Læknablaðið - 15.11.2007, Síða 27
UMRÆÐUR O G
A Ð A L F U
F R É T T I R
N D U R L í
Tvíburasysturnar Ósk kvensjúkdómalæknir og Brynhildur augnlæknir, lngvarsdætur.
Gestur aðalfundarins Kgosi Letlape formaður suður-afrískra læknafélags-
ins og ]ón Snædal.
Ályktanir aðalfundar 2007
Á aðalfundi Læknafélags íslands voru gerðar eft-
irfarandi ályktanir, um forsendur þeirra má lesa á
heimasíðu félagsins.
■ ■ Ályktun vegna síðbúinnar breytingar á því
frumvarpi sem varð að nýjum heilbrigðislögum
nr. 40/2007.
Niðurstaða:
Aðalfundur Læknafélags fslands í Kópavogi dag-
ana 28. og 29. september 2007, skorar á heilbrigðis-
ráðherra að hann beiti sér fyrir því að ákvæði 8. gr.
laga nr. 40/2007 verði breytt á þann hátt að engar
kvaðir verði settar á einkaaðila sem gera samn-
inga við ríkið um veitingu heilbrigðisþjónustu um
hvemig þeir skuli haga stjómskipulagi sínu.
■ ■ Ályktun um gildissvið sjúkratrygginga og
umboðsmann sjúklinga.
Niðurstaða 1:
Aðalfundur Læknafélags fslands haldinn í
Kópavogi 28.-29. september 2007, hvetur heil-
brigðisráðherra til að skilgreina sem fyrst innihald
hinnar opinbem sjúkratryggingar á íslandi, svo
enginn vafi leiki á því hvaða réttindi hún veitir
þegnunum og hver ekki.
Niðurstaða 2:
Aðalfundur Læknafélags fslands haldinn í
Kópavogi 28.-29. september 2007, skorar á Alþingi
og ríkisstjórn fslands, að stofna embætti umboðs-
manns sjúklinga sem gæti réttinda sjúklinga
gagnvart stjórnvöldum í heilbrigðis og trygg-
ingamálum. Hann hafi eftirlit með að lög um
almannatryggingar tryggi á hverjum tíma rétt
hinna sjúkratryggðu, að jafnræði sé í heiðri haft
í heilbrigðis- og tryggingakerfinu og að yfirvöld
vinni í samræmi við lög og vandaða stjómsýslu-
hætti. Umboðsmaður bendi einnig á misfellur í
heilbrigðis og tryggingakerfinu og segi fyrir um
úrbætur og leiðréttingar af hálfu viðkomandi yfir-
valda þegar við á.
■ ■ Ályktun aðalfundar Læknafélags fslands
2007 um lækningaminjasafn.
Niðurslaða:
Það er niðurstaða aðaifundur Læknafélags fslands
haldinn í Kópavogi dagana 28. og 29. september
2007 að staðfesta fyrir sitt leyti samning þann,
sem liggur fyrir fundinum og formaður félagsins
gerði við menntamálaráðherra, Seltjamamesbæ,
Þjóðminjasafn fslands og Læknafélag Reykjavíkur
þann 27. september s.l. með fyrirvara um sam-
þykki aðalfundar Læknafélags íslands.
■ ■ Alyktun aðalfundar Læknafélags fslands um
þróunaraðstoð.
Niðurstaða:
Aðalfundur Læknafélags íslands í Kópavogi
dagana 28. og 29. september 2007, felur stjóm
félagsins að móta stefnu um stuðning við störf ís-
lenskra lækna og læknanema í þróunarlöndum.
■ ■ Aðalfundur Læknafélags fslands, haldinn í
Reykjavík dagana 28.-29. september 2007 ályktar
að fela stjóm LÍ að falast eftir þátttöku félagsins
í sendinefnd fslands hjá Alþjóða heilbrigðis-
málastofnuninni (WHO).
■ ■ Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn í
Kópavogi 28.-29. september 2007 hvetur yfirvöld
heilbrigðis- og menntamála til að hraða bygging-
aráföngum Landspítala og heilbrigðisvísinda-
deilda Háskóla íslands svo bæta megi sem fyrst
starfsemi spítalans og aðstöðu fyrir sjúklinga
■ ■ Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn
í Kópavogi 28.-29. september 2007 hvetur heil-
brigðisyfirvöld til að kanna kosti fjölbreyttari
rekstarforma á þeirri starfsemi sem fer fram á
Landspítala.
■ ■ Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn 28,-
29. september 2007 hvetur heilbrigðisráðherra til
þess að auka áhrif yfirlækna í stjómun lækninga á
Landspítala og að tryggja að beitt sé málefnalegum
sjónarmiðum við ráðningu yfirmanna lækninga á
sjúkrahúsinu eins og lög kveða á um.
í núverandi skipulagi Landspítala hafa áhrif
lögskipaðra yfirlækna sérgreina verið rýrð með
óheimilli tilfærslu verkefna þeirra til annarra
stjómenda, sem valdir hafa verið með ógagnsæjum
hætti. Umboðsmaður Alþingis hefur fjallað ítarlega
um þennan vanda og í greinargerð með nýjum
lögum um heilbrigðisþjónustu er tekið undir
sjónarmið umboðsmanns og hnykkt á mikilvægi
yfirlæknisábyrgðar.
Afar mikilvægt er, að ákvörðunarvald yfirlæk-
na sérgreina verði aukið með þeim hætti, að fjár-
hagsleg ábyrgð, ráðningarvald og lögbundin fagleg
ábyrgð fari saman í rekstri sérgre ina. Samþætting
faglegrar og fjárhagslegrar ábyrgðar myndi bæta
stjómun og auðvelda ákvarðanir með aukinni
dreifistýringu og minnkaðri yfirbyggingu stjóm-
kerfis. Þá er afar þýðingarmikið, að allir yfirmenn
lækninga verði ráðnir með gagnsæjum hætti byggt
á málefnalegum forsendum.
■ ■ Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn
í Kópavogi 28.-29. september 2007 felur stjóm
félagsins að koma með tillögur fyrir næsta aðal-
fund þess um skilgreinda aðild læknanema að
Læknafélagi fslands.
LÆKNAblaðið 2007/93 759