Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 27
FRÍEÐIGREINAR / ENDURLiFGUN NÝBURA
lyfinu berst inn í blóðrásina þegar það er gefið
í barkarennu (28). Þó kemur til greina að gefa
lyfið í barkarennu meðan verið er að setja inn
æðalegg. Best er að komast í æð á nýburum með
því að þræða legg í gegnum bláæðina í nafla-
strengnum (vena umbilicalis, mynd 5). Yfirleitt er
notaður naflaleggur af stærðinni 3,5 eða 5 French.
Leggurinn er þræddur inn þar til blóð fæst til baka
og hann festur þar. Ef leggurinn er þræddur lengra
er hætta á að hann fari inn í lifrina, en óæskilegt er
að gefa lyf þangað.
Skammtar adrenalíns eru 0,01-0,03 mg/kg (0,1-
0,3 ml/kg af 1:10.000 lausn) ef það er gefið í æð,
en mælt er með að gefa hærri skammta ef lyfið er
gefið í gegnum barkarennu, eða allt að 0,1 mg/kg.
Mælt er með að nota 1:10.000 lausn í báðum til-
vikum (5,6).
Naloxone
Ef barnið andar illa og móðirin hefur fengið
morfín eða skyld lyf innan fjögurra klukkustunda
frá fæðingu kemur til greina að gefa því naloxone.
Lyfið má gefa í æð eða í vöðva. Skammturinn er
0,1 mg/kg. Hafi móðirin notað morfín eða skyld
lyf reglulega ber að varast að gefa nýfæddu barni
hennar naloxone þar sem það getur valdið bráðum
fráhvarfseinkennum, svo sem krampa (29).
Vökvagjöf
Ef grunur er um blóðmissi eða lost af völdum
sýkingar skal gefa barninu ísótónískan vökva, svo
sem 0,9% saltvatn eða ringer acetate (30). Gefa
skal 10 ml/kg og sá skammtur endurtekinn eftir
þörfum. Hafi barnið misst blóð skal gefa því sem
fyrst neyðarblóð.
Meðferð eftir endurlífgun nýbura
Mikilvægt er að fylgjast vel með börnum sem orðið
hafa fyrir fósturköfnun. Einkum þarf að fylgjast
vel með lífsmörkum, þvagútskilnaði og blóðsykri.
Sum þessara barna fá krampa og til greina kemur
að fylgjast með þeim með heilasírita. í flestum til-
vikum eru krampar meðhöndlaðir með fenemali
eða fosfófenýtóíni í æð.
Hætta er á að nýburar sem orðið hafa fyrir fóst-
urköfnun hafi lágan blóðsykur sem hefur í för með
sér verri langtímahorfur fyrir barnið (31). Flest
þurfa því að fá sykurlausn í æð til að viðhalda
blóðsykri innan eðlilegra marka (2,5-5,5 mmól/L),
en jafnframt ber að forðast að blóðsykur verði of
hár (6).
Súrefnisþurrð í hjartavöðvanum af völdum
fósturköfnunar getur skert hjartaútfall eftir fæð-
inguna. Því er mikilvægt að fylgjast vel með blóð-
þrýstingi og kanna samdráttargetu hjartavöðvans
með hjartaómun. Dópamín og dóbútamín eru þau Mynd 5. Æðaleggur settur
lyf sem helst eru notuð til að auka hjartaútfall og ínaflabláœð.
hækka blóðþrýsting hjá nýburum.
Rannsóknir benda til þess að kæling eftir fóst-
urköfnun geti minnkað líkur á heilaskemmdum.
Ýmist er allur líkami barnsins kældur eða aðeins
höfuðið. í nýlegri rannsókn á 208 nýburum sem
orðið höfðu fyrir fósturköfnun var helmingur
þeirra kældur niður í 33,5° C í 72 klukkustundir
(32). Við 18-22 mánaða aldur voru marktækt fleiri
börn lifandi og færri með alvarlega fötlun meðal
þeirra sem höfðu verið kæld. Benda niðurstöður
þessarar rannsóknar og annarra minni rannsókna
til þess að kæling geti bætt lífslíkur og minnkað
líkur á fötlun eftir alvarlega fósturköfnun. Hins
vegar er talið að enn sem komið er liggi ekki
fyrir nægilegar rannsóknaniðurstöður til þess að
almennt sé hægt að mæla með kælingu nýbura eftir
fósturköfnun (5, 6, 33). Verið er að vinna að frek-
ari rannsóknum á þessu sviði og vonandi verður
þess ekki langt að bíða að hægt verði að segja til
um í hvaða tilvikum sé rétt að kæla nýbura eftir
fósturköfnun og hvernig standa beri að þeirri
meðferð.
Lokaorð
Þar sem viðbúið er að endurlífga þurfi nýbura eftir
fæðingu er nauðsynlegt að við allar fæðingar sé
einhver tiltækur sem kann til verka á því sviði og
að viðeigandi tækjabunaður sé til staðar. Jafnframt
er mikilvægt að hafa hugfast að fósturköfnun gerir
ekki alltaf boð á undan sér. Réttur viðbúnaður og
skjót og rétt handtök undir þessum kringumstæð-
um geta skipt sköpum fyrir framtíð hins nýfædda
barns.
Læknablaðið 2006/92 863