Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 64

Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 64
64 heilsa Helgin 14.-16. nóvember 2014 Þurfum við fjölvítamín? Flestir heilbrigðir einstaklingar fá þau næringarefni sem líkaminn þarfnast með fjölbreyttu og hollu fæðuvali að D-vítamíni undanskildu sem verður til við tilstilli sólarljósins þegar það skín óhindrað á húðina. Inntaka fjölvítamína ætti aldrei að koma í stað fjöl- breyttrar og hollrar fæðu, en það er fyrst og fremst í fæðunni sem líkaminn fær þau næringarefni sem hann þarfnast. Hinsvegar eru margir sem velja að taka fjölvítamín til að bæta upp hugsanlega þörf á næringarefnum eins og vít- amínum og steinefnum. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa aftur á móti sýnt að flestir þeirra sem taka fjölvítamín daglega eru þeir sem þurfa síst á því að halda, því oftast er þetta fólkið hugsar um að borða holla og fjölbreytta fæðu. Það eru frekar þeir sem eru ekki að borða holla og fjölbreytta fæðu sem þurfa á fjölvítamíni að halda, og einnig reykingamenn. Fjölvítamín hefur jákvæðar afleiðingar á heilsuna, en fyrst og fremst fyrir þá sem fá ekki ráðlagðan dagskammt af næringarefnum í matnum eða þá sem glíma við ein- hvern heilsufarsvanda. Hættan er hinsvegar sú að það eykur líkur á tekið sé of mikið inn af einhverjum vítamínum og steinefnum, til dæmis af járni og A-vítamíni. Prótein stýrir matarlystinni 1 Hollt mataræði. Það er engin töfra-fæða sem kemur í veg fyrir depurð og leiða, en það er alltaf gott ráð að borða hollan mat til að halda líkamanum hraustum, því það er heilbrigð sál í hraustum líkama. Sumum hættir til að sækja í óhollan mat til að hressa sig við en það er skammtímalausn sem hefur öfug áhrif, því óhollustan gerir líkam- anum ekkert gott. Rann- sóknir hafa bent til að matur sem inniheldur omega 3 fitusýrur, eins feitur fiskur og avókadó getur haft góð áhrif á lundarfarið og komið í veg fyrir þunglyndi. 2 Hreyfing. Rannsóknir hafa sýnt að hálftíma ganga á dag gerir sama gagn og væg þung- lyndislyf. Líkamsrækt og hreyfing ýtir undir endorfín framleiðslu, sem lætur manni líða vel. Þegar mikið er að gera getur verið erfitt að koma hreyfingu að, en það að labba á milli hæða til að spjalla við starfsfélaga nokkrum sinnum á dag í stað þess að hringja get- ur gert heilmikið gagn, eða hjóla í vinnuna, fara í göngutúr í stað þess að horfa á sjónvarpið o.s.frv. 3 Svefn. Þeir sem sofa of lítið eru í frekari hættu að finna fyrir depurð og leiða. Taktu svefninn þinn alvarlega og finndu leiðir til að ná betri svefni. Fjarlægðu allar truflanir úr svefn- herberginu, eins og sjón- varp, tölvu, fatahrúgur og fleira til að ná betri hvíld á nóttunni og haltu svefnherberginu hreinu. Sængurfötin geta jafnvel skipt máli, ein rannsókn sýndi að fólk sefur betur ef rúmfötin eru hvít á litinn. 4 Dagsbirta. Sólarljósið getur haft mikil áhrif á lundarfarið. Yfir vetrar- tímann getur verið erfitt að ná í dagsbirtu. Notaðu til dæmis hádegishléð til að fara út og fá smá dagsbirtu. Ef skamm- degið leggst illa í þig þá eru til dagsljósalampar sem gera mikið gagn og hægt er að hafa við skrif- borðið sitt í vinnunni eða á morgunverðarborðinu. 