Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 31
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Læknafélag - fyrir hverja og hvers
í þeim umræðum sem fylgt hafa í kjölfar ályktana
síðasta aðalfundar Læknafélags Islands hafa meðal
annars komið upp athugasemdir við skipulag
félagsins og hefur verið haft á orði að núverandi
fyrirkomulag sé gengið sér til húðar og aðrir látið
að því liggja að ákvarðanataka og stefnumörkun
séu ólýðræðisleg. í ljósi þessa er vert að staldra við
og skoða málið.
Fulltrúalýðræði eins og ríkir í Læknafélagi Is-
lands er vel þekkt fyrirbæri hér á landi og hefur
dugað okkur íslendingum ágætlega við stjórn
landsins. Það að fulltrúar séu kosnir af svæða-
félögum en ekki með öðrum hætti, til dæmis sér-
greinafélögum, er vissulega að hluta til arfur frá
eldri tíð en hins vegar er það svo að vegna þess
hversu Læknafélag Reykjavíkur er miklu stærra
en öll önnur svæðafélög og því með svo stóran
hluta aðalfundarmanna er ekki verið að traðka á
rétti einstakra félagsmanna. Það er vissulega til
stoð í lögum Læknafélags Islands að menn geti
veitt sérgreinafélögum að fara með umboð sitt á
aðalfundi en ef það yrði almennt notað get ég vel
ímyndað mér að aðalfundarfulltrúar kæmu fyrst
og fremst af höfuðborgarsvæðinu og samkoman
yrði einsleit.
Nei, ég held að skipulag Læknafélags íslands sé
ekki ólýðræðislegt. Það sem er mesta hótunin við
lýðræði í okkar félagi er áhugaleysi félagsmanna
á störfum innan félagsins. Því miður er það svo að
eftirspurn eftir starfskröftum er nánast alltaf meiri
en framboðið og þekking margra á störfum félags-
ins er lítil sem engin. Þetta er ekkert einsdæmi hjá
Læknafélagi íslands og vel þekkt hjá öðrum félög-
um en sú grundvallarregla gildir hjá okkur sem
annars staðar að ef menn vilja hafa áhrif á stefnu
og ákvarðanir félagsins þá ber að gera það innan
frá eftir lýðræðislegum leiðum.
Hlutverk Læknafélags Islands er í mínum huga
þrenns konar:
• f fyrsta lagi er Læknafélagið stéttarfélag sem
gerir kjarasamninga og fylgir þeim eftir ásamt
því að aðstoða félagsmenn í málum sem upp
geta komið varðandi slfk mál sem og önnur er
tengjast starfi þeirra. Þetta hlutverk tel ég afar
mikilvægt og hef lýst því áður hér að ég telji
þessum málum best fyrirkomið með samein-
uðum hópi allra lækna.
• í öðru lagi er félagið pólitískt og hefur stefnu og
skoðanir á málum, sérstaklega þeim sem varða
heilbrigði og heilsuvernd. Þetta starf er oft ekki
vel sýnilegt en í þessu felast meðal annars um-
sagnir um lagafrumvörp og vinna í vinnuhópum
á vegum ríkisins um mótun heilbrigðisstefnu.
Um þetta hlutverk trúi ég varla að sé mikill
ágreiningur meðal félagsmanna.
• í þriðja lagi er Læknafélag íslands fagfélag og
kemur meðal annar að læknadögum og rekstri
Læknablaðsins. Þessi hluti starfsins er líka að
hluta til í höndum sérgreinafélaganna og er
ekkert óeðlilegt við það enda eru að mínu viti
sérgreinafélögin einna best í stakk búin til að
skipuleggja og halda utan um endur- og sí-
menntun sinna félagsmanna.
Ekki er með þessu fulltalið allt sem gerist innan
félagsins en þetta eru meginatriðin.
Að lokum þetta: Eflaust hefur ekki farið
framhjá neinum sem fylgst hefur með fjölmiðlum
undanfarið að einum félaga í Læknafélagi Islands
hefur verið sagt upp störfum á ólöglegan hátt.
Dómur hefur fallið í því máli en atvinnurekand-
inn hefur tekið þá afstöðu að hunsa dóminn og
væntanlega að eyða peningum skattborgara í að
greiða skaðabætur í kjölfarið. Afstaða Lækna-
félags íslands sem stéttarfélags hlýtur og verður
að vera að fordæma svona framkomu og berjast
gegn svona gerningi með öllum löglegum ráðum.
Félagsmenn eiga að standa að baki þess sem fyrir
brotinu verður. Þeir sem ekki gera það mega stara
á tær sínar með roða í kinnum. Við íslendingar
ættum að vita það manna best að skjótt getur ský
dregið fyrir sólu.
vegna?
Sigurður E.
Sigurðsson
Höfundur er
varaformaður stjórnar LÍ.
í pistlunun Af sjónarhóli
stjórnar birta stjórnarmenn LÍ
sínar eigin skoðanir en ekki
félagsins.
Læknablaðið 2006/92 867