Læknablaðið - 15.10.2006, Side 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Vel sóttur aðalfundur LÍ
Aðalfundur Læknafélags Íslands var haldinn
á Egilsstöðum 1. og 2. september. Fundurinn var
einkar vel sóttur en 54 fulltrúar voru mættir af
þeim 57 sem atkvæðisrétt hafa fyrir hönd svæða-
og sérfélaga innan LÍ. Auk þeirra sátu fundinn
12 gestir úr hópi lækna en allir félagar í LÍ mega
sitja aðalfund með málfrelsi og tillögurétt. Þá voru
margir makar með í för þannig að nær 100 manns
voru gestkomandi á Egilsstöðum af þessu tilefni.
Að hefðbundnum aðalfundarstörfum sleppt-
um urðu allsnarpar umræður um ýmis málefni er
tengdust Landspítala og voru samþykktar harð-
orðar ályktanir þar sem stjórn LSH var átalin fyrir
vinnubrögð í málefnum er snerta lækna og stjórn
spítalans; meðal annarra uppsagnir yfirlæknanna
Stefáns Matthíassonar og Tómasar Zöega og
málarekstur í kjölfar þeirra. Má sjá ályktanirnar
í heild sinni á heimasíðu LÍ, www.lis.is Hafa þær
vakið talsverða umræðu og viðbrögð í kjölfarið.
Dagskráin á laugardeginum teygðist nokkuð
vegna umræðna um ályktanir og var fundi ekki
slitið fyrr en rúmlega sjö um kvöldið en það var
almennt mál manna að umræður hefðu verið gagn-
legar og mikill einhugur í fundarmönnum um efni
ályktananna.
Málefni unglækna og 5,- 6. árs læknanema voru
einnig til umræðu en fulltrúar Félags unglækna
báru upp tillögu þess efnis að 5. og 6. árs nemar
fengju inngöngu í LÍ með þeim rökum að í störfum
sínum á sjúkrahúsum og í læknishéruðum landsins
ynnu nemarnir iðulega sömu störf og bæru sömu
ábyrgð og læknar gera. Var á það bent að þetta
tíðkaðist óvíða nema hér að nemar störfuðu sem
fullnuma læknar væru en engu að síður væri þetta
staðreynd sem taka yrði tillit til. Tillögunni var á
endanum vísað til næsta aðalfundar. Samþykktar
tillögur má einnig sjá á www.lis.is
Eftir að fundi lauk á föstudeginum var ekið sem
leið lá inn að Skriðuklaustri hvar staðarhaldari
Gunnarsstofnunar tók á móti hópnum með góðum
veitingum og fyrirlestri um hið forna klaustur og
kynnti vísbendingar um að þar hafi í raun verið
rekinn fyrsti spítali landsins á vegum klaustursins.
Var að lokum gengið um svæðið sem grafið hefur
verið upp. Eftir þetta var haldið um borð í Lag-
arfljótsorminn, fljótandi veitingahús Héraðsbúa,
og snæddur kvöldverður meðan siglt var frá
Atlavík út til Egilsstaða.
Á laugardagsmorguninn var haldið í skoð-
unarferð um Kárahnjúkasvæðið í boði Landsvirkj-
unar og væntanlegt risavaxið raforkuverið kynnt
í bak og fyrir. Var fundi síðan fram haldið eftir
hádegi þegar Kárahnjúkafarar voru snúnir aftur
til byggða og búnir að jafna sig á þeim tíðindum
er virkjunin sætir. Aðalfundi LÍ 2006 lauk með
sameiginlegum málsverði fundarmanna, maka og
gesta þá um kvöldið.
Margt brann á aðalfund-
arfulltrúum í ár - þeir skip-
uðu sér í sœti í björtum
og rúmgóðum sal Hótels
Héraðs á Egilsstöðum,
Samúel J. Samúelsson var
ánœgður með fundargögn-
in, Ástríður Jóhannesdóttir
svaraði fyrir Fjölskyldu-
og slyrktarsjóð, Halla
Skúladóttir og Sigurður
Björnsson drukku kaffi,
og þríeykið Gunnar
Ármannsson, Sigurður
E. Sigurðarson og Stefán
Pórarinsson höfðu um
skeið mestan áhuga á
gengi Eiðs Smára ífyrsta
leik kappans með
Barsilóna.
Hávar
Sigurjónsson
Læknablaðið 2006/92 699