5 Neikvæðar hugsanir. Gættu þín að leyfa ekki neikvæðum hugs- unum að ná yfirhöndinni. Vertu meðvitaður um hugsanir þínar og gættu þess að hugsa ekki hluti eins og að engum líki vel við þig, eða að þú getir ekki neitt. Finndu aðferð til að bæla þessar hugs- anir niður. Líkamsrækt getur bægt hugsunum frá, eða spennandi bók, eða eitthvert verkefni. Finndu eitthvað sem virkar. Lestu bækur og kynntu þér aðferðir til að bægja frá neikvæðum hugsunum. Þær geta verið lamandi og leitt til þunglyndis ef þær fá að leika lausum hala í höfð- inu á þér. 6 Gerðu eitthvað nýtt. Ef til vill finn- urðu til depurðar því þú ert fastur/föst í sömu rútínunni. Prófaðu að gera eitthvað nýtt, fara á tónleika , fara á safn, eða skrá þig á námskeið. 7 Félagsskapur. Gefðu þér tíma til að hitta vini þína. Það þarf ekki stórt matarboð eða sérstakt tilefni til að hitta vinina. Kaffibolli eftir vinnu, eða bíóferð með vinum getur gert góða hluti. Sæktu sérstaklega í þá vini þína sem eru jákvæðir og láta þér alltaf líða vel í návist þeirra. 8 Gerðu það sem lætur þér líða vel. Hvort sem það er spinn- ingtími, prjón, köku- bakstur, liggja í baði með góða bók, fjallganga, dans eða hvað sem er, svo lengi sem þér líður vel á eftir og það kemur þér í gott skap, gerðu það. 9 Taktu geðheils-una alvarlega. Farðu eftir góðum ráðum og ef þú finnur fyrir depurð og breyttu einhverju í þínu daglega lífi strax í dag. Ekki gera allt í einu, veldu eitthvað eitt sem þú vilt breyta og gerðu það strax í dag og ekki nota afsakanir eins og þú komist ekki í göngutúr af því að þú átt ekki nógu góða úlpu eða annað í þeim dúr. Það sem þú gerir á hverjum degi er það sem mótar þig. Láttu þér líða vel Allir kannast við að finna til depurðar öðru hvoru, og sumir oftar en aðrir. Ástæðan getur verið streita, kvíði, áfall eða jafnvel skammdegið, og stundum hellist depurðin yfir á nokkurrar ástæðu. Það er eðlilegt að finna til depurðar og oftast stendur hún yfir í skamman tíma. Ef hún virðist hinsvegar ekki fara og dýpkar með hverjum deginum þá er ráð að tala við lækni eða sálfræðing til að ganga úr skugga um að ekki sé um þunglyndi að ræða. Meðfylgjandi eru nokkur góð ráð til að slá á depurð og viðhalda andlegri heilsu. Lífið er mun auðveldara og betra þegar skapið er gott og rétt eins og holl næring og hreyfing þurfa að vera hluti af daglegum venjum þá er einnig gott að huga að andlegri heilsu daglega. Líkaminn kallar á mat þar til við erum búin að fullnægja próteinþörfinni, samkvæmt rannsókn sem unnin var við háskólann í Sydney í Ástralíu. Fólki hættir því til að borða of mikið, ef fæðan inniheldur of lítið af próteini. David Raubenheimer prófessor er sá sem stýrði rannsókninni og segir hann að það þýði ekkert að telja kaloríur, best sé að draga úr neyslu á unninni matvöru því hún er oftast kolvetnarík og inniheldur lítið af próteini. Hann segir jafnframt að líkaminn aðlagist illa kexi, pítsum og gosdrykkum sem fólk í nútíma samfélagi borðar of mikið af. Best er að borða alvöru mat eins og hann kallar það, þ.e.a.s. mat sem hefur ekkert verið unninn. www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju w.lyfja.is Now D-vítamín 20% afsláttur Gildir til 17. nóvember. Rannsóknir sýna að D-vítamín spilar mikilvægt hlutverk í virkni ónæmis- kerfisins og sem vörn gegn flensu. Hágæða D3-vítamín í olíubasa sem tryggir hámarks nýtingu. Fullkomin lausn í stað mjólkur www.ricedream.eu

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.