Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁHUGAMÁL
mismunandi fínofið og því fínni sem vefnaðurinn
er, þeim mun betri er hann. Eins er með vínið,
þéttofin vín eru betri til geymslu. Sumar þrúguteg-
undir geymast betur en aðrar. Cabernet Sauvignon
geymast yfirleitt vel. Góð Medoc vín geymast
yfirleitt vel í 20-40 ár. Pinot Noir Búrgúndarvín
geymast skemur og á að drekka fyrr. Merlot vín
endast verr en Cabernet, en þó eru undantekn-
ingar á því. Shiraz vín eru grófari en geta enst mjög
lengi.”
Svo goðsögnin um 100 ára gamla rykfallna
flösku sem hefur að geyma dásamlegt vín á ekki við
rök að styðjast?
„I rauninni ekki. Vín missa ávöxtinn við
geymslu og í staðinn kemur það sem kallað er
búkett sem er ilmur af þroskuðu víni. En ef vín er
geymt í 100 ár og síðan drukkið þá er verið að laða
fram mynd af einhverju sem einu sinni var glæsi-
legt. Vínið ber með sér fornan glæsileik en er ekki
eins gott og það einu sinni var. Maður setur sig í
vissar stellingar til að upplifa stemmninguna. Elstu
vín sem ég hef smakkað eru Madeiravín og eru
þau vín sem eldast hvað best, auk dísætra hvítvína.
Það er sagt um Madeiravín að maður geti drukkið
hálfa flösku og látið hana síðan standa opna í 100
ár og þá sé hægt að drekka afganginn óskemmdan.
Þetta er sagt stafa af herslunni sem Madeiravín fer
í gegnum en það er hitað í 60 gráður á celsius til að
verða að sönnu Madeiravíni. Áður fyrr var talið
að þau þyrftu að fara yfir miðbaug til að ná hersl-
unni en menn uppgötvuðu að vín sem send voru
frá gamla heiminum til hins nýja í lestum skipa
urðu betri en þau sem heima sátu; það var vegna
þess að vínin hitnuðu í lestum skipanna á leiðinni.
Menn fóru síðan að hita vínin uppi á lofti heima
hjá sér án þess að þurfa að senda þau alla þessa
leið. En þess verður að geta að Madeiravín eru vín
blönduð með brandí svo þau eru annars eðlis en
hefðbundin rauðvín eða hvítvín.”
Elsta flaskan í eigu Einars er Madeira frá árinu
1797 og hann hlœr þegar ég spyr hvort hann eigi
von á að tilefni gefist til að taka tappann úr þeirri
flösku.
„Það er ekki spurning um hversu stórt tilefnið
verður heldur einfaldlega að þegar lappinn er tek-
inn úr flöskunni og hún drukkin þá var það rétt
hugmynd á þeirri stundu. Einhvern tíma verður
maður að drekka hana.”
Og hvað er svo viðeigandi að drekka með
jólasteikinni í ár?
„Ég hef vissa formúlu sem ég fylgi. Með ís-
lenskri villibráð drekk ég Cabernet Sauvignon.
Mér finnst það passa best vegna þess að kryddin í
Cabernet eru mjög oft þau sömu og gróðurinn sem
bráðin nærist á. Með nauta- eða svínakjöti drekk
ég Pinot Noir af því að það hefur svipaða áferð.
Flöskurnar eru einnig luralegar en það fer oft
saman, og fyrir þann sem þekkir lítið til vína getur
þetta verið gagnleg viðmiðun. Luraleg flaska á við
luralegt dýr. Ef dýrið sem þú borðar er hnarreist
og létthlaupandi þá skaltu velja hnarreista flöska.
Þetta á þó ekki við um Rioja vínin því þau eru
hnarreist en passa betur við luralegu dýrin.”
Læknablaðið 2006/92 883