Læknablaðið - 15.12.2006, Side 11
FRÆÐIGREINAR / AUGNLÆKNINGAR
Sjónhimnubjúgur og
barksterasprautun augna
Elín
Gunnlaugsdóttir'
Læknanemi
Dan O. Öhman2
SÉRFRÆÐINGUR
í AUGNLÆKNINGUM
Sigurlaug Guðrún
Gunnarsdóttir2
Hjúkrunarfræðingur
Einar Stefánsson1,2
SÉRFRÆÐINGUR
í AUGNLÆKNINGUM
1 Læknadeild Háskóla íslands,
2 Augndeild Landspítala
Hringbraut.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Einar Stefánsson, Augndeild
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík.
einarste@landspitali. is
Lykilorð: glerhlaupsinndœling,
makúlubjúgur; augnsjúkdómar
í sykursýki, augasteinsskipti,
bláœðalokun í sjónhimnu,
œðahimnu- og sjónhimnu-
bólga.
Ágrip
Tilgangur: Að meta árangur af triamcinolone
acetonide barksterainndælingum í glerhlaup augna
á Islandi frá því þær hófust í febrúar 2004 til loka
júnímánaðar 2006.
Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskrár 28
sjúklinga sem höfðu fengið barksterainndælingu
í auga á Islandi á áðurnefndu tímabili. Sjúklingar
voru flokkaðir eftir orsök makúlubjúgs (sykursýki
(n=10), augasteinsskipti (n=7), bláæðalokun í sjón-
himnu (n=7) og æðahimnu- og sjónhimnubólga
(n=4)). Skráð var sjónskerpa fyrir meðferð og 1,
3 og 6 mánuðum síðar. Einnig voru skráðar upp-
lýsingar um augnþrýsting og þykkt miðgrófar
samkvæmt optical coherence tomography (OCT)
tækni fyrir og eftir meðferð. Algengast var að
sjúklingar fengju 8 mg af triamcinolone acetonide.
Fylgikvillar (hækkun augnþrýstings, ský á auga-
steini eða sýking), sem tengdust meðferðinni, voru
skráðir.
Niðurstöður: Eftir inndælingu höfðu fjórir af tíu
í sykursýkishópnum bætta sjónskerpu og fimm
óbreytta sjón. Áhrifin héldust í sex mánuði hjá
öllum nema einum.Tveir af sjö sem fengu meðferð
vegna makúlubjúgs eftir augasteinsskipti höfðu
bætta sjónskerpu mánuði eftir meðferð og fimm
héldu óbreytlri sjón. Áhrifin héldust í sex mánuði
hjá öllum nema einum sem hafði síversnandi sjón.
Af þeim sjö sem fengu inndælingu eftir bláæðalok-
un í sjónhimnu höfðu þrír bætta og fjórir óbreytta
sjón í sex mánuði. Fjórir fengu meðferðina vegna
æðahimnu- og sjónhimnubólgu. Eftir mánuð höfðu
tveir bætta sjón og tveir sáu jafn vel og fyrir með-
ferð. Sjónmælingar voru óbreyttar eftir þrjá og sex
mánuði hjá öllum nema einum sem hafði versn-
andi sjón. I sykursýkis- og bláæðalokunarhóp-
unum sást marktæk þynning makúlu samkvæmt
OCT-mælingum. Fjórir mældust með hækkaðan
augnþrýsting eftir inndælingu og svöruðu þeir allir
lyfjameðferð.
Ályktun: Inndæling triamcinolone acetonide bark-
stera í glerhlaup sjúklinga með makúlubjúg bætir
sjónskerpu hjá um 40% sjúklinga, viðheldur henni
ENGLISH SUMMARY
Gunnlaugsdóttir E, Öhman DO, Gunnarsdóttir S, Stefánsson E
Macular oedema and intravitreal triamcinolone injections
Læknablaöið 2006; 92: 847-57
Purpose: To evaluate the efficacy of intravitreal
triamcinolone injections for macular oedema in lceland
2004-2006.
Methods: We reviewed hospital records of 28 patients
who underwent intravitreal injection with triamcinolone
acetonide 2004-2006. Most patients were treated
with 8mg of triamcinolone acetonide. Patients were
categorized according to the cause of macular oedema
(diabetes (n=10), phacoemulsification (n=7), branch
retinal vein occlusion (BRVO) (n=7) and uveitis (n=4)).
Best corrected visual acuity was determined before
treatment and 1,3 and 6 months postoperatively.
Intraocular pressure and foveal thickness were measured
before and after treatment.
Results: Visual acuity improved in 4 patients with
diabetic macular oedema while 5 had unchanged
vision. The effect lasted 6 months in 8 out of 9
cases. Seven were treated for macular oedema after
phacoemulsification. Two had improved visual acuity
after the injection and 5 had unchanged eyesight. The
effect lasted for 6 months in every case except for one
who lost vision. Out of 7 who were treated for macular
oedema after BRVO, 3 had improved visual acuity and
4 remained unchanged for 6 months. Four patients with
uveitis got triamcinolone injections and a month after
treatment 2 had better vision and 2 had unchanged
visual acuity. The effect lasted for 6 months in all
cases but one. In the diabetes and BRVO groups OCT
showed a significant reduction of foveal thickness. In 4
cases intraocular pressure increased, all of them were
successfully treated with topical treatment.
Conclusion: Intravitreal triamcinolone improves
visual acuity in about 40% of patients with macular
oedema, about 10% lose vision and about 50% remain
unchanged. OCT reveal improved anatomic results with
significant reduction of foveal thickness and macular
oedema. No serious complications were noted.
Keywords: triamcinolone acetonide, intravitreal injection,
macular oedema, optical coherence tomography, diabetic
macuiar oedema, phacoemulsification, branch retinat vein
occiusion, uveitis.
Correspondence: Einar Stefánsson
einarste@iandspitaii.is
Læknablaðið 2006/92 847