Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 18
FRÆÐIGREINAR / MELTINGARFÆRAEINKENNI
300
■o
3
ro
c
3
HJ
SP
§
250
200
150
100
50
0
Eggbúsfasi Gulbúsfasi Eggbúsfasi Gulbúsfasi
Helmingunartími Biötími
Mynd 1. Magatœming,
helmingunartími og bið-
tími. Ekki fannst tölfrœði-
lega marktœkur munur.
inhibin kunna einnig að koma við sögu.
Prógesterón slakar á neðri hringvöðva vélind-
ans og vélindabakflæði eykst á fyrsta þriðjungi
meðgöngu, áður en legið hefur stækkað (3). Sú
hugmynd að styrkur kynhormóna tengdist melt-
ingarfæraeinkennum hjá konum kom upphaflega
frá Wald og félögum (4) þegar þeir uppgötvuðu
að flæði um mjógirni væri hraðara í eggbúsfasa
en gulbúsfasa. Niðurstöður síðari rannsókna á
flæði um meltingarveg eru misvísandi enda hefur
mismunandi tækni verið beitt við rannsóknirnar
og ekki hefur alltaf verið hugað að samanburði á
einkennum og mælanlegum gildum (4-19).
Tilgangur rannsóknarinnar var að bera bæði
meltingarfæraeinkenni og andleg einkenni hjá
frískum konum saman við flæðishraða um melt-
ingarveg á mismunandi skeiðum. Með rannsókn-
um sem ekki eru inngripsmiklar var magatæming-
arhraði, flæðishraði um mjógirni og flæðishraði
um ristil mældur í bæði eggbús- og gulbúsfasa hjá
heilbrigðum, frjóum konum sem ekki tóku getn-
aðarvarnarlyf.
Efniviður og aðferðir
Pátttakendur
Fjórtán konum á aldrinum 20 til 35 ára sem
ekki voru að nota getnaðarvörn (hormón)
var boðin þátttaka í rannsókninni í kjölfar
auglýsingar á vef Háskóla Islands. Pær voru
allar hraustar og höfðu ekki gengist undir
aðgerðir á meltingarvegi. Spurningalisti byggður
á Rómarskilmerkjum I (alþjóðleg skilmerki um
starfræna kvilla í meltingarvegi) var notaður til
að útiloka starfræna kvilla í meltingarvegi og var
lagður fyrir í upphafi og lok rannsóknar. Engin
kvennanna notaði lyf að staðaldri, hafði barn á
brjósti eða hafði fætt barn síðuslu 12 mánuðina
fyrir upphaf rannsóknarinnar. Að undangengnum
ítarlegum útskýringum var fengið skriflegt
samþykki þátttakenda og rannsóknaráætlunin var
samþykkt af vísindasiðanefnd, persónuvernd og
geislavörnum ríkisins.
Tilhögun rannsóknar
Litið var á fyrsta dag blæðinga sem fyrsta dag
tíðahrings. Mælingar í eggbúsfasa fóru fram á
6.-8. degi og mælingar í gulbúsfasa á 20.-22. degi
Magatæmingarhraði, flæðishraði um mjógirni
og flæðishraði um ristil voru mældir einu sinni í
hvorum fasa. Til viðbótar svöruðu þátttakendur
tveimur spurningalistum í hverri heimsókn (á
6.-8. og 20.-22. degi þriggja tíðahringja), annar
varðar meltingarfæraeinkenni (Gastrointestinal
Symptom Rating Scale, GSRS) en hinn snýr að
almennri andlegri líðan (Psychological General
Well Being, PGWB). Báðir spurningalistarnir
voru lagðir fyrir í íslenskri útgáfu sem hefur verið
stöðluð með tilliti til þýðingar. Einu sinni í hvorum
fasa einhvers þeirra þriggja tíðahringja sem rann-
sóknin náði til (á 6.-8. degi og 20.-22. degi) og einu
sinni á fyrsta degi tíðahrings var dregið blóð til
hormónamælinga. Allir þátttakendur byrjuðu á
rannsókn á magatæmingarhraða í eggbúsfasa en
eftir það, í þrjá samliggjandi tíðahringi, var röð
rannsókna tilviljanakennd.
Magatœmingarhraði
Magatæmingarhraði var mældur með ísótópatækni
(isotope-selective nondispersive infrared spectro-
metry, IRIS.Wagner Analysentechnik.Worpswede,
Þýskaland) sem mælir ógeislavirku 13C samsætuna
í útöndunarlofti eftir niðurbrot 13C octanoid sýru.
Octanoid sýra brotnar niður eftir að hafa farið úr
maga niður í skeifugörn. Tækið var stillt (calibra-
ted) fyrir hverja rannsókn. Þátttakendur föstuðu
næturlangt (að minnsta kosti 8 klukkustundir)
fyrir rannsóknina sem hófst á grunngildismæl-
ingu. Eftir að grunngildi hafði verið mælt neyttu
þátttakendur rannsóknarmáltíðar á innan við 10
mínútum. Máltíðin samanstóð af eggjahræru þar
sem 0,1 mL af 13C merktri octanoid sýru (1-13C,
99%; Euriso-top, Frakkland) hafði verið blandað í
eggjarauðuna, tveim ristuðum brauðsneiðum með
5 g af smjöri á hvorri og 150 mL af vatni. Máltíðin
innihélt 26,4 g af kolvetnum, 11,6 g af próteini,
14,8 g af fitu og 3,4 g af trefjum. Orkuinnihald var
um það bil 285 kílókaloríur. 15 mínútum síðar var
fyrsta sýni (útöndunarlofti) safnað og eftir það á
15 mínútna fresti í fjórar klukkustundir. Sýnum
var safnað í 1400 mL álpoka sem var lokað til úr-
vinnslu síðar. Söfnun loftsýna fór fram í rólegu um-
hverfi. Mælingar á 13C02 í útöndunarlofti og mat
678 Læknablaðið 2006/92