Læknablaðið - 15.10.2006, Page 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BRAÐAUTKÖLL
Loftpúðar í bílum eru hannaðir til þess að
springa út við árekstur og draga úr áverkum. Þeir
springa örugglega út ef keyrt er beint á vegg, en
við hliðarárekstur eða bílveltu er það ótryggt. Eftir
árekstur getur ósprunginn loftpúði hins vegar
sprungið út hvenær sem er og þekkt eru tilvik
erlendis frá þar sem slíkt hefur valdið áverkum og
jafnvel drepið björgunarmenn. Mikilvægt er því að
björgunaraðilar þekki þessa hættu og fari aldrei
milli sjúklings og ósprungins loftpúða. Þrátt fyrir
að búið sé að rjúfa straum á bíl getur loftpúðinn
sprungið út.
Iðnaður
Við iðnaðarslys getur verið um að ræða hættu
vegna sérhæfðra véla eða bygginga. A bygging-
arsvæðum eru yfirleitt hættur til staðar sem getur
verið erfitt fyrir óvana að þekkja. Sérstök hætta er
til staðar í álverum, vegna háspennu í kerskálum
er mikil hætta á banvænu skammhlaupi sé ekki
farið eftir þeim öryggisreglum sem þar gilda.
Einnig getur verið að rafeindabúnaður starfi ekki
rétt vegna segulsviðsins. Við útköll á iðnaðarsvæð-
um er því æskilegt að starfsmaður vinnustaðarins
fylgi áhöfn sjúkrabíls við störf sín og tryggi að
öryggis sé gætt, sérstaklega þegar farið er í ker-
skála álvera. Einnig getur starfsmaðurinn búið yfir
mikilvægum upplýsingum sem nýtast við björgun
eða vinnu viðbragðsliðs á staðnum, til dæmis um
aðkomuleiðir eða hvernig tæki eða vélar virka.
Ofbeldi
Því miður er hætta á að viðbragðsaðilar verði fyrir
ofbeldi við störf sín á vettvangi. í flestum tilfellum
er ekki mikil ástæða til að hafa áhyggjur af ofbeldi,
enda sem betur fer fáir einstaklingar ofbeldisfullir
í samfélaginu. Ekki er þó sjaldgæft að verið sé að
sinna einstaklingum sem eru í neyslu áfengis eða
fíkniefna og oft er útkallslýsing mjög óljós þannig
að hafa þarf hættu á ofbeldi í huga.
Það er farsæl vinnuregla sé þess nokkur kostur
að læknir og sjúkraflutningamaður fari ávallt
saman inn í hús og hafi fjarskiptatæki á sér. Þegar
inn til sjúklings er komið er betra að vera stað-
settur nær dyrum þannig að möguleg útgönguleið
sé til staðar ef þörf krefur. Fyrir hefur komið að
sjúklingar hafa verið með vopn í hendi undir sæng
eða fyrir aftan bak og því nauðsynlegt að sjá hend-
ur viðkomandi. Taka skal alvarlega allar hótanir
um ofbeldi, bæði munnlegar sem og líkamlegar.
Einstaklingar sem hafa verið í slagsmálum eru oft
enn mjög örir þegar að er komið, með kreppta
hnefa og tilbúnir til frekari átaka og þarf þá að
byrja á að róa þá niður áður en hægt er að fara að
sinna mögulegum áverkum.
Ef viðbragðsaðili telur að öryggi sínu sé ógnað
Læknablaðið 2006/92 717