Læknablaðið - 15.05.2006, Page 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR /FRÉTTIR ÚR LÆKNADEILD
Tómas Guðbjartsson hjarla- og œðaskurðlœknir og aðjúnkt við iœknadeild og Gunnhildur Jóliannsdóttir skrifstofustjóri
á skurðdeild Landspílala.
Nýjung í læknadeild:
Valnámskeið fyrír 6. árs nema
í byrjun næsta árs verður í fyrsta skipti boðið
upp á valnámskeið fyrir 6. árs læknanema við
læknadeild HÍ. Þetta er nýjung sem Tómas
Guðbjartsson, sérfræðingur á hjarta- og lungna-
skurðdeild Landspítala og aðjúnkt við læknadeild-
ina hefur umsjón með í samvinnu við kennsluráð
læknadeildar. Boðið er upp á svipuð námskeið
við marga erlenda læknaskóla en við skipulagn-
inguna hefur Tómas meðal annars tekið mið af
reynslu læknadeilda háskólanna í Lundi í Svíþjóð
og Harvard í Boston þar sem hann stundaði fram-
haldsnám og starfaði við kennslu.
„Það má segja að þetta valnámskeið sé eins
konar lokahnykkur á því breytingaferli sem hefur
verið í gangi á læknanáminu og árgangurinn sem
útskrifast á næsta ári hefur rutt á undan sér.“
Tómas segir að breytingarnar hafi staðið lengi
yfir. Þær hafa aðallega verið unnar af Kristjáni
Erlendssyni kennslustjóra læknadeildar en einnig
af kennsluráði og sérstakri valnámskeiðsnefnd
sem í áttu sæti læknarnir Runólfur Pálsson og
Engilbert Sigurðsson og læknanemarnir Davíð Þór
Þorsteinsson og Þórarinn Olafsson.
„Valnámskeiðið sem við erum að kynna núna
er reyndar talsvert frábrugðið því sem gert hefur
verið áður en er engu að síður hluti af breyting-
unum sem verið er að gera.“
Leitað út fyrir ramma deildarinnar
Hann segir að valnámskeiðið sé í grunninn svipað
og valnámskeið í rannsóknarvinnu sem 3. og 4.
árs nemar hafa tekið en með 6. árs námskeiðinu
sé verið að ganga skrefinu lengra. „Nemendurnir
hafa ennþá meira um það að segja hvað þeir vilja
gera og við bindum valið ekki við rannsóknir
eingöngu. Meðal verkefna sem koma til greina á
valnámskeiðinu eru göngudeildarvinna með lyf-
og barnalæknum, hjartaþræðingar, dvöl á heilsu-
gæslustöð, nýburadeild og mæðraskoðun. Einnig
kemur til greina að fylgja skurðlæknum á stofu,
geðlækni á göngudeild eða taka þátt í starfsemi
ofvirkniteymis, kynnast hugrænni atferlismeðferð,
taka þátt í heila- eða hjartaaðgerðum og stunda
grunnrannsóknir. Loks kemur vel til greina að taka
námskeið í siðfræði, heimspeki, sálarfræði, lög-
fræði, stærðfræði og líffræði svo að dæmi séu tekin.
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindarannsóknum
er tilvalið að nýta tímann til að kynna sér frekar
Hávar
Sigurjónsson
Læknablaðið 2006/92 399