Læknablaðið - 15.05.2006, Side 9
FRÆÐIGREINAR / CARCINOMA ANI
Carcinoma ani á íslandi 1987
— lýðgrunduð rannsókn
2003
Halla Viðarsdóttir,
LÆKNANEMII,
Páll Helgi Möller,
SKURÐLÆKNIR
Jakob
Jóhannsson,
KRABBAMEINSLÆKNIR3,
Jón Gunnlaugur
Jónasson,
MEINAFRÆÐINGUR M’5
‘Læknadeild HÍ, 2skurð-
lækningadeild Landspítala
Hringbraut,
3krabbameinslækningadeild
Landspítala Hringbraut,
4rannsóknastofa
HÍ í meinafræði,
5Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags íslands.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Páll Helgi Möller, skurð-
lækningadeild Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sími 5431000, bréfsími
5434835.
pallm@landspiíali.is
Lykilorð: krabbamein í dans,
meinafrœði, skurðaðgerð,
lyfjameðferð, geislameðferð,
lifun.
Agrip
Inngangur: Krabbamein í daus (anal cancer) er
sjaldgæfur sjúkdómur og úttekt á honum hefur
ekki áður verið gerð á íslandi. Markmið þessarar
rannsóknar er að lýsa krabbameini í daus á Islandi
á sautján ára tímabili með tilliti til nýgengis, vefja-
gerðar, meðferðar, endurkomu og lifunar.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn var
gerð á sjúklingum sem greindust með krabbamein
í daus á Islandi á árunum 1987-2003. Upplýsingar
voru fengnar úr sjúkraskrám þessara einstaklinga.
Vefjasýni frá öllum sjúklingunum voru skoðuð og
endurmetin af sama meinafræðingi. Rannsóknin
nær til alls landsins og er því lýðgrunduð rann-
sókn.
Niðurstöður: Alls greindust 38 sjúklingar með
krabbamein í daus á tímabilinu, 28 konur og 10
karlar. Meðalaldur þeirra var 63,4 ár (bil, 33-92).
Aldursstaðlað nýgengi fyrir ísland á rannsókn-
artímabilinu er 0,3 (+/-0,2) af hverjum 100.000
körlum en 0,9 (+/-0,4) af hverjum 100.000 konum.
Flestir sjúklingarnir voru með flöguþekjukrabba-
mein (n=30) en aðrar vefjagerðir voru sortuæxli
ENGLISH
Viðarsdóttir H, Möller PH,
Jóhannsson J, Jónasson JG
Anal cancer in lceland 1987-2003.
A population based study
Læknablaðið 2006; 92: 365-72
Objective: Anal cancer is a rare disease. The aim of
this study was to describe anal cancer in lceland in
1987-2003 with respect to incidence, histologic type,
treatment, recurrence rate and survival.
Material and methods: This is a retrospective study
in which all malignant anal tumours diagnosed in
lceland in the period 1987-2003 were reviewed with
respect to patient outcome. Information was obtained
from hospitals registers. All histological material was
reviewed by a consultant histopathologist (JGJ). This
is a nationwide, population-based study of malignant
tumours of the anal region.
Results: From 1987-2003 thirty-eight patients were
diagnosed with anal cancer, 28 females and 10 males.
The average age at diagnosis was 63.4 years. Age
standardized incidence rates for anal cancer in lceland
were 0.3 (+/-0.2) of 100.000 males and 0.9 (+/-0.4) of
100.000 females. Most patients had squamous cell
carcinoma (n=30). The remaining histologic types
were malignant melanoma (n=3), adenosquamous
carcinoma (n=1), adenocarcinoma (n=1), GIST (n=1) and
(n=3), kirtil-flöguþekjukrabbamein (n=l), kirtil-
frumukrabbamein (n=l), GIST (n=l) og óþroskað
krabbamein (n=2). Helstu einkenni voru blæðing
frá endaþarmi (n=27), fyrirferð (n=28), sársauki
(n=19) og kláði (n=4) og voru flestir sjúklingarnir
með fleiri en eitt einkenni. Tímalengd einkenna
var 3,5 mánuðir (bil, 0,5-96) að miðgildi. Meðferð
var lyfjameðferð (n=12), geislameðferð (n=25) og
staðbundið brottnám (n=18) og/eða APR (n=5).
Einn sjúklingur fékk enga meðferð. Margir sjúk-
linganna fengu fleiri en eina meðferð (n=18). Tólf
sjúklingar fengu endurkomu sjúkdóms. Tíminn frá
greiningu og að endurkomu var 15,6 mánuðir (bil,
5,9-117) að miðgildi. Sextán sjúklingar eru látnir
þar af tíu af völdum krabbameins í daus. Fimm
ára lifun þeirra sem greindust 1987-1998 var 75% í
heild, en 82% ef einungis er tekið mið af þeim sem
létust úr sjúkdómnum.
Alyktun: Nýgengi krabbameins í daus á íslandi
er sambærilegt við það sem þekkist erlendis.
Meðalaldur, kynjahlutfall og horfur er svipað og
þekkist annars staðar. Lægra hlutfall kirtilfrumu-
krabbameins greinist hér á landi.
SUMMARY
undifferentiated carcinoma (n=2). The most common
symptoms were rectal bleeding (n=27), mass lesion
(n=28), pain (n=19) and pruritus (n=4). Most patients had
more than one symptom. The duration of symptoms
before diagnosis ranged from 2 weeks to 96 months
(mean value 3.5 months). Treatment modalities used
were chemotherapy (n=12), radiotherapy (n=25) and local
excision (n=18) and/or APR (n=5). One patient received
no treatment. Many patients were treated with more
than one treatment modality (n=18). Twelve patients
had recurrent cancer. The mean value of the time from
diagnosis of the primary to the recurrent cancer was 15.6
months (range, 5.9-117). Sixteen patients remain with
disease and ten have died of anal cancer. The five year
survival rate for patients diagnosed in the years 1987 to
1998 is 75% but cancer-specific survival is 82%.
Conclusion: Age-standardized incidence for anal
cancer in lceland is similar to other regions. Average
age at diagnosis, male-female ratio and prognosis is
similar to reports in other studies. The proportion of
adenocarcinoma of the anus is lower in lceland than
elsewhere.
Keywords: anal cancer, histopathology, surgery, chemotherapy,
radiotherapy, survival.
Correspondence: Páll Helgi Möller, pailm@landspitali.is
Læknablaðið 2006/92 365