Læknablaðið - 15.11.2007, Page 3
Aðalfundur Lí 2007
Á aðalfundi LÍ í lok september urðu formannaskipti, Sigurbjörn Sveinsson sem stýrt hefur félag-
inu farsællega í 8 ár fór úr stjórn og nýr formaður, Birna Jónsdóttir, tók við. Hún er fyrsta konan
til að leiða þessi tæplega níræðu samtök lækna. Læknablaðið þakkar Sigurbirni samstarfið og
býður Birnu velkomna við stjórnvölinn. Myndin er tekin við lok aðalfundarins.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Verk Hreins Friöfinnssonar á forsíðu
Læknablaösins, 5 Minute Monument by the Sea
(2007), er fallegt dæmi um hugmyndafræöi hans.
Látlaus Ijósmynd af tímaglasi sem stillt er upp í
náttúrunni þaðan sem sést yfir hafið hlýtur Ijóörænt
heiti og verður fyrir vikið allt
annað og meira. Hugmyndalist
byggir gjarna á samspili
tungumáls og hins sjónræna
þar sem áhorfandanum er
boðið að bera saman texta
annars vegar (í þessu tilviki
titil) og mynd eða hlut hins
vegar. Verkið sjálft verður
síðan til á mörkum þessara
þátta í huga áhorfenda.
Þannig kunna hlutirnir sem
eru til sýnis einir og sér oft
á tíðum að virðast heldur
fábrotnir. Hreinn er slyngur að
vinna með hversdagslegan
efnivið eins og dæmin
sanna, Ijósmyndir af kindum,
hænsnanet, köngulóarvef,
málningarprik eða leikföng.
Skilgreining listmiðla í málverk
eða skúlptúr skiptir hann litlu máli, þar sem hann
álítur hugmynd að baki verki æðri handverkinu
og þannig verði útfærslan að hæfa hugmyndinni
sem best. Það sem er þó sameiginlegt með
verkunum má segja að sé ákveðin hugmyndafræði
og tilfinning sem lýtur að því að skynja eitthvað
Ijóðrænt og fagurt í einfaldleikanum. Að eigin sögn
segir Hreinn tilviljun vera besta tækið að styðjast
við í listsköpun enda hafa verk hans tekið miklum
breytingum í gegn um tíðina. Þau eru innileg og oft
á persónulegum nótum. Þar örlar ekki á kaldhæðni
en aftur á móti má finna lúmskan
húmor. Þau miðla sterkri
tilfinningu fyrir tíma eða tímaleysi
og tilviljunum hins daglega
lífs. Þá er líka einhvers konar
angurværð eða Ijúfsár stemmning
yfir mörgum verkum sem verður
þó aldrei of tilfinningaþrungin
eða væmin. Ósjálfrátt lítur maður
hversdagsleikann öðrum augum
eftir að skoða verkin hans og
veitir fjölmörgu athygli sem
manni hefði annars yfirsést.
Þannig koma gæði verka hans
ef til vill vel í Ijós, þegar þau ná
svo langt út fyrir sjálf sig. Hreinn
er fæddur árið 1943 og hefur
frá því snemma á 8. áratugnum
verið búsettur í Hollandi. Hann
á að baki óteljandi sýningar
víða um heim en einkasýningar
hans eru um 60. Sú nýjasta lítur dagsins Ijós í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, nú í nóvember
en það er sama sýning og sett var uþþ við frábærar
undirtektir í Serpentine galleríinu í Lundúnum í
sumar.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Karl Andersen
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@iis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
og pökkun
íslandsprent ehf.
Steinhellu 10
221 Hafnarfirði
ISSN: 0023-7213
Markús Þór Andrésson
LÆKNAblaðið 2007/93 735