Læknablaðið - 15.10.2006, Page 48
UMRÆÐA & FRETTIR / AHUGAMAL
Einstök aðferð til að upplifa náttúruna
Hávar
Sigurjónsson
Maður og haf renna saman í eitt, árin gárar
spegilsléttan hafflötinn og rétt utan seilingar skýt-
ur forvitinn selur upp kollinum og virðir manninn
fyrir sér. Þetta hljómar kannski eins og draumsýn
en fyrir kajakræðarann er þetta alvanalegt og jafn-
framt það sem gerir kajaksiglingar svo eftirsókn-
arverðar.
ReynirTómas Geirsson, prófessor og yfirlæknir
á kvennadeild Landspítala og eiginkona hans
Steinunn Sveinsdóttir, hafa stundað kajaksigl-
ingar um 11 ára skeið og hafa siglt víða, bæði við
íslandsstrendur og erlendis, og fundið sig vel í
þessari íþrótt sem ReynirTómas segir góða aðferð
til hvíldar frá amstri dagsins en einnig einstaka leið
til að upplifa náttúruna og skoða ýmsa forvitnilega
staði sem ekki er svo auðvelt að nálgast af landi.
„Ég stundaði talsvert skíðaíþróttina áður og
göngur á fjöll en kynntist kajaksiglingum í gegnum
ágætan félaga minn úr læknadeildinni sem býr
í Kanada. Hann var hér á ferðinni og sagði mér
af því að hann hefði verið í kajakróðri í British
Columbia í Kanada. Ég hafði strax mikinn áhuga
á að heyra meira um þetta og hann sagði mér
að þau hjónin ætluðu í annan slíkan róður næsta
sumar. Þegar ég fregnaði nánar eftir tímasetn-
ingu þá hittist svo vel á að þau ætluðu að hefja
ferðina daginn eftir að læknaráðstefnu í Seattle
lyki sem ég ætlaði að sækja. Mér tókst að fá kon-
una mína með mér í þetta og við æfðum okkur
hér heima í Skerjafirðinum fyrr um sumarið og
henni leist strax ákaflega vel á. Við vorum síðan í
viku í British Columbia og heilluðumst af þessari
skemmtilegu íþrótt sem jafnframt er alveg ein-
staklega góður ferðamáti til að sjá landið frá nýju
sjónarhorni.”
Þegar heim var komið eftir jómfrúarferðina
í Kanada drifu þau hjón sig vestur í Vatnsfjörð
þar sem á þeim tíma var starfrækt kajakaleiga.
„Þegar við komum í land eftir síðdegissiglingu út
í Breiðafjörð þá spurði ég manninn sem rak leig-
una hvort hann vildi ekki selja mér bátana tvo sem
við höfðum verið á. Það varð úr að hann seldi mér
bátana með nauðsynlegasta búnaði sem dugði
okkur vel til að byrja með en síðan höfum við
búið okkur æ betur og endurnýjuðum bátana fyrir
nokkrum árum þegar við keyptum okkur mjög
góða sjóbáta, enda höfum við stundað þetta mjög
mikið síðustu tíu árin.”
Róið víða um heim
Reynir Tómas og Steinunn hafa róið á kajökum
víða um heim, meðal annars við Nýja Sjáland,
Grænland, Danmörku, Kanada, Chile og við eyjar
í Karabíska hafinu. „Það má segja að við höfum
gripið tækifærin þegar þau hafa gefist og oft
skipulagt ferðir okkar með tilliti til möguleika á
kajaksiglingu.”
Þegar fregnað er nánar eftir ferðum þeirra hér
heima kemur á daginn að þau hafa siglt víða með
ströndum landsins í lengri ferðum, en þau skreppa
einnig í styttri ferðir um sundin við Reykjavík eða
þangað sem fljótlegt er að keyra því lítil fyrirhöfn
er að setja bátana upp á bílinn og aka að vatni
eða sjó. „Við förum oft út á sundin um helgar,
kringum Viðey, út í Engey eða Þerney enda er
hægt að stunda kajaksiglingar árið um kring má
segja. Við höfum að vísu dregið úr siglingum frá
nóvember og fram í mars en þó hef ég slegist í hóp
með ræðurum sem róa yfir veturinn frá aðstöðu
Kajakklúbbsins á Geldinganeseiðinu. Það er líka
stutt að keyra með bátana austur á Þingvallavatn
eða upp í Hvalfjörð. Það tekur okkur innan við
hálftíma að hafa okkur til með bátana og nest-
isbita enda erum við orðin vön að skreppa svona
708 Læknablaðið 2006/92