Fréttatíminn - 14.11.2014, Qupperneq 54
54 matur & vín Helgin 14.-16. nóvember 2014
Jólabjórinn
kemur frá Einstök
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Jólagull
5,4%
50 cl. 369 kr.
Mjög sæt lykt af honum, smá
ávextir. Þetta er umtalsverð
framför frá fyrri Gullum. Mér
finnst hann hvorki vondur
né frábær. Hann er svolítið
þunnur. Hann stuðar ekkert,
enda á hann ekki að gera það.
Tuborg
5,6%
33 cl. 309 kr.
Hann er ágætlega fallegur.
Þarna er mikil hefð, þessi
er hluti af jólunum. Hér er
engin tilraunastarfsemi.
Harboe Jule Bryg
5,7%
33 cl. 269 kr.
Sæt lykt af þurrkuðum
ávöxtum. Nokkuð mikið að
gerast í bragðinu. Hann er
ekkert jólalegur, maður gæti
keypt hann hvaða dag ársins sem er í
Danmörku. Hann er á góðu verði sem
hentar vel ef maður þarf að kaupa marga.
Gæðingur Jólabjór
4,6%
33 cl. 398 kr.
Það er reykur og sýra í
lyktinni. Skrítið, viðbrennt
eftirbragð. Passar ábyggi-
lega fyrir einhverja en ég er
ekki hrifinn.
Jóla Kaldi
5,4%
33 cl. 410 kr.
Nánast lyktarlaus en smá
mandarínulykt. Fallega rauð-
leitur. Áferðin er ekki nógu
góð. Þetta er þægilegur bjór
til að drekka.
Steðji Jólabjór
5,3%
33 cl. 379 kr.
Það er mjög mikill lakkrís í hon-
um, lakkrísinn er dómínerandi.
Flott útlit. Ég er lakkríssjúk-
lingur og þetta er ekki að stuða
mig. Lakkrísinn passar ekki
nógu vel með þessum bjór.
Ýlir
7%
33 cl. Verð liggur ekki fyrir.
Þurrkaðir ávextir í lyktinni.
Bragðið er eins og af sígildu
rauðöli. Fínt rauðöl. Mér
finnst hann súr, ekki góður
í munni. Mér finnst þetta traustur bjór, ég
væri alveg til í að kaupa hann.
Meteor Biere de Noël
5,8%
65 cl. 989 kr.
Þetta er pilsnerlegur blond-bjór.
Það eru ávextir í lyktinni. Lyktin
minnir á barnatannkrem. Ég fíla
þetta bragð, það er ferskt og gott.
Þegar frúin er að drekka freyðivín
þá færð þú þér einn svona.
Santa Paws Christmas
Scotch Ale
4,5%
33 cl. 444 kr.
Þetta er jólalegt. Mjög góð
lykt. Bjór til að njóta við
arininn. Nei, hann er aðeins
of léttur til þess. Bjór sem fólk
ætti að gefa séns.
Snowball Saison
Jólabjór
8%
33 cl. 865 kr.
Þetta er bjórnördabjór. Jóla-
bjór sem þú vilt geyma fram
á sumar.
Mikkeller Hoppy Lovin’
Christmas
7,8%
33 cl. 881 kr.
Mandarína, barr og engifer í
lyktinni. Greni líka. Ákveðin
beiskja. Vonbrigði með lyktina.
Bragðgóður.
Jólahátíðin hefst hjá mörgum í dag þegar jólabjórinn kemur í sölu í Vínbúðirnar. Fimmta árið í
röð smakka félagar í Fágun, félagi áhugamanna um gerjun, jólabjórana hér í Fréttatímanum og
meta hverjir standa upp úr. Alls voru 22 bjórar smakkaðir að þessu sinni og valdi dómnefndin
fimm sem þótti rétt að verðlauna. Einstök Doppel Bock Jólabjór, sem bruggaður er af Vífilfelli
fyrir norðan, þykir vera besti jólabjórinn þetta árið.
BesTi JólaBJórinn
6,7%
33 cl. 439 kr.
