Læknablaðið - 15.10.2006, Page 30
FRÆÐIGREINAR / HRÖRNUN AUGNBOTNA
Tafla 1. Algengi byrjunar- og lokstigs AMD í mismunandi aldursflokkum (Klaver et al).
Byrjunarstig Lokastig
Aldur Algengi % Algengi %
65-74 15% 1%
75-84 25% 5%
< 85 30% 13%
Tafla 2. Áhættuþættir sem sýna fylgni viö AMD.
Aldur Augað sjálft: Litur á sjónhimnu, sjónlag, ský á augastein
Fjölskyldu og erföaþættir Hjarta og æðasjúkdómar: Hækkaður blóðþrýstingur, æðasjúkdómar
Kyn Umhverfisþættir: Reykingar, sólarljós, mataræði og fleiri
áhættuþáttur í öllum rannsóknum, og algengi
AMD eykst með hækkandi aldri (18,29,33). Aðrir
þættir sem hafa sýnt fylgni við þennan sjúkdóm
eru meðal annarra:
Fjölskyldu og erfðaþœttir: Arið 1875 var fyrst
lýst ættlægni á AMD, í þremur systrum sem voru
með vota hrörnun (34). Pað var ekki fyrr en 100
árum síðar að niðurstöður úr rannsóknum fóru að
birtast sem staðfestu ættlægni í AMD (35-38).
Rannsóknir hafa sýnt fram á, með tölfræðilegri
marktækni, að jákvæð fjölskyldusaga er stór
áhættuþáttur fyrir AMD, og að hlutfallsleg áhætta
systkina AMD sjúklinga er aukin. Systkini eru í allt
að fjórum sinnum meiri áhættu að fá sjúkdóminn
en viðmiðunarhópur (39-43).
Tvíburarannsóknir hjá eineggja tvíburum hafa
sýnt fram á hærri fylgni á AMD miðað við tvíeggja
tvíburapör (44-48), þar á meðal ein íslensk
rannsókn (45). íslenska rannsóknin notaði maka
sem viðmiðunarhóp og sýndi að tvíburar hafa
meiri fylgni á sjúkdómnum en hjón sem hafa
búið saman í að minnsta kosti 25 ár. Þetta skýrði
erfðaþáttinn fram yfir umhverfi. Nýverið hafa
verið birtar greinar þar sem bent er á aukna tíðni
sjúkdómsins tengt svæðum á litningi 1 og 10 (49-
52). Grein frá Islenskri erfðagreiningu sýndi síðan
að trúlega hefur þessi erfðaþáttur með drusen
myndun að gera (53).
Kyn: Kynjamunur hefur komið fram í nokkrum
rannsóknum. Nýleg rannsókn sem byggðist á
gögnum úr mörgum stórum algengi rannsóknum
á AMD sýndi að konur eru í meiri áhættu á að fá
allar tegundir af AMD miðað við karla (54).
Nýgengi rannsókn Beaver Dam sýndi að konur
yfir 75 ára væru með tvöfalt meiri áhættu á bæði
byrjunar og lokastigi AMD (55).
Stórar augnrannsóknir eins og Framingham,
(56), Rotterdam (57) og Kaupmannahafnarrann-
sóknin (58) sýna aftur á móti engan kynjamun. í
Reykjavíkur-augnrannsókninni er ekki um mark-
tækan kynjamun að ræða (59).
Estrogen hormónið er talið geta verið vernd-
andi þáttur fyrir AMD (27,33,60) og það skýri að
konur sem eru komnar yfir breytingaskeiðið séu í
aukinni áhættu.
Áhœttuþœttir tengdir auganu sjálfu: Rannsóknir
á þessum áhættuþáttum tengjast einkum áhrifum
lits á lithimnu, sjónlagi (það er fjar- og nærsýni)
og skýi á augasteini (32). Dökk lithimna er talin
vera verndandi þáttur fyrir að fá AMD (61, 62)
hugsanlega þar sem dökk lithimna verndar sjón-
himnuna og litþekjuna fyrir ljósgeislum (63).
Blue Mountain-rannsóknin í Ástralíu fann veikt
samband á milli þess að vera fjarsýnn og byrj-
unarstigs en ekki lokastigs AMD (64). Rotterdam
rannsóknin fann ekkert orsakasamband á milli
sjónlags ogAMD (27).
Rannsóknir um orsakasamband á milli þess
að vera með ský á augasteini og AMD eru mjög
misvísandi (47). Aftur á móti er talið að auga-
steinsaðgerðir geti aukið áhættuna á AMD, meðal
annars vegna þess að aukið ljósmagn kemst þá
inn í augað og skýið er þá talinn vera verndandi
þáttur. Það var fyrst sýnt fram á þessa fylgni í
meinafræðirannsóknum árið 1994 (65). Síðan hafa
nokkrar rannsóknir sýnt fram á aukna áhættu
á nýæðamyndun eftir augasteins aðgerð (66).
Beaver Dam-rannsóknin á fimm ára nýgengi (67)
sýndi að einstaklingar sem voru búnir að fara
í augasteinsaðgerð voru í meiri áhættu á að fá
byrjunar- og lokastigsbreytingar, og var þetta töl-
fræðilega marktækt.
Mikilvægt er að fylgjast vel með rannsóknum
á þessu í framtíðinni þar sem mikil fjölgun er á
þessum aðgerðum í hinum vestræna heimi, en hafa
þarf í huga að þegar tekið er ský af augasteini þá
eykst sjónskerpa einstaklinga oft verulega og um
leið og lífsgæði þeirra og geta til að lifa sjálfstæðu
lífi (68, 69). Einnig er hugsanlegt að AMD sé
vangreint fyrir aðgerð vegna lélegrar innsýnar í
augnbotn.
Áhœttuþœttir tengdir hjarta og œðasjúkdómum:
Fjölmargar rannsóknir hafa skoðað tengsl milli
hjarta og æðasjúkdóma og AMD (70). Sumar
rannsóknir hafa fundið jákvæð tengsl (39, 71).
Flækkaður blóðþrýstingur er áhættuþáttur fyrir
AMD samkvæmt einni rannsókn (72), en aðrar
rannsóknir gátu ekki staðfest það (73,74).
Árið 1978 var fyrst sýnt fram á aukna áhættu á
AMD hjá reykingafólki (75). Síðan hafa margar
rannsóknir komist að sömu niðurstöðu (29,39,57,
74,76).Tengslin eru sérstaklega sterk hjá þeim sem
eru með nýæðamyndun og eykst áhættan eftir því
hvað mikið er reykt (57). Niðurstöður úr rannsókn
sem unnin var úr niðurstöðum rannsókna frá
þremur heimsálfum, það er Norður-Ameríku,
Evrópu og Ástralíu, sýndu að reykingar var
sameiginlegur áhættuþáttur fyrir AMD (29).
690 Læknablaðið 2006/92