Læknablaðið - 15.11.2007, Síða 26
U M R Æ Ð U R
AÐALFUND
O G
U R
F R É T T I R
L í
Sigurdís Haraldsdóttir, Óskar Einarsson og Þórarinn
Guðnason.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra ávarpar fundinn.
Aðalfundur
LÍ 2007
Jóhannes Björnsson og Birna jónsdóttir, hinn nýi formaður LÍ.
Védís
Skarphéðins-
dóttir
Læknafélag íslands hélt aðalfund sinn dagana 28.
og 29. september í húsnæði sínu við Hlíðasmára
í Kópavogi. Var fundurinn vel sóttur og fór fram
með góðum skikk. Að venju birtir Læknablaðið
þær ályktanir sem fundurinn sendi frá sér.
Hefðbundin aðalfundarstörf fólu í sér lestur
skýrslu, ársreikninga og fjárhagsáætlunar, auk
annarra viðfangsefna sem LÍ hefur á sinni könnu
og gerir skil við þetta tækifæri. Nýr heilbrigð-
isráðherra ávarpaði fundinn í upphafi og sperrtu
menn eyrun við boðskap hans. Á fundinum gekk
úr stjórn Sigurbjörn Sveinsson sem stýrt hefur
félaginu í 8 ár og setið alls 13 ár í stjórn. Nýr
formaður, Birna Jónsdóttir röntgenlæknir sem
áður var gjaldkeri félagsins, tók við og var vel
fagnað enda fyrsta konan í formannsstóli LÍ. Nýr
maður í stjórn er Kristján G. Guðmundsson heim-
ilislæknir.
Það eftirminnilegasta af aðalfundi 2007 að
öðrum liðum ólöstuðum var tvímælalaust
heimsókn formanns suður-afríska læknafélags-
ins, Kgosi Letlape, en hann er jafnframt fráfar-
andi forseti Alþjóðafélags lækna, World Medical
Association. Hann ávarpaði fundinn í Hlíðasmára
og seinni aðalfundardaginn var haldið málþing
í Öskju í Vatnsmýrinni þar sem vandi heilbrigð-
iskerfa þróunarlanda var gerður að umtalsefni og
Letlape hélt aðalerindið þar. Bæði er maðurinn
afar mælskur og skýr en ekki minnst er sú veröld
sem hann brá ljósi á svo mögnuð og margslungin
að vér aumar dekursálir á fróni vorum skekin.
Lýsing hans á heimalandi sínu og aðstæðum þar
voru nístandi, þar fær orðið allsleysi fullkomlega
nýja merkingu, og vandamál hinnar afrísku álfu
er af öðrum toga en við þekkjum. Hann ákallaði
samkennd okkar og mennsku og benti góðlátlega
á að okkar vellíðan og hagsæld hefði ekki alla
daga sem guð hefði gefið mælst jafnmikil og árið
2007, ef við litum um öxl gætum við séð að okkur
hefði líka verið komið til bjargar á umliðnum
öldum og fram á þennan dag. Án tilstyrks ann-
arra og stuðnings hefðum við sennilega hvorki
komist lönd né strönd. Þetta mættum við hug-
leiða áður en við létum af hendi rakna okkar til-
legg til Afríku sem er móðir svo margra og ólíkra
barna.
758 LÆKNAblaöið 2007/93