Læknablaðið - 15.12.2006, Side 23
FRÆÐIGREINAR / ENDURLIFGUN NYBURA
Endurlífgun nýbura
klínískar leiðbeiningar
Þórður
Þórkelsson
Nýburalæknir
Atli Dagbjartsson
Nýburalæknir
Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Þórður Þórkelsson,
Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut.
Sími: 543-1000,
bréfsími: 543-3021.
thordth @landspitali. is
Myndirnar í greininni eru
birtar með góðfúslegu leyfi
Blackwell Publishing og
American Heart Association.
Lykilorð: endurlífgun, hjarta-
stopp, öndunarstopp, nýburar.
Inngangur
Flest börn fæðast í þennan heim í góðu ástandi, en
í 5-10% tilvika þarf nýburinn á aðstoð að halda
fyrst eftir fæðinguna (1). Yfirleitt nægir þá að
örva barnið eða veita því öndunaraðstoð í stuttan
tíma. Mjög sjaldan þarf að grípa til hjartahnoðs og
enn sjaldnar að gefa lyf, en í þeim tilvikum er oft
tvísýnt um horfur barnsins ef endurlífgun tekst þá
á annað borð (2). Gott mæðraeftirlit og góð fæð-
ingarhjálp er hornsteinn að velferð nýburans, en
jafnvel þó vel sé að því staðið verður alltaf að gera
ráð fyrir að nýfætt barn geti þurft á hjálp að halda
á fyrstu mínútum lífsins.
Hér eru gefnar leiðbeiningar um endurlífgun
nýbura. Eiga þær fyrst og fremst við um end-
urlífgun fyrst eftir fæðinguna, en jafnframt um
endurlífgun á börnum upp að eins mánaða aldri.
Byggjast þær einkum á ráðleggingum sem gefn-
ar hafa verið út á vegum International Liaison
Committee on Resuscitation (ILCOR) og voru
nýlega endurskoðaðar (3-6).
Orsakir fósturköfnunar við burðarmál
(asphyxia perinatalis)
Algengasta ástæða þess að endurlífga þarf nýfætt
barn er að skerðing hefur orðið á flutningi súrefnis
frá blóðrás móður til vefja fósturs. Oftast er um
að ræða truflun á loftskiptum yfir fylgju eða blóð-
flæði um naflastreng, en einnig getur orsökin verið
sjúkdómur hjá móður eða barni (tafla I).
Stundum gerir fósturköfnun ekki boð á undan
sér (7). Því er mikilvægt að við allar fæðingar sé til
staðar sá tækjabúnaður sem nauðsynlegur er við
endurlífgun nýbura og að minnsta kosti einn til-
tækur sem kann til verka á því sviði (6).
Lífeðlisfræði
Strax eftir fæðingu verða lífeðlisfræðilegar breyt-
ingar hjá hinu nýfædda barni sem gera því fært að
lifa utan móðurkviðar. Mikilvægastar eru breyt-
ingar á öndun og blóðrás sem verða til þess að
loftskipti færast frá fylgju til lungna barnsins.
Öndun
Á fósturskeiði eru lungun vökvafyllt. Lungnavökvi
flyst inn í lungablöðrur (alveoli) fyrir tilstilli virks
jónaflutnings yfir þekju þeirra og berst síðan upp
berkjutréð, út um vit fóstursins og leggur þannig
til hluta af legvökvanum. Rétt fyrir fæðingu hægir
ENGLISH SUMMARY
Þórkelsson Þ, Dagbjartsson A
Neonatal life support
Læknablaðiö 2006; 92: 859-65
Although most newborn infants are vigorous at birth,
some need to be resuscitated. Therefore, at least one
person skilled in neonatal resuscitation should be
present at every delivery and appropriate equipments
for resuscitation should be available. Most infants who
reqiure resuscitation only need respiratory support.
Chest compressions and administration of medications
are infrequently needed. This article provides guidelines
on neonatal resuscitation, which are mainly based on
recently published International Liasion Committee on
Resuscitation (ILCOR) guidelines.
Keywords: resuscitation, life support, cardiac arrest,
respiratory arrest, newborn.
Correspondence: Þórður Þórkelsson
thordth@iandspitaii.is
á þessum vökvaflutningi inn í lungnablöðrurnar
og hann snýst síðan við, þannig að í lok eðlilegrar
fæðingar er aðeins um 40% af þeim vökva í lung-
unum sem var áður en fæðingarferlið hófst (8).
Undir eðlilegum kringumstæðum þenur barnið
út lungun og grætur kröftuglega strax eftir fæð-
inguna. Við það berst mest af þeim vökva sem
eftir er í loftvegunum inn í rými sem er umhverfis
Tafla 1. Helstu orsakir fósturköfnunar (asphyxia perinatalis)
Móðlrin Krampar Blæðing Lungnarek
Fylgja og naflastrengur
Fylgjuþurrö Fylgjulos Framfall/þrýstingur á naflastreng
Barnlö Axlarklemma Fæðing í sitjandi stöðu Blæðing Blóðflokkamisræmi Sýking Fjölþurafæðing Fyrirþuri
Læknablaðið 2006/92 859