Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2006, Page 67

Læknablaðið - 15.10.2006, Page 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SVAR VIÐ BRÉFI TIL BLAÐSINS fæðingarkrampi, slæm heilsa móður, aldur móður, löng fæðing, fósturnauð og blæðing fyrir burð (antepartum hemorrhage) auki líkur barns á að greinast með ofvirkni (ADHD). Pá er mikilvægt að hafa í huga að þau tengsl sem koma fram í rann- sókn okkar milli ofvirkniröskunar annarsvegar og keisaraskurða og tangarfæðinga hinsvegar gætu orsakast af öðrum undirliggjandi þáttum. Vissulega eru takmarkanir á þessari rannsókn og ber að skoða niðurstöðurnar í því ljósi. Pær geta vakið fleiri spurningar en svör en eins og fram hefur kornið er hér um lýsandi rannsókn að ræða og ekki forsendur til að draga ályktanir um orsakasamhengi. Heimildir 1. Valdimarsdóttir M, Hrafnsdóttir AH, Magnússon P, Guðmundsson ÓÓ. Orsakir ofvirkniröskunar - yfirlitsgrein. Læknablaðið 2005; 5:409-14. 2. Biederman J, Faraone SV. Attention-deficit hyperactivity disorder. Lancet 2005; 237-48. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar í samvinnu við Félag íslenskra heimilislæknaboðar til fræðslufundar fimmtudaginn 26. október 2006 kl. 20:00 í Flringssal Barnaspítala Landspítala Héraðsiæknar og saga Haukur Valdimarsson heimilislæknir: Síðulæknar Árið 1875 urðu þáttaskil í heilbrigðisþjónustu á íslandi. Læknaskóli var settur á stofn og sett voru lög um læknishéruð sem fólu í sér verulega fjölgun þeirra. Vestur-Skaftafellssýsla varð samkvæmt lögunum sérstakt læknishérað. Áður, eða frá 1760, gegndu landlæknir og síðar læknar í austurhluta suðuramtsins héraðinu. Suðuramtslæknar sátu yfirleitt í Rangárvallasýslu. Undantekning frá því var þegar Sveinn Pálsson læknir gegndi Sunnlendingum frá Vík í Mýrdal á árunum 1809-1834. Sigurður Ólafsson var fyrsti Síðulæknirinn. Hann gegndi héraðinu árin 1876-1882. Nokkrir læknanna helguðu héraðinu starfsæfina. Saga heilbrigðisþjónustu á þessum tíma og langt fram á síðustu öld er saga héraðslæknanna. Heilbrigðisskýrslur frá þessum tíma gefa til kynna hvar skóinn helst kreppti í heilsufari héraðsbúa sem og annarra landsmanna. Kristrún Hall Helgadóttir, sagnfræðingur: Nýskipan læknis í Ólafsvík og baráttan við háa dánartíðni ungbarna Um aldamótin 1900 fjölgaði læknishéruðum á íslandi úr sjö í 42 en fjölgunin haföi mikla breytingu í för með sér. Hér verður sjónum beint að Nesþingum, sjávarplássunum á utanverðu Snæfellsnesi. Héraðið var að heita má læknislaust allt fram til ársins 1892 er læknir var skipaður með búsetu í Ólafsvík. í Nesþingum reyndist dánartíðni ungbarna ein sú hæsta á landinu langt fram eftir 19. öld en var komin niður fyrir landsmeðaltal árið 1910. Hvers vegna var dánartíðni ungbarna jafn há og raun ber vitni og hvað olli undraverðri niðursveiflu hennar? Höfðu eldishættir bein áhrif á dánartíðni ungbarna eða var um samspil fleiri þátta að ræða og hverju breytti skipan læknis í héraðið? Eftir fundinn er boðið upp á kaffi Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum um efnið Heimasíða félagsins: www.icemed.is/saga/ Læknablaðið 2006/92 727

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.