því sem ég er að gera. Aukabúnaður Það er að mörgu að huga í módelfit- ness enda æfi ég fjóra tíma á dag. Ég verð að borða hreinan mat og þarf því að skipuleggja mig daginn áður. Ég borða mikið af fiski, kjúklingi og grænmeti. Ætli ég borði ekki mest af kjúklingi, sitt hvora bringuna í hádeginu og á kvöldin. Ég get borðað endalaust af kjúklingi en ég fæ stundum ógeð af laxinum. Ég neyði nú ekki kærastann minn alltaf til að borða það sem ég borða, hann fær sínu ráðið. Það þarf mikinn sjálfsaga til að ná árangri og ég er búin að sætta mig við að þetta er svona, ég er ekki að hugsa um pítsu og hamborgara. Það er að vísu erfitt að hætta að borða súkkulaði en ég skil það eftir uppi á borði því ég vil geta séð að ég geti staðist það. Ég er svo lánsöm að hafa góða styrktaraðila; fæðubótarefni frá USN, snyrtivörur frá Nix og þjónustu hjá Kíróprakterstofu Íslands auk þess að vera með frábæran þjálfara, Jimmy Routley í Pumping Iron. Fram undan er bikarmót eftir tvær viku og ég er mjög hungruð að standa mig þar. Eftir áramót ætla ég svo að fara í siglingu um karabíska hafið. Það eru verðlaun fyrir árangurinn svo það er eins gott að ég standi mig á bikarmótinu.  appafenguR Check yourself Aldrei er hægt að ítreka um of mikilvægi þess að konur þreifi sjálfar á brjóstum sínum í leit að hnúðum. Nokkur öpp eru á markaðnum sem minna konur á þessa sjálfsleit og við mælum sérstaklega með appinu Check yourself frá Keep a Breast Founda- tion. Krabba- meinsfélag Ís- lands mælir með mánaðarlegri skoðun á svip- uðum tíma, það er um viku eða tíu dögum eftir síðustu blæðing- ar eða í vikunni eftir að þeim lauk. Skoðir þú þau fyrr kunna þau að vera þrútin, við- kvæm og hnúóðtt. Hægt er að stilla appið þannig að það minni þig á að skoða brjóstin, en það er ekki allt því það fylgja einnig leiðbein- ingar um hvernig er best að standa að skoðuninni, skref fyrir skref. Auk þess fylgir með fróðleikur um sjálfsskoð- unina. Appið er ókeypis. - eh 76 dægurmál Helgin 7.-9. nóvember 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.