Töluvert malt og smá áfengi í
lyktinni. Karamella. Ég myndi
vilja drekka þennan með jóla-
mat. Þetta er rosa fínn bjór, ég
er bara ekki viss um að þetta
sé doppel bock. Þetta er bjór
til að geyma.
Einstök Doppel Bock Jólabjór
BesTur fyrir fJölDann
5,4%
50 cl. 385 kr.
Það er skemmtileg lykt af
honum, hunangs- og hnetu-
lykt. Hann hefur verið tónaður
niður síðan í fyrra. Þetta er
alls ekki slæmur bjór. Það
geta ábyggilega allir drukkið
þennan.
Thule Jólabjór
JólalegasTi BJórinn
5%
33 cl. 439 kr.
Mikil lykt. Kanill og negull.
Nærri því piparkökulykt. Furu-
tré. Það er kryddað bragð en
ekki of mikið. Það er ekki mikið
að gerast í bragðinu. Það er
jólastemning í honum.
Ölvisholt Jólabjór
forviTnilegasTi BJórinn
7%
33 cl. 636 kr.
Hallelúja! Þessi er fallegur. En
jólalegur er hann ekki. Þessi
væri fínn að sumri til. Lyktin er
frábær. Hef ekki fundið svona
mikla mangó og ávaxtalykt
lengi. Vantar ballans í hann.
Þvörusleikir nr. 28
BesTur fyrir BJórnörDinn
7,2%
33 cl. 740 kr.
Humlabjór fyrir byrjendur. Bjór
sem þú gefur sjálfum þér í jóla-
gjöf. Ég myndi vera mjög glöð
að fá þennan í jólapakkann.
Hoppy Christmas
Víking jólabjór
5%
33 cl. 319 kr.
Þurrkuð blóm í lyktinni. Hann
er rosalega þurr og mikið kol-
sýrður. Ég finn bara kolsýru
og beiskju í bragðinu. Svolítið
rammur.
Föroya Jólabryggj
5,8%
33 cl. 365 kr.
Það er perubrjóstsykur í lyktinni
og sætt perubragð af honum. Góð
lykt. Ég gæti ekki drukkið mikið
af honum. Ég gæti það! Þessi er
fínn. Þeir sem venjulega drekka
lagerbjór en vilja vera ævintýra-
gjarnir ættu að prófa þennan.
Egils Malt Jólabjór
5,6%
33 cl. 319 kr.
Ekki mikil lykt. Þeir skila
maltinu í maltbjórinn. Ekki
að gera sig fyrir mig. Þunnur
þrettándi að drekka.
Almáttugur Steðji Jólaöl
6%
33 cl. 489 kr.
Víking Jóla Bock
6,2%
33 cl. 419 kr.
Jóli
6,3%
33 cl. 489 kr.
Steðji er með lakkrís-
markaðinn! Það er líka lykt
af ostasnakki þarna. Hann
lyktar eins og rauðmyglu-
ostur. Hann væri örugglega
góður með ostum. Guð
minn almáttugur! Þetta er
voðalega sérstakur bjór.
Þetta er eins og tilraun
sem gekk ekki upp.
Það er ekki mikil lykt af
honum. Hann er of mikið
kolsýrður fyrir bock-bjór.
Ekki mikið malt í honum.
Hann hefur verið þykkari.
Ég held að það sé alveg
ljóst að það er búið að
skala hann niður. Þetta er
orðið meðalbjór. Ég get
drukkið fullt af þessu.
Þurrkað engifer í lyktinni.
Ég elska engifer svo
mér finnst þetta fínt.
Miklu lengra bragð en af
hinum Ölvisholts-bjórnum.
Lyktin er betri en bragðið.
Skemmtileg og aðdáunar-
verð tilraun. Pínu Jäger-
meistar-fílingur í honum.
Hrafnkell freyr Magnússon
32 ára eigandi bruggverslun-
arinnar Brew.is.
Margrét grétarsdóttir
31 árs sjálfstætt starfandi
verkefna- og viðburðastjóri.
Bjarki Þór Hauksson
25 ára nemi.
sigurður P. snorrason
48 ára framkvæmdastjóri og
formaður Fágunar.
Dómnefndin: