Læknablaðið - 15.11.2007, Page 61
alls ekki að heilsa. Það var kannski af því að ég
var harður á því að gefa sjálfum mér ekki neinn
listrænan afslátt af þeim Ijóðum, því þó ég þættist
vita að yrkisefnið væri nýstárlegt þá yrðu ljóðin
að standa og falla með listrænu gildi sínu."
Svo fagurskapað brjóst
fyrrum strokið af
blíðum fingrum elskhuga
líkt og gola léki við
kirkjuhvolfþak
á sumarkvöldi
nú fer smásjáin þolinmóðu auga
um skreytta hvelfinguna
finnur að lokum:
stjörnumerki
sem skríður út á hlið
og hvessir gular klær.
I læknisljóðunum birtist maðurinn á bakvið
lækninn „Læknir þarf alltaf að vera að skoða
sjálfan sig líka, ekki bara sjúklingana. Maður þarf
sífellt að spyrja sig: Er ég of langt í burtu? Er ég
orðinn of kaldhæðinn og ég yrki um það."
Líkt og himinn sveipast skýjum
klæðist ég viðmóti
sloppurinn er skjannahvítur
og hrukkulaus
„Mér fannst mikilvægt að ljóðin væru einlæg
og persónuleg en samt frekar beinskeytt. Það
hefði verið auðvelt að missa þau útí mikla
dramatík og sterkt myndmál sem mér fannst þó
ekki myndi passa. Það varð að vera einhver jarð-
strengur sem tengdi lesandann við ljóðið annars
yrði það ekki trúverðugt. Allar þessar pælingar
gerðu að verkum að ég var mjög lengi að yrkja
hvert ljóð og hef satt að segja umort hvert eitt og
einasta þeirra mörgum sinnum. Lokaútgáfan á
því oft lítið sammerkt með frumdrögunum. Ég
á einnig erfitt með ákveða hvenær ljóð er tilbúið
en hef þó látið við sitja ef ég hef getað lesið það
nokkrum sinnum yfir með töluverðu millibili án
þess að breyta því."
Ljóð um náttúruna og söguna skipa nokkurn
sess enda viðurkennir Ari að hann sé náttúrubarn
og margir vita eflaust að hann er hestamaður og
hefur ferðast víða um landið. Upplifun hans af ís-
lenskri náttúru er sterk og eflaust eru margir sem
finna ilm úr lyngi við lestur ferðaljóða á borð við
þetta.
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
ÖSKUDAGAR
Nýskornir slóðar og vöðin
í nafnlausum dölum að baki
með vígðar áningarlautir
ennþá volgar afsöng
framundan snjóhvítt og næst mér
afnákvæmni klofið erfaxið
í þráðbeina línu, hún bendir
á skínandi stíg heim að kirkju
Hefur Ari notið þess að yrkja
eða hefur hann kvalist við þessa
sköpun.
„Það er hvorttveggja. Ég er
óskaplega ánægður með að ég
skyldi loks byrja að yrkja og
þetta skyldi ganga svona vel
þegar litið er á útkomuna, bókina og viðurkenn-
inguna fyrir hana. Því er hinsvegar ekki að leyna
að ég hef haft talsvert mikið fyrir þessu og var
kominn með verulegan leiða á mörgum kvæð-
anna áður en yfir lauk og ég gat satt að segja ekki
litið á þau aftur mörg hver fyrr en núna eftir að
bókin kom út."
En var það tnarkmið að senda handrit inn í
samkeppnina um
verðlaun Tómasar
Guðmundssonar?
„Nei, ég vissi ekkert
af keppninni fyrr en í
apríl á þessu ári. Þá var
ég búinn að yrkja obb-
ann af kvæðunum en
ákvað að gefa aðeins í
og ljúka handritinu og
senda það inn. Eftir að
ég fékk verðlaunin tók
ég tvö eða þrjú kvæði út
og bætti öðrum í staðinn
svo í allt eru þetta fimm-
tíu ljóð."
Hann játar að vissu-
lega hafi verið ánægju-
legt að fá verðlaunin
og þau séu sannarlega
hvatning en hvort erfitt
verði að fylgja þess-
ari upphefð eftir muni
bara koma í ljós. „Þá
getur líka vel verið að
ég spreyti mig á öðru
formi til að forðast sam-
anburð við sjálfan mig,"
segir hann brosandi að
lokum.
Við
Við settumst að í störfunum
árin hlóðu veggi
kringum lífokkar
þykka af endurtekningum
við hlustuðum þreifuðum
sóttumsj úkdómsgrein ingar
í sólhvítt hof Asklepiosar
ávísuðum betri heilsu og tókum
íþúsund þakklátar hendur
en skynjuðum ekki það sama og þeir
gengum ekki slóð þeirra eftir dalnum
heyrðum aldrei krimkið í hrafninum
fundum ekki súginn
fyrr en dag nokkurn er
(okkur til opinmynntrar undrunar)
við veiktumst sjálfir
þá fundum við og heyrðum allt!
LÆKNAblaðið 2007/93 793