Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 26
FRÆÐIGREINAR /HRÖRNUN AUGNBOTNA
1 BYRJUNARSTIG 1
Drúscn Litarefnístilfærslur
- Hörð >63nm í iitþekju
- Mjúk afmörkuð Hypopigmentation
- Mjúk óskýr Hyperpigmcntation
\
Við byrjunarstig á AMD safnast nið-
urbrotsefni frá diskum ljósnema upp og
myndar svonefnd drúsen.
Þurr rýrnun
- með eða án drúsena
Nýæðamyndun Litþekjulos
Blæðing
örvefsmyndun
Mynd 1. Skýringannynd
af byrjunarstigi ARM og
lokastigi AMD.
Related Macular Degeneration) AMD er sjúk-
dómur í litþekju augans, Bruch's himnu og ljós-
nemum í sjónhimnu og veldur gjarnan sjónskerð-
ingu. Algengi sjúkdómsins eykst með hækkandi
aldri.
„Macula" er latneskt orð og þýðir blettur eða
díll og er í raun stytting á „macula lutea“, það er
guli dfllinn eða bletturinn í sjónhimnu auga þar
sem sjónskynjun er sterkust. „Macula“ hefur verið
þýtt sem makúla á íslensku og er það orð notað í
þessari grein (1).
í gegnum árin hefur sjúkdómsástandinu verið
lýst á mismunandi hátt og gefin mörg nöfn. Árið
1885 lýsti Haab þessu sjúkdómsástandi og kallaði
það ellihrörnun í augnbotnum „senile macular
degeneration" (2). Nú meira en 100 árum seinna
eru fræðimenn ekki á eitt sáttir um hvernig eigi
að skilgreina og flokka þetta sjúkdómsástand. í
þessari grein er stuðst við alþjóðaskilgreiningu á
aldursbundinni hrörnun í augnbotnum frá 1995 frá
The International ARM Epidemiological Study
Group (3).
Með hækkandi aldri verða ákveðnar breytingar
í makúlu, æðahimnan þykknar og magn og þétt-
leiki litarefnisins melanín í litþekju minnkar og
litþekjufrumum fækkar. Auk þess verður þykknun
á Bruch’s himnu, og ljósnemum í makúlu fækkar.
Sjúkar litþekjufrumur
Litþekjufrumur
Bruch's himna
Drúsen
Mynd 2. Skýringarmynd af drúsen, sem sýnir drúsen (rautt) með sjúkar litþekjufrumur
yftr, eðlilegar litþekjufrumur og Bruch ’s himnu. (8)
Skilgreiningar og flokkun
á sjúkdómsbreytingum í AMD
AMD er flókinn sjúkdómur og hefur mörg
birtingarform. Breytingar í augnbotnum
koma fram, einstakar eða margar saman.
Margar ólíkar sjúkdómsbreytingar falla
undir þennan sjúkdóm. Alþjóðaskilgreining
á aldursbundinni hrörnun í augnbotnum
frá 1995 (3) var sett fram til að tryggja
samræmi milli rannsókna og er í dag notuð
í öllum stærri faraldsfræðirannsóknum.
AMD er skilgreint sem hrörnun í augnbotnum hj á
einstaklingum 50 ára og eldri. Augnbotnalitmyndir
eða skoðun eru notaðar til að greina þessar breyt-
ingar. Þessi skilgreining notar ekki sjónskerpu til
að greina eða flokka sjúkdóminn.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að þessi
sjúkdómur flokkast samkvæmt alþjóðaskilgrein-
ingunni í byrjunarstig (Age-related maculopathy)
ARM og lokastig (Age-related macular degenera-
tion) AMD.
Byrjunarstig
Við byrjunarstig eru mjúk drúsen á makúlasvæð-
inu sem mælast að minnsta kosti 63 pm í þvermál
eða meira. Drúsen blettirnir geta verið með eða án
litþekjubreytinga.
Ef einstaklingur er með fleiri en 10 hörð drúsen
stærri en 63 pm í þvermál á makúlasvæðiu er
um sjúklegt ástand að ræða, en flestir eru ein-
kennalausir.
Lokastig
Lokastigi er skipt í:
A. Þurra rýrnun (geographic atrophy) með hægt
vaxandi sjóntapi.
B. Vota formið (exudative) oft með brenglun á
sjón og/eða skyndilegu sjóntapi.
Þurra formið getur breyst í vota formið og öfugt
(4).
Mynd 1 skýrir hvernig sjúkdómurinn er flokk-
aður í byrjunarstig (ARM) og lokastig (AMD), og
mismunandi sjúkdómsbreytingar í hverjum flokki.
Skilgreiningarmörk milli heilbrigðis og sjúk-
dóms miðast almennt við að sé einstaklingur með
innan við 10 hörð drúsen teljist það vera innan
eðlilegra marka og að um aldursbundið ástand sé
að ræða án sjúkdóms (5).
686 Læknablaðið 2006/92