Læknablaðið - 15.12.2006, Page 19
FRÆÐIGREINAR / BARKABÓLGA
Sjúkratilfelli:
Langdregin barkabólga í kjölfar
herpes simplex sýkingar
Margrét
Sturludóttir'
AÐSTOÐARLÆKNIR
Helga Margrét
Skúladóttir1
DEILDARLÆKNIR
Þórólfur
Guðnason2
SÉRFRÆÐINGUR
í BARNA- OG
SMITSJÚKDÓMA-
LÆKNINGUM
Björn Árdal2
SÉRFRÆÐINGUR í OFNÆM-
ISLÆKNINGUM OG
KLÍNÍSKRI ÓNÆMISFRÆBI
Ágrip
Á síðustu árum hefur örfáum tilfellum af herpes
simplex barkabólgu verið lýst hjá áður hraustum
börnum. Sjúkratilfellið er um 15 mánaða gaml-
an hraustan dreng sem lá inni á Barnaspítala
Hringsins vegna barkabólgu, en hann sýndi
ekki batamerki innan viku líkt og vaninn er.
Drengurinn var greindur með herpes simplex
barkabólgu á grunni blóðvatnsprófa en hann hafði
sár í munni af hennar völdum.
Drengurinn fékk barkstera við komu sem er
viðurkennd meðferð við slæmri barkabólgu. Óljóst
er hvort og hversu skaðlegir barksterarnir eru við
herpes simplex barkabólgu. í þessu tilfelli hafði
barksteragjöfin ekki úrslitaáhrif en talið hefur
verið að langvarandi barksteragjöf geti stuðlað að
herpes simplex barkabólgu.
Fræðimenn hafa einnig deilt um hvort aðrar
veirur auðveldi herpes simplex að ná fótfestu en
í þessu tilviki voru algengar veirusýkingar útilok-
aðar með blóðvatnsprófi.
ingu í efri öndunarvegum (3). Sjúkdómurinn er
venjulega mildur og gengur nær alltaf yfir á 3-7
dögum. Einkennin skýra ef til vill alþjóðlega nafn-
gift sjúkdómsins en orðið krúpp er dregið af eng-
ilsaxneska orðinu „kropan" sem er vafalaust skylt
íslenska orðinu „hrópa” (1).
Barkabólga er nánast alltaf orsökuð af veirum
en bakteríur geta þó einstaka sinnum valdið svæsn-
um sýkingum á þessu svæði, þá vanalega í kjölfar
veirusýkinga (3). Sú veira sem langoftast, eða í um
70% tilfella, veldur barkabólgu er parainflúensur
af gerð 1, 2 og 3 (2). Aðrar veirur eru inflúensur
A og B veirur, adenoveirur, RS veira (respiratory
syncytical virus), metapneumóvírus og mislingar
(1,4-6). Áður var talið að herpes simplex veira ylli
ekki barkabólgu hjá hraustum börnum en í nýleg-
um heimildum er lýst örfáum tilfellum af langvar-
andi barkabólgu vegna herpes simplex veiru (7-9).
Lýst er slíku tilfelli af Barnaspítala Hringsins sem
líklega er fyrsta greinda tilfellið á íslandi.
Inngangur
Sjúkratilfelli
'Landspítali Háskólasjúkrahús
2Barnaspítali Hringsins,
Landspítala Hringbraut.
Fyrirspurnir og bréfaskriftir:
Þórólfur Guðnason,
Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík.
thorgud@landspitali. is
Barkabólga eða krúpp er algengur sjúkdómur sem
hrjáir aðallega börn á aldrinum 1-6 ára (1). Hæst er
nýgengið á öðru aldursári en þá fá um 5% barna
barkabólgu (2). Sjúkdómurinn lýsir sér með hæsi,
geltandi hósta og háværri innöndun sem kemur
oftast skyndilega og í tengslum við veirusýk-
Foreldrar leituðu með 15 mánaða áður hraustan
dreng á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins.
Drengurinn hafði verið með hæsi, hósta og hita
í sólarhring. Á bráðamóttöku var drengurinn
greindur með barkabólgu og fékk meðferð með
adrenalíni í innúðaformi. I framhaldi af því var
ENGLISH SUMMARY
Sturludóttir M, Skúladóttir HM, Guðnason Þ, Árdal B
Case Report: Prolonged Croup due to Herpes Simplex Infection
Læknablaðið 2006; 92: 855-7
Lykilorð: barkabólga, herpes
simplex sýking, barksterar.
In recent years only a few cases of croup due to herpes
simplex infection among healthy children have been
reported. This case report concerns a 15 month old,
healthy boy who was admitted to the Children's Hospital
with croup and failed to recover within the week. The boy
had a postive throat culture for herpes simplex type 1
and was diagnosed with croup due to herpes simplex on
the basis of sereology.
The boy was treated with corticosteroids; a recognised
practice in severe cases of croup. The harmful effects of
corticosteroids in herpes simplex croup, if indeed any,
are not known. We surmise that in this case the use of
corticosteroids was not a decisive factor, but it has been
previously noted that prolonged corticosteroid treatment
can play a role in herpes simplex infection.
Furthermore it has been debated whether other viral
pathogens proceed the infection, but in this case
serology indicates otherwise.
Keywords: Croup, herpes simplex infection, corticosteroids.
Correspondence: Þórólfur Guðnason,
thorgudQlandspitali. is
Læknablaðið 2006/92 855