Læknablaðið - 15.11.2007, Side 28
UMRÆÐUR O G FRETTIR
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Gríðarleg tækifæri í heilbrigðisþjónustu
- viðtal við Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
Nýr heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokks tók við í vor við stjórn-
arskipti og teljast það tíðindi þar sem Framsóknarflokkur stýrði
ráðuneyti heilbrigðismála samfellt í 12 ár. Þótti mörgum kominn tími
til að nýir vindar blésu um ganga stærsta ráðuneytisins miðað við
fjárveitingar ársins, áætluð útgjöld ríkisins til heilbrigðismála eru
um 130 milljarðar, helmingi hærra en næsta ráðuneytis sem á eftir
kemur í útgjöldum.
Ekki þótti minna um vert að ráðherraim,
Guðlaugur Þór Þórðarson, er yngstur í ráðherra-
hópnum og því líklegur sem slíkur til að taka til
hendinni og stokka upp ýmislegt sem verið hefur
óbreytt um langa hríð.
Blaðamaður Læknablaðsins átti samtal við
Guðlaug Þór á dögunum og lagði fyrir hann
nokkrar spurningar nú þegar hann hefur setið á
ráðherrastóli í fimm mánuði og fengið nasasjón
af embættinu enda leikur lesendum Læknablaðsins
eflaust forvitni á að vita hvað ráðherrann hyggst
fyrir á kjörtímabilinu.
„Eins og tilgreint er í samstarfssamningi rík-
isstjórnarinnar þá er talað um blandaða fjármögn-
un heilbrigðisþjónustu og að fjármagn fylgi sjúk-
lingum og eðli málsins samkvæmt þá þýðir það
aukna fjölbreytni í rekstri heilbrigðisþjónustu."
Er hugsunin sú að sjúklingurinn geti valiðpjón-
ustu hvort sem hún er ríkis- eða einkarekin ogfjár-
magniðfylgi honum?
„Það er ljóst að ekki verður farið í þetta í nein-
um byltingarstíl og stigið verður varlega til jarðar.
Þar sem fleiri en einn munu bjóða þjónustuna
verður að standa vel að því hvernig þetta er út-
fært og með hvaða hætti. Þetta er þróun sem verð-
ur og ekki einungis hér á landi heldur megum við
eiga von á samevrópskum heilsumarkaði og skyn-
samlegt að Norðurlöndin séu skrefinu á undan
á öðrum Evrópulöndum í þessu efni. Við getum
orðað þetta þannig að hér á landi munu fleiri og
fjölbreyttari aðilar sjá um rekstur heilbrigðisþjón-
ustunnar en hingað til."
Mörg ný tækifæri að skapast
Má skilja orðþín pannig að pú sért ekki að tala um
Hávar einkavæðingu núverandi heilbrigðispjónustu heldur að
Sigurjónsson valkostir verðifleiri?
„Það er alveg ljóst að eftirspurn mun aukast
á næstu árum og áratugum eftir heilbrigðisþjón-
ustu. Þetta þýðir að mörg ný tækifæri eru að
skapast í þessum geira. Það þarf að skipuleggja
þetta þannig að tækifærin nýtist sem best. Það
er líka rangt að ekki sé einkarekstur í núverandi
þjónustu. Það eru fjölmargir einstaklingar, fyr-
irtæki og félög sem veita mjög mikilvæga þjón-
ustu í ýmsum heilbrigðisgreinum. Mig gildir í
rauninni einu hvert rekstrarformið er, aðalatriðið
er að þjónustan sé fagleg, standist gæðakröfur
og sé boðin á hagstæðu verði. Ég er sannfærður
um að við eigum eftir að selja íslenska heilbrigð-
isþjónustu á erlendum mörkuðum í framtíðinni;
mannauðurinn er slíkur og kunnáttan á borð við
það besta sem gerist í heiminum. Við getum gert
miklu meira en við höfum gert fram að þessu. Að
búast við öðru er í rauninni skammsýni."
Megum við pá eiga von á pví að hér rísi einka-
sjúkrahús sem bjóða sömu pjónustu og ríkissjúkrahús-
in, Landspítalinn páfyrst ogfremst, gera í dag?
„Við erum að hefja vinnu við að skilgreina
hlutverk Landspítalans upp á nýtt og gera það á
miklu skýrari og nákvæmari hátt en hingað til.
Heilbrigðislögin nýju hreinlega bjóða upp á að
fleiri aðilar en nú eru geti boðið þá þjónustu sem
kallað er eftir. Ég finn fyrir afskaplega miklum
áhuga hjá einkaaðilum og félögum að fara út í
alls kyns þjónustu. Það er ekkert því til fyrirstöðu
lagalega séð að hér rísi fyrirtæki sem bjóði læknis-
og heilbrigðisþjónustu sem Landspítalinn hefur
einn boðið fram að þessu. Við sjáum það reyndar
nú þegar á ýmsum sviðum."
Læknar hafa bent á að með einum vinnuveitanda á
mörgum sviðum læknisfræði sé pröngur stakkur snið-
inn fyrir pá sem hyggja á starfsferil í peim greinum.
Má skilja orð pín svo að með pessu séu muni mögu-
leikutn fjölga?
„Starfsánægja fólks skiptir máli einnig skiptir
máli að fólk sjái möguleika fyrir sig persónulega
í sem flestum greinum. Fjölbreytt rekstrarform
bjóða fjölbreytta möguleika. Margir íslenskir
læknar eru starfandi erlendis og ég þykist vita
að margir þeirra myndu koma heim ef tækifæri
til þess byðist. Ég er viss um að einkaaðilar muni
nýta sér þau tækifæri sem stækkandi markaður
heilbrigðiþjónustu býður og auka með því starfs-
möguleika lækna og annarra heilbrigðisstarfs-
760 LÆKNAblaðið 2007/93