Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2006, Síða 45

Læknablaðið - 15.10.2006, Síða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁBYRGÐ SJÚKLINGA Steinbrook bendir á að engar rannsóknir hafi farið fram á því hvort slíkur samningur um aukin réttindi á sviði heilsugæslu efli vitund fólks um ábyrgð á eigin heilsufari og hann bendir reyndar á að margt mæli gegn því að einstaklingar úr neðstu stéttum samfélagsins séu félagslega og heilsu- farslega hæfir til að standa undir slíkri ábyrgð. Undir þetta taka læknarnir Bishop og Brodkey sem benda á helstu annmarka þess að ofangreint kerfi komi þeim til góða sem það er ætlað. Þau benda líka á að kerfið reiði sig á upplýsingar frá lækni um hvort sjúklingur standi við ákvæði samn- ings og það stríði gegn trúnaðarskyldu læknis við sjúkling og geti hæglega valdið trúnaðarbresti milli þeirra. Þau setja fram tilbúið dæmi sem þó gæti alveg átt sér stoð í veruleikanum. „Mary Jones er sjúklingur þinn, 53 ára gömul og þjáist af sykursýki og offitu. Hún þróaði þessa sjúkdóma með sér eftir að hún hóf að taka dæmi- gert geðlyf við geðklofa. Jones skrifaði undir samn- ing um hún ætlaði alltaf að mæta í læknisskoðanir, sækja fræðslunámskeið um sykursýki og léttast. Hún hætti að mæta á námskeiðið vegna vænisýki og hefur þyngst um 3 kg. Hún fékk fræðsluefni hjá þér til að lesa en þú ert búinn að komast að því að hún skilur það ekki. Hún hefur ekki mætt í tvær síðustu skoðanir, í seinna skiptið átti hún ekki fyrir strætisvagninum. Hvorki langtímablóðsykur hennar né blóðfita er á viðmiðunarmörkum. Lögin kveða á um að þú sért skyldugur til að koma þessum upplýsingum á framfæri við heilbrigðis- yfirvöld fylkisins og Mary Jones mun líklega missa réttindi sín til læknisþjónustu og lyfseðla sem hún þó þarf óumdeilanlega á að halda.” Einn af stjórnendum CMS (Centers for Medi- care and Medicaid Services) hefur nýlega sagt: „Skjólstæðingar Medicaid taka þannig þátt í þeirri vaxandi tilhneigingu í heilbrigðisþjónustu sem gerir sjúklingum kleift að taka upplýstar, neyslustýrðar ákvarðanir í samræmi við þeirra eigin meðferð.” Bishop og Brodkey taka undir að persónu- leg ábyrgð einstaklings á sjálfum sér sé ávallt fagnaðarefni og eigi sér sannarlega traustan menn- ingarlegan sess í vitund Bandaríkjamanna. Það stríði þó engu að síður gegn viðteknum hugmynd- um um tengsl læknis og sjúklings. í öllum sam- skiptum læknis og sjúklings er fólginn samningur um meðferð og í þeim samningi felst skilningur beggja um hvað teljast skuli hámarksárangur og hvers krefjast megi með sanngirni. Þó sjúklingi mistakist er ávallt reynt að semja upp á nýtt. Mistök geta átt sér ýmsar orsakir, veik börn, þung- lyndi, óvænt yfirvinna og hrein og klár gleymska. Ef grafist er fyrir um orsakir mistakanna er oft hægt að bæta úr þeim en refsingar eða niðurlæging geta valdið enn verri ástundun meðferðarinnar. Kerfið vekur líka spurningar um sanngirni. I sumum tilfellum geta ástæður þess að sjúklingi tekst ekki að standa við gerðan samning verið honum algjörlega óviðkomandi, til að mynda truflanir á almenningssamgöngum eða veikindi barna sem kalla á heimsóknir á bráðadeild utan skrifstofutíma á virkum dögum. í öðru lagi krefur samningur Medicaid sjúkling um að standa við hegðun sem ekki er krafist af öðrum sjúklingum. „Allt og sumt sem farið er fram á er að sjúkling- urinn taki lyfin sín, fari að ráðum læknsins og mæti á réttum tíma.” Hversu margir sjúklingar standa við þessi einföldu fyrirheit spyrja Bishop og Brod- key og benda á að við bestu skilyrði í klínískum rannsóknum hafi sjúklingar hlýtt fyrirmælum um lyfjatöku á bilinu 43-78% og þar að auki séu ekki til samræmd viðmið um hvað kallist viðunandi hlýðni við slík fyrirmæli. Þau benda einnig á að samningur Medicaid beinist að þeim sem hafi hvað minnsta möguleika á að standa við hann. „Fátækt veldur takmörkuðu aðgengi að barnagæslu, akstri, hollum mat og líkamsræktaraðstöðu, auk minna læsis, fleiri áfalla í lífinu og auknu hlutfalli ómeðhöndlaðra geðsjúk- dóma. Fólk sem hefur litla reynslu af velgengni er ólíklegra en aðrir til að trúa því að það geti breytt heilsufari sínu. Þessi áætlun krefur þá sem minnst mega sín til að ná meiri árangri en aðrir, en með mun færri möguleikum til að ná því sem farið er fram á.” Ennfremur benda þau á að samningurinn krefji lækni um að brjóta öll þrjú grundvallarboðorð læknaeiðsins og um fagmennsku í læknisfræði; að velferð sjúklings hafi ávallt forgang, að sjúklingur eigi ávallt síðasta orðið og félagslegt réttlæti skuli ráða ákvörðun læknis. „Það veldur hugsanlegum árekstrum ef læknir er settur í þá stöðu að tilkynna um hegðun sjúklings þó almannaheill sé ekki í veði, og skaða þar með hugsanlega sjúklinginn eða tengsl hans við lækninn. Um leið og læknar verða umboðsmenn ríkisins mun tortryggni hinna verst settu sjúklinga eingöngu aukast gagnvart heilbrigðiskerfinu. Kerfið ýtir undir mismunun á grundvelli félagslegrar og fjárhagslegrar stöðu og einnig á grundvelli sjúkdómsgreiningar, þar sem til að mynda eitt af einkennum geðsjúkdóms getur einmitt falist í vanhæfni sjúklings til að standa við samning.” Bishop og Brodkey ljúka loks grein sinni á þeirri áminningu að „á tímum „persónulegrar ábyrgðar” verði læknar að láta til sín heyra um hvaða áhrif slíkar áætlanir hafi á læknisstörf þeirra og heilsu sjúklinga.” Læknablaðið 2006/92 705
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.