Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝ STJÓRN / LAUS STAÐA
/
Ný stjóm Geðlæknafélags Islands
Á aðalfundi Geðlæknafélags Islands sem hald-
inn var 29. aprfl 2006 var Kristófer Þorleifsson
kosinn formaður. Aðrir í stjórn eru Nanna Briem
ritari, H.Magnús Haraldsson gjaldkeri, Garðar
Sigursteinsson varaformaður og Bertrand Lauth
meðstjórnandi.
Magnús: hmagnus@landspitali. is
Garðar: gas@laekning.is
Bertrand: bertrand@landspitali.is
Netföng stjórnarmanna eru eftirfarandi:
Kristófer: kristoth@landspitali.is
Nanna: nannabri@landspitali.is
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands
Fæðinga- og kvensjúkdómalæknir!
Laus er staða fæðinga- og kvensjúkdómalæknis við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Á deildinni starfa 2 læknar og er ætlunin að styrkja starfsemina með ráðningu þessari.
Þátttaka í vöktum er því nauðsynleg. Fæðingar eru u.þ.b. 150 á ári og er starfið liður í að sinna þeim ásamt skurð-
stofu, legudeild og almennri göngudeildarvinnu.
Upplýsingar um stöðuna veita Óskar Reykdalsson lækningaforstjóri HSU í síma 868 1488 og Jón B. Stefánsson
yfirlæknir í síma 553 7067.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi.
Þjónustusvæði stofnunarinnar nærtil rúmlega 18000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu.
Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi með 55 sjúkrarúm, auk þess sem stofnunin rekur Réttargeðdeildina á Sogni í
Ölfusi.
Alls eru um 220 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands vekur athygli á góðum búsetukostum og góðri alhliða þjónustu í sveitarfélögum á Suðurlandi. Kostir þess að búa á
Selfossi og í nágrenni eru miklir. Þaðan er stutt til Reykjavíkur, framhaldsskóli er á Selfossi og möguleikar á fjarnámi á háskólastigi hjá Fræðsluneti
Suðurlans. Góð verslunarþjónusta er á Selfossi og í Hveragerði og öll almenn þjónusta er mjög nærtæk. Skólastarf er gott í þessum bæjarfélögum
og næg dagvistarrými fáanleg á Selfossi. Góðir húsnæðismöguleikar eru á svæðinu þar sem sérbýli er einkennandi fyrir byggðina. Þá er íþrótta-
starf gott og fjölbreytt með áherslu á barna- og unglingastarf og íþróttaastaða góð.
Læknablaðið 2006/92 729