Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 61
alls ekki að heilsa. Það var kannski af því að ég var harður á því að gefa sjálfum mér ekki neinn listrænan afslátt af þeim Ijóðum, því þó ég þættist vita að yrkisefnið væri nýstárlegt þá yrðu ljóðin að standa og falla með listrænu gildi sínu." Svo fagurskapað brjóst fyrrum strokið af blíðum fingrum elskhuga líkt og gola léki við kirkjuhvolfþak á sumarkvöldi nú fer smásjáin þolinmóðu auga um skreytta hvelfinguna finnur að lokum: stjörnumerki sem skríður út á hlið og hvessir gular klær. I læknisljóðunum birtist maðurinn á bakvið lækninn „Læknir þarf alltaf að vera að skoða sjálfan sig líka, ekki bara sjúklingana. Maður þarf sífellt að spyrja sig: Er ég of langt í burtu? Er ég orðinn of kaldhæðinn og ég yrki um það." Líkt og himinn sveipast skýjum klæðist ég viðmóti sloppurinn er skjannahvítur og hrukkulaus „Mér fannst mikilvægt að ljóðin væru einlæg og persónuleg en samt frekar beinskeytt. Það hefði verið auðvelt að missa þau útí mikla dramatík og sterkt myndmál sem mér fannst þó ekki myndi passa. Það varð að vera einhver jarð- strengur sem tengdi lesandann við ljóðið annars yrði það ekki trúverðugt. Allar þessar pælingar gerðu að verkum að ég var mjög lengi að yrkja hvert ljóð og hef satt að segja umort hvert eitt og einasta þeirra mörgum sinnum. Lokaútgáfan á því oft lítið sammerkt með frumdrögunum. Ég á einnig erfitt með ákveða hvenær ljóð er tilbúið en hef þó látið við sitja ef ég hef getað lesið það nokkrum sinnum yfir með töluverðu millibili án þess að breyta því." Ljóð um náttúruna og söguna skipa nokkurn sess enda viðurkennir Ari að hann sé náttúrubarn og margir vita eflaust að hann er hestamaður og hefur ferðast víða um landið. Upplifun hans af ís- lenskri náttúru er sterk og eflaust eru margir sem finna ilm úr lyngi við lestur ferðaljóða á borð við þetta. UMRÆÐUR O G FRÉTTIR ÖSKUDAGAR Nýskornir slóðar og vöðin í nafnlausum dölum að baki með vígðar áningarlautir ennþá volgar afsöng framundan snjóhvítt og næst mér afnákvæmni klofið erfaxið í þráðbeina línu, hún bendir á skínandi stíg heim að kirkju Hefur Ari notið þess að yrkja eða hefur hann kvalist við þessa sköpun. „Það er hvorttveggja. Ég er óskaplega ánægður með að ég skyldi loks byrja að yrkja og þetta skyldi ganga svona vel þegar litið er á útkomuna, bókina og viðurkenn- inguna fyrir hana. Því er hinsvegar ekki að leyna að ég hef haft talsvert mikið fyrir þessu og var kominn með verulegan leiða á mörgum kvæð- anna áður en yfir lauk og ég gat satt að segja ekki litið á þau aftur mörg hver fyrr en núna eftir að bókin kom út." En var það tnarkmið að senda handrit inn í samkeppnina um verðlaun Tómasar Guðmundssonar? „Nei, ég vissi ekkert af keppninni fyrr en í apríl á þessu ári. Þá var ég búinn að yrkja obb- ann af kvæðunum en ákvað að gefa aðeins í og ljúka handritinu og senda það inn. Eftir að ég fékk verðlaunin tók ég tvö eða þrjú kvæði út og bætti öðrum í staðinn svo í allt eru þetta fimm- tíu ljóð." Hann játar að vissu- lega hafi verið ánægju- legt að fá verðlaunin og þau séu sannarlega hvatning en hvort erfitt verði að fylgja þess- ari upphefð eftir muni bara koma í ljós. „Þá getur líka vel verið að ég spreyti mig á öðru formi til að forðast sam- anburð við sjálfan mig," segir hann brosandi að lokum. Við Við settumst að í störfunum árin hlóðu veggi kringum lífokkar þykka af endurtekningum við hlustuðum þreifuðum sóttumsj úkdómsgrein ingar í sólhvítt hof Asklepiosar ávísuðum betri heilsu og tókum íþúsund þakklátar hendur en skynjuðum ekki það sama og þeir gengum ekki slóð þeirra eftir dalnum heyrðum aldrei krimkið í hrafninum fundum ekki súginn fyrr en dag nokkurn er (okkur til opinmynntrar undrunar) við veiktumst sjálfir þá fundum við og heyrðum allt! LÆKNAblaðið 2007/93 793
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.