Læknablaðið - 15.12.2006, Page 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 193
Aðstoð óskast!
íðorðapistlar hafa verið ritaðir reglulega frá árinu
1990. í þessum pistlum hefur oft verið óskað eftir
aðstoð lesenda Læknablaðsins við úrlausn íð-
orðaverkefna. Pistlarnir eiga að vera vettvangur
umræðu um íslensk orð og heiti í fræðimáli lækna
og því eru skoðanir, gagnrýni og tillögur annarra
en pistlahöfundar afar mikils virði. Verkefni skort-
ir ekki, en oft mættu formleg andsvör lækna og
annarra, sem málið varðar, vera fleiri. Með þessu
er ekki verið að vanþakka þær athugasemdir og
tillögur sem varpað er fram á óformlegan hátt við
undirritaðan á förnum vegi, heldur er verið að
biðja um rökstudda gagnrýni á þær tillögur, sem
settar eru fram í pistlunum, og eins um aðrar hug-
myndir eða önnur sjónarmið eftir því sem við á.
í þessum pistli og þeim næsta er ætlunin að
draga saman á einn stað þær beiðnir um aðstoð og
tillögur að úrlausnum, sem settar hafa verið fram
með beinum hætti í síðustu pistlum. Samantekt
af svipuðum toga var síðast gerð í 159. pistli.
Lesendur eru nú eindregið hvattir til að senda
undirrituðum athugasemdir sínar um eitt eða fleiri
af þessum heitum.
Endovascular coil
I 189. pistli kom fram að æðagúl (aneurysma) má
loka með því að þræða æðalegg að gúlnum eftir
viðkomandi æðum og koma síðan fyrir hringuðum
vír sem fyllir upp í hol gúlsins. Hinn hringaði vír,
eða vírspólan, nefnist endovascular coil. Stungið
var upp á íslenska heitinu innæðahnoðri.
Epidermal peel
Þetta heiti er notað um fegrunaraðgerð á yfir-
borði andlitshúðar, sem felst í því að fjarlægja eitt
eða fleiri af ystu lögum húðþekju (epidermis).
Almenna heitið getur verið húðþekjuflysjun, en í
188. pistli var stungið upp á íslenska heitinu efna-
flysjun, þegar aðferðin byggist á því að flysja með
því að nota efni sem borið er á húðina.
Incontinentia
Þetta latneska heiti vísar til þess að ekki sé stjórn
á seytingu eða losun, svo sem að þvag eða hægðir
leki ósjálfrátt. íðorðasafnið birtir heitið lausheldni.
Ósjálfráð tœming til baks og kviðar. í 187. pistli bað
undirritaður um aðstoð við að finna betra heiti.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
johannhj@landspitali. is
Cerclage
I 187. pistli var lýst eftir íslensku heiti á cerclage,
bandi sem hnýtt er umhverfis legháls til að koma
í veg fyrir fósturlát við leghálsbilun. í 190. og 192.
pistli voru birtar mögulegar lausnir: hringband,
hringsaumur, leghálsband, leghálshaft, legháls-
saumur og loksaumur. Síðar kom í ljós að sama
heiti er notað um vír sem hringaður er um bein
sem festa þarf saman. Um hann mætti nota fyrstu
tvö heitin.
Isolate
í 187. og 191. pistli var fjallað um heitið human
isolate, örverustofn sem einangraður hefði verið
úr sýni frá manni eða mönnum. Heitið er reyndar
einnig notað í mannfræði um þýði (hóp manna)
sem hefur einangrast algerlega. Til lausnar á upp-
haflega verkefninu var stungið upp á heitunum:
einangur frá mönnum eða einangur úr mönnum.
Einnig kom fram tillagan: einangi úr mönnuin.
Diverticulosis
íðorðasafn lækna geymir heitið sarpsjúkdómur.
Um er að ræða slímhúðarklædda poka sem skaga
frá holi líffæris (oftast garnar) út í gegnum vöðva-
vegginn. í 190. pistli var stungið upp á heitunum
sekksjúkdómur eða sekkjasjúkdómur.
Targeted therapy
Þetta heiti var rætt í 184. og 185. pistli. Það er eink-
um notað í krabbameinslækningum og vísar til
þess að notað sé lyf eða önnur meðferð sem bein-
ist sérhæft að ferli eða jafnvel tiltekinni sameind,
til dæmis viðtaka, í efnaskiptum, þróun eða vexti
æxla. Fram voru settar tillögurnar: markviss með-
ferð, marksækin meðferð og hnituð meðferð.
Honeycomb lung
Þetta enska heiti er lýsandi um tiltekið útlit sjúkra
lungna á röntgenmynd, geislaglærar útvíkkanir,
holrými eða blöðrur í lungnavef. íðorðasafn lækna
geymir heitið býkúpulunga, en sennilega hefur
það ekki sömu myndrænu tilvísunina í hugum
íslendinga og annarra þjóða. í 183. pistli voru sett-
ar fram tillögurnar: froðulunga, gatasigtislunga.
loftbólulunga, netlunga, sápukúlulunga.
Embolisation
I 182. pistli var leitað eftir almennu heiti á aðgerð
sem lokar lungnaæð með því að í henni er komið
fyrir sérhönnuðum tappa. Stungið var upp á heit-
inu: æðarstíflun. Rétt er að minna á að ferill eða
atburðarás stíflumyndunar nefnist embolism eða
blóðrek og embolus eða blóðreki það sem þá berst
með blóðrásinni.
Jóhann Heiöar er læknir
á Landspítala Hringbraut.
Læknablaðið 2006/92